Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - Nýir vindar og erfitt að spá í spilin
    Sumarglugginn er galopinn í enska boltanum og nokkuð áhugavert í gangi þó þetta hafi nú verið frekar rólegt lengi vel.
    Man Utd farið að haga sér eins og fótboltafélag, læti og nýr stjóri hjá Chelsea, Arne Slot tekinn við af kóngnum hjá Liverpool, City ætlar að vinna fimmta árið í röð, Arsenal sækir hinn sjóðheita Calafiori, Tottenham fær tvo bráðefnilega og Aston Villa að gera mjög skemmtilega hluti.
    Guðmundur Aðalsteinn fékk þá Harald Örn Haraldsson og Sölva Haraldsson í heimsókn í dag til að taka aðeins stöðuna þegar það eru akkúrat þrjár vikur í fyrsta leik í deildinni.
    1 hr 8 min
  • Innkastið - Falldraugurinn færist nær KR og Víkingar eru valtir
    Innkastið eftir 15. umferð Bestu deildarinnar (sem er þó ekki alveg búin vegna kerfisvillunnar).
    Fjör í Kópavoginum þar sem Breiðablik vann fallbaráttulið KR og Víkingur tapaði gegn funheitum KA-mönnum.
    Lengjudeildarhornið en það er líka farið niður í 2. og 3. deild. Svo er það blessuð Sambandsdeildin.
    Elvar Geir, Guðmundur Aðalsteinn og Baldvin Borgars.
    1 hr 7 min
  • Útvarpsþátturinn - Ferðasögur og fótboltafréttir
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 20. júlí.
    Elvar Geir og Tómas Þór skoða helstu fótboltafréttir vikunnar. Íslensku liðin í Evrópu, Besta deildin, félagaskipti og Lengjudeildin.
    Börkur formaður Vals er í beinni frá Albaníu, Tom segir ferðasögu frá Dublin og Jökull þjálfari Stjörnunnar er á línunni.
    Þá er einnig farið yfir erlendar fréttir.
    1 hr 47 min
  • Einn stærsti sigur í fótboltasögu Íslands og leiðin liggur til Sviss
    Íslenska kvennalandsliðið er komið á EM eftir frábæran landsliðsglugga.
    Stelpurnar unnu magnaðan 3-0 sigur gegn Þýskalandi á Laugardalsvelli og unnu í kjölfarið 0-1 sigur gegn Póllandi. Þær lentu í öðru sæti sínum og fara beint á EM.
    Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Fram, og Magnús Haukur Harðarson, þjálfari Fjölnis, komu við á skrifstofu Fótbolta.net í dag og ræddu um stöðu kvennalandsliðsins og Evrópumótið sem er framundan.
    52 min
  • Innkastið - Vítavert klúður Víkings
    Innkast vikunnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Magnús Þórir Matthíasson.
    Rætt er um dramatíkina í Dublin þar sem Shamrock Rovers vann Víking í forkeppni Meistaradeildarinnar. Frammistaða Víkings í einvíginu voru gríðarleg vonbrigði.
    Farið er yfir síðustu leiki Bestu deildarinnar og einnig er rætt um Evrópuleikina framundan og Lengjudeildina.
    1 hr 12 min
  • Leiðin á Laugardalsvöll - Baddi um Árbæ og markamaskína í spjalli
    Leiðin á Laugardalsvöll heldur áfram á miðvikudaginn þegar 16-liða úrslitin í Fótbolta.net bikarnum verða leikin í heild sinni.
    Það eru nokkrir mjög svo áhugaverðir leikir framundan en við hitum upp í dag með því að spjalla við Baldvin Má Borgarsson, þjálfara Árbæjar. Hans menn hafa verið að gera flotta hluti í 3. deildinni en þeir mæta Víkingi Ólafsvík, sem er í þriðja sæti í 2. deild, á miðvikudag.
    Svo hringjum við til Húsavíkur þar sem markamaskínan Jakob Gunnar Sigurðsson er á línunni. Jakob Gunnar er aðeins 17 ára gamall en hann hefur farið á kostum í sumar. Völsungur mætir Haukum, en Jakob gerði þrennu í síðasta leik á Ásvöllum.
    34 min
  • EM hringborðið - Fótboltinn sigraði þó hann hafi ekki komið heim
    Spánverjar eru Evrópumeistarar eftir skemmtilegan úrslitaleik gegn Englandi. Fótboltinn kom ekki heim að þessu sinni.
    En það má klárlega segja að fótboltinn hafi sigrað því besta lið mótsins vann.
    Axel Óskar Andrésson og Eyþór Aron Wöhler, leikmenn KR, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net til að ræða úrslitaleikinn og gera upp mótið á léttum nótum.
    45 min
  • Útvarpsþátturinn - Boltinn með Binna Gests og FIFPro
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 13. júlí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Gestur þáttarins er Brynjar Gestsson fótboltaþjálfari og er víða komið við í spjalli við hann. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar, Evrópuleiki íslensku liðanna, Bestu deildina og fleira.
    Þá koma formenn frá FIFPro alþjóðlegu leikmannasamtökunum í spjall seinni hluta þáttarins.
    1 hr 54 min
  • EM hringborðið - Efnilegar stórstjörnur og spennandi úrslitaleikur
    Úrslitaleikurinn á Evrópumótinu fer fram á sunnudaaginn en undanúrslitin kláruðust í gær. Það eru England og Spánn sem munu mætast í úrslitaleiknum.
    Guðmundur Aðalsteinn, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnarsson fóru yfir undanúrslitin og úrslitaleikinn í EM hringborðinu í dag.
    Lionel Messi baðaði nýju stórstjörnu heimsfótboltans, Kylian Mbappe átti hauskúpumót og Southgate fer aftur í úrslitaleikinn með Englandi en nær hann að taka gullið núna? Kobbie Mainoo er með eitursvalt höfuð og Ollie Watkins sigurmarkið var magnað augnablik.
    45 min
  • EM hringborðið - Undanúrslitin hefjast í kvöld
    Komið er að undanúrslitunum á EM. Fyrri viðureignin fer fram í kvöld, þriðjudagskvöld, þegar Spánn mætir Frakklandi og annað kvöld mætast England og Holland.
    Til þess að gera upp mótið til þessa, og aðallega 8-liða úrslitin, komu þeir Birkir Björnsson og El Jóhann í stúdíó Fótbolta.net og ræddu við Sæbjörn Steinke.
    Hvernig gengu taktísku breytingar Southgate upp? Toni Kroos kvaddi og Ronaldo lék sinn síðasta leik á EM. Víti eða ekki víti á Cucurella og einn skemmtilegasti leikur mótsins þegar Holland kom til baka gegn Tyrkjum. Þetta og margt fleira var rætt í þættinum.
    40 min