Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - Kraftaverkin gerast á jólunum
    Enski boltinn hefur verið allsráðandi í kringum jólahátíðina og það var meira að segja spilað á aðfangadag.
    Gummi og Steinke komu sér vel fyrir í Thule-stúdíóinu í dag með Litlu Flugvélinni, Ingimar Helga Finnssyni, og fóru yfir það sem hefur skeð í ensku úrvalsdeildinni um jólin.
    Það er óhætt að segja að kraftaverkin gerist á jólunum.
    Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla, kæru hlustendur.
    1 hr 16 min
  • Útvarpsþátturinn - Litlu jólin með Magnúsi Má og Arnari Gunnlaugs
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 23. desember. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Í fyrri hluta þáttarins er Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar gestur og rætt um Lengjudeildina og Mosfellinga.
    Í seinni hlutanum er Arnar Gunnlaugsson þjálfari meistara Víkings gestur en það varð ljóst í gær að hann tekur ekki við Norrköping.
    Þá er rætt við Kára Árnason yfirmann fótboltamála hjá Víkingi.
    1 hr 51 min
  • Tiltalið: Fanney Inga Birkisdóttir
    Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Vals og nýjasta landsliðskonan okkar Fanney Inga Birkisdóttir. Við ræddum við hana um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
    1 hr 16 min
  • Enski boltinn - El Jóhann hitar upp fyrir Þorláksmessuveislu
    Twitter-kóngurinn El Jóhann er gestur Enska boltans hlaðvarpsins á þessum ágæta föstudegi.
    Hann hitar upp fyrir Þorláksmessuveisluna sem er í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Það eru áhugaverðir leikir á dagskrá og endar dagurinn með stórleik Liverpool og Arsenal.
    Arsenal er á toppnum sem stendur en El Jóhann er mikill Arsenal-maður. Hann spáir þeim auðvitað sigri í leiknum en í þættinum stillti hann upp sameiginlega byrjunarliði þessara tveggja liða.
    Gleðilega hátíð kæru hlustendur!
    33 min
  • Viðar Ari - Ævintýraþrá og ótrúleg saga
    Viðar Ari Jónsson gekk í raðir norska félagsins HamKam í lok sumargluggans eftir að hafa spilað í mánuð með FH.
    Hann kom í FH eftir að hafa leikið með Honved í Ungverjalandi. Viðar ræðir hvernig hann endaði í Búdapest eftir frábært tímabil með Sandefjord í Noregi 2021.
    Í aðdraganda skiptanna var hann mjög nálægt því að semja við ísraelsku meistarana og Viðar segir frá því hvernig þau skipti duttu upp fyrir sig.
    Í viðtalinu ræðir hann um mótlætið í Honved og langa leið inn á völlinn hjá HamKam.
    28 min
  • Enski boltinn - Fljótur að yfirgefa hópspjallið
    Jafntefli var niðurstaðan á Anfield í gær þegar Liverpool og Manchester United áttust við.
    Það var mikið að ræða eftir leikinn en Gummi og Steinke fengu Orra Frey Rúnarsson í heimsókn í Thule-stúdíóið til að fara yfir leikinn og allt sem gerðist í kringum hann.
    United-menn fagna stiginu á meðan Liverpool-stuðningsmenn eru pirraðir.
    Það var svo nóg annað að ræða eftir helgina en jólin eru besti tími ársins í enska boltanum.
    1 hr 13 min
  • Útvarpsþátturinn - Besta þarfagreiningin
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 16. desember.
    Farið er í þarfagreiningu fyrir lið Bestu deildarinnar og skoðað hvar þau þurfa helst að styrkja sig fyrir tímabilið á næsta ári.
    Í leiðinni er farið yfir fréttir og slúður úr deildinni, rætt um skellinn sem Breiðablik fékk í Póllandi og janúarverkefni landsliðsins.
    Elvar Geir og Tómas Þór og Valur Gunnars. Málsmetandi aðili þáttarins er Sæbjörn Steinke.
    1 hr 32 min
  • Enski boltinn - Tryllt læti í Köben og United kveður
    Riðlakeppni Meistaradeildarinnar kláraðist í gærkvöldi og má svo sannarlega tala um ótrúlega niðurstöðu.
    FC Kaupmannahöfn frá Danmörku komst áfram úr riðli sem innihélt Bayern München og Manchester United, en síðarnefnda liðið endaði á botni riðilsins.
    Í þessari sérstöku aukaútgáfu Enski boltinn hlaðvarpinu í dag var hringt til Danmerkur og rætt við íþróttafréttamanninn Runólf Trausta Þórhallsson.
    Spjallað er við hann um magnaðan árangur FCK, unglingaliðið sem er einnig er að ná frábærum árangri og svo auðvitað um Manchester United. Á United einhvern möguleika gegn Liverpool núna um helgina?
    Þá er auðvitað minnst á niðurstöðu í öðrum riðlum og dráttinn sem er framundan. Það er spilað í Evrópudeildinni og Sambandsdeildinni í kvöld, og þá verður enski boltinn á sínum stað um helgina.
    45 min
  • Tiltalið: Fanndís Friðriksdóttir
    Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Íslandsmeistara Vals og fyrrum landsliðskonan Fanndís Friðriksdóttir. Við ræddum við hana um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
    1 hr 41 min
  • Enski boltinn - Meistarasigur og tvö stórlið í brasi
    Enska úrvalsdeildin heldur áfram að skemmta Íslendingum en þó mismikið eftir því hvaða liði fólk heldur með.
    Það var stórskemmtilegt að fylgjast með umferðinni um helgina en til þess að kryfja hana þá kom Tómas Þór Þórðarson, ritstjóri enska boltans hjá Síminn Sport, í heimsókn í Thule-stúdíóið í dag.
    Gummi og Steinke eru á sínum stað að venju en farið er yfir alla leiki helgarinnar í enska boltanum.
    1 hr 19 min