Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Tiltalið: Sigurður Ragnar Eyjólfsson
    Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er ekki leikmaður heldur þjálfarinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson sem var síðast við stjörn hjá Keflavík. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
    2 hr 45 min
  • Útvarpsþátturinn - Fréttavikan og formannsslagur
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 20. janúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Fótboltafréttir vikunnar heima og erlendis. Þórir Hákonar fer yfir formannsslag KSÍ, Kristján Atli er á línunni og svo er örstutt handboltahorn.
    1 hr 50 min
  • Enski boltinn - Helmingsuppgjör með Gumma Ben
    Íþróttafréttamaðurinn Guðmundur Benediktsson er gestur Enska boltans í þessari viku.
    Hann heimsótti skrifstofu Fótbolta.net í morgunsárið og ræddi við Guðmund Aðalstein og Sæbjörn Steinke um síðustu leiki í enska boltanum. Þá var einnig snert aðeins á enska bikarnum.
    Gummi kastaði fram sínu liði ársins hingað til og þá var spáin - sem var birt fyrir tímabilið - skoðuð. Hvernig lítur hún út núna?
    1 hr 1 min
  • Tiltalið: Alex Freyr Elísson
    Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Breiðbliks í Bestu deild karla, Alex Freyr Elísson en hann var á láni seinnii part tímabilsins hjá KA en er núna mættur aftur í treyju Breiðabliks.
    1 hr 15 min
  • Útvarpsþátturinn - Herlúðrar óma í Vesturbænum
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 13. janúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Gestur: Aron Sigurðarson nýr leikmaður leikmaður KR. Rætt um tíðindamikla fréttaviku í íslenska boltanum. Það er blásið í herlúðra í Vesturbænum.
    Landsliðið, píla, handboltasérfræðingurinn Arnar Daði í beinni frá München, Guinness gangan og fleira.
    1 hr 48 min
  • Rússíbani hjá Aroni - „Fyrir tveimur dögum vissi ég það ekki"
    Aron Bjarnason var í dag tilkynntur sem nýr leikmaður Breiðabliks. Hann er keyptur frá sænska félaginu Sirius þar sem hann hefur spilað undanfarin þrjú tímabil. Aron snýr aftur til Breiðabliks en þar lék hann síðast fyrri hluta tímabilsins 2019.
    Aron, sem er 28 ára kantmaður, skrifar undir samning sem gildir út tímabilið 2027. Hann ræddi við Fótbolta.net og má nálgast viðtalið í spilaranum efst sem og á öllum hlaðvarpsveitum.
    14 min
  • Enski boltinn - Besti mögulegi eigandinn fyrir Man Utd
    Þau tíðindi bárust um jólin að Jim Ratcliffe, ríkasti maður Bretlandseyja, hefði keypt 25 prósenta hlut í Manchester United.
    Þetta eru stór tíðindi fyrir stuðningsmenn Man Utd en hvað þýðir þetta nákvæmlega?
    Guðmundur Aðalsteinn fékk Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafa og fyrirlesara, í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag til þess að kryfja þessi tíðindi.
    49 min
  • Útvarpsþátturinn - Ótímabæra, Freysi og hringborðið
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 6. janúar.
    Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri helmingnum: Fyrsta tímabæra spáin fyrir Bestu deildina og Freyr Alexandersson, nýr þjálfari Kortrijk, er á línunni.
    Í seinni helmingnum: Enska hringborðið með Kristjáni Atla sem velur áhugavert úrvalslið.
    1 hr 53 min
  • Enski boltinn - Hversu spennandi verður kapphlaupið?
    Gleðilegt nýtt ár hlustendur Enska boltans!
    Það er Ástríðuþema í þætti dagsins því þeir Ástríðubræður: Sverrir Mar Smárason og Gylfi Tryggvason fóru yfir síðustu umferð með Sæbirni Steinke.
    Farið var yfir leiki umferðarinnar og rýnt í toppbaráttuna. Verður Darwin Nunez markahærri 2024 en Erling Haaland? Hvað er að gerast hjá Arsenal? Er eitthvað ljós í enda ganganna hjá Man Utd? Er Man City líklegast til að vinna deildina og alls konar vangaveltur.
    1 hr 31 min
  • Útvarpsþátturinn - Kæfan 2023
    Síðasti útvarpsþátturinn Fótbolti.net á árinu 2023 og þá er að sjálfsögðu Áramótakæfan 2023 á dagskrá.
    Fótboltaárið er gert upp á skemmtilegan hátt; maður ársins valinn og leynigestur kemur í heimsókn.
    Takk fyrir árið hlustendur kærir, heyrumst á því nýja!
    1 hr 45 min