Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - Allt í lagi með krakkana og lúserinn Pochettino
    Liverpool vann deildabikarinn í gær eftir frábæran úrslitaleik gegn Chelsea á Wembley.
    Óskar Smári Haraldsson, þjálfari kvennaliðs Fram, og Jón Aðalsteinn Kristjánsson, þjálfari 2. flokks karla hjá Haukum, fóru yfir leikinn ásamt undirrituðum. Óskar er stuðningsmaður Liverpool og Nonni er stuðningsmaður Chelsea.
    Einnig er farið yfir aðra leiki helgarinnar á Englandi en lengst af var rætt um úrslitaleikinn frá því í gær.
    57 min
  • Hugarburðarbolti Þáttur 4
    Sjóðandi heitur Hojlund. Eygypski töframaðurinn birtist þegar engin/n átti von á honum og stimplaði sig inn tímabundið. Skytturnar halda áfram að skjóta lið í kaf. Vonir margra fantasy spilara brotnuðu. Rauða spjaldið, kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.
    1 hr 11 min
  • Enski boltinn - Mjög spennandi barátta og sjóðheitur Höjlund
    Það er skemmtileg umferð að baki í ensku úrvalsdeildinni og er toppbaráttan gríðarlega spennandi þessa stundina. Manchester City tapaði stigum á meðan Arsenal og Liverpool unnu sína leiki sannfærandi.
    Manchester United er á fínu skriði og Rasmus Höjlund getur ekki hætt að skora, Gary O'Neil er aftur einn af stjórum tímabilsins og Mason Holgate er ekki skarpasti hnífurinn í skúffunni.
    Gunnar Ormslev, lýsandi á Síminn Sport, og Magnús Haukur Harðarson, þjálfari kvennaliðs Fjölnis, eru gestir í þættinum að þessu sinni.
    1 hr
  • Útvarpsþátturinn - Afmælisveisla og Jón Rúnar gestur
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net hélt upp á afmæli sitt laugardaginn 17. febrúar.
    Í fyrri hluta þáttarins er farið yfir íslenskar fótboltafréttir vikunnar og úrslitin úr Lengjubikarnum.
    Í seinni hluta þáttarins er Jón Rúnar Halldórsson gestur og ræðir um fótboltapólitíkina og komandi ársþing KSÍ.
    1 hr 44 min
  • Enski boltinn - Hvað er í gangi hjá Chelsea?
    Chelsea er mikið til umræðu í hlaðvarpsþættinum Enski boltinn í dag. Liðið vann endurkomusigur gegn Crystal Palace í gær en tímabilið hefur verið afar dapur hjá Lundúnafélaginu.
    Chelsea endaði um miðja deild á síðasta tímabili og það er útlit fyrir að það gerist eftir.
    Guðmundur Aðalsteinn stýrir þættinum og fær hann þá Harald Örn og Stefán Martein í heimsókn, en þeir eru báðir miklir stuðningsmenn Chelsea.
    Einnig er farið yfir aðra leiki helgarinnar í enska boltanum í þættinum.
    1 hr 9 min
  • Steven Lennon gerir upp magnaðan feril - Skórnir upp á hillu
    Steven Lennon hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir magnaðan feril hér á Íslandi. Hann er einn besti leikmaður sem hefur spilað í efstu deild hér á landi og er hann í dag markahæsti erlendi leikmaður í sögu efstu deildar.
    Lennon ólst upp í akademíu Rangers í Skotlandi en kom hingað til lands árið 2011 til að spila með Fram. Hér festi hann rætur en hann spilaði lengst af með FH og varð algjör goðsögn hjá félaginu.
    Þessi skemmtilegi Skoti kom í dag í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net þar sem hann fór yfir ferilinn og næstu skref.
    1 hr 7 min
  • Var að plana að flytja upp á Skaga en svo breyttist allt snögglega
    Gísli Eyjólfsson var í vikunni kynntur sem nýr leikmaður sænska úrvalsdeildarfélagsins Halmstad. Hann er annar leikmaðurinn sem Halmstad fær frá Íslandi í vetur því í síðasta mánuði fékk liðið Birni Snæ Ingason, besta leikmann Bestu deildarinnar 2023, í sínar raðir frá Víkingi.
    Gísli hefur undanfarin ár verið algjör lykilmaður í liði Breiðabliks. Hann skoraði þrjú mörk í 15 Evrópuleikjum og sjö mörk í Bestu deildinni á liðinni leiktíð. Hann lagði upp fjögur mörk í deildinni, eitt í Evrópu og eitt í Mjólkurbikarnum.
    Gísli ræddi í dag við Fótbolta.net um skiptin en hægt er að hlusta á spjallið í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.
    14 min