Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Tiltalið: Brynjar Björn Gunnarsson
    Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er þjálfari Grindavíkur, Brynjar Björn Gunnarsson. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
    2 hr 38 min
  • Enski boltinn - Er bannað að fagna?
    Arsenal stóð uppi sem sigurvegarinn í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.
    Lundúnafélagið vann sannfærandi sigur gegn Liverpool á heimavelli sínum. Jón Kári Eldon var á vellinum en hann var á línunni í hlaðvarpinu Enski boltinn í dag og ræddi þar um ferð sín á Emirates, og jú auðvitað um leikinn.
    Þá er auðvitað líka rætt um aðra leiki helgarinnar í þættinum en það var nóg um að vera í þessari stórskemmtilegu deild.
    1 hr 12 min
  • Útvarpsþátturinn - Máni í framboði og ótímabæra spáin
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 3. febrúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Gestur er Máni Pétursson, sérfræðingur á Stöð 2 Sport og fyrrum útvarpsmaður á X-inu. Hann fer yfir nýja ótímabæra spá þar sem öll liðin í Bestu deildinni eru skoðuð.
    Þá eru fréttir vikunnar að sjálfsögðu á sínum stað.
    1 hr 53 min
  • Hugarburðarbolti er nýtt fantasy hlaðvarp
    22.000 manns á Íslandi spila fantasy leikinn í enska fótboltanum. Hugarburðarbolti er nýtt fantasy hlaðvarp sem alla fantasy spilara þyrstir í. Hlusta má á þáttinn á öllum helstu veitum í gegnum Fótbolti.net.
    Vignir Már Eiðsson og Gunnar Georgsson sjá um þáttinn.
    Gunnar Georgsson er einn allra sterkasti fantasy spilari landsins. Hann er í 10 sæti yfir allt Ísland og er efstur í mörgum öðrum deildum. Hann veit allt um fantasy. Vignir Már Eiðsson er annar stjórnandi Ofurdeildarinnar og einn allra sterkasti draft spilari landsins.
    1 hr 2 min
  • Enski boltinn - Tveir hrikalega spennandi og allir elska Luton
    Það var leikið í ensku úrvalsdeildinni í miðri viku en það má með sanni segja að tveir efnilegir og spennandi leikmenn hafi stolið senunni.
    Gummi og Steinke komu sér vel fyrir í Thule-stúdíóinu í dag og fóru yfir leiki umferðarinnar með Óskari Smára Haraldssyni, þjálfara kvennaliðs Fram.
    Einnig var aðeins farið yfir gluggadaginn í gær en hann var fremur bragðdaufur.
    59 min
  • Enski boltinn - Vandræðagemsar í sviðsljósinu
    Það er bikarhelgi að baki í enska boltanum og er spilað í ensku úrvalsdeildinni núna í miðri viku.
    Það er nóg að ræða þar sem mikið er um fréttir í enska boltanum um þessar mundir af misgáfulegum mönnum og þá er gluggadagurinn á fimmtudag.
    Gummi og Steinke fengu sér sæti í Thule-stúdíóinu ásamt fréttaritaranum Sölva Haraldssyni í dag. Farið var yfir bikarinn, deildina, slúður og fréttir síðustu daga.
    1 hr 25 min
  • Tiltalið: Gunnar Heiðar Þorvaldsson
    Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er þjálfari Njarðvíkur, Gunnar Heiðar Þorvaldsson. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
    2 hr 7 min
  • Útvarpsþátturinn - Kiddi Jóns og Gregg Ryder
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 27. janúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Gestur fyrri hlutans er Kristinn Jónsson sem hefur yfirgefið KR og er kominn heim í Breiðablik.
    Gestur seinni hlutans er Gregg Ryder sem tók við þjálfun KR í vetur.
    1 hr 44 min
  • Enski boltinn - Klopp hættir með Liverpool
    Þau risastóru tíðindi bárust í dag að Jurgen Klopp væri að hætta með Liverpool eftir yfirstandandi tímabil.
    Þessi tíðindi komu eins og þruma úr heiðskíru lofti.
    Gummi og Steinke settust niður í Thule-stúdíóinu með Kristjáni Atla Ragnarssyni, hörðum stuðningsmanni Liverpool, í dag og fóru yfir þessi rosalegu tíðindi.
    1 hr 1 min
  • Enski boltinn - Jóhann Birnir ræðir Watford, Man Utd og fleira
    Jóhann Birnir Guðmundsson er sérstakur gestur í hlaðvarpinu Enski boltinn í dag.
    Hann fór ungur að árum til Watford og spilaði í þremur deildum á Englandi, þar á meðal ensku úrvalsdeildinni. Í þessum þætti ræðir hann um tíma sinn hjá Watford sem var mjög áhugaverður.
    Jói er einnig stuðningsmaður Manchester United og er rætt um stöðu félagsins í þættinum. Þá er farið yfir síðustu leiki í ensku úrvalsdeildinni og stöðu mála í janúarglugganum.
    59 min