Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Útvarpsþátturinn - Kennslustund á Meistaravöllum
    Elvar Geir og Tómas Þór með útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 14. september.
    Víkingur komst aftur á topp Bestu deildarinnar með 3-0 sigri gegn KR-ingum sem eiga greinilega langt í land. Leikurinn er gerður upp og einnig heyrt í Arnari Gunnlaugssyni.
    Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar og hitað upp fyrir næstu umferð í Bestu deildinni og lokaumferð Lengjudeildarinnar. Sverrir Örn Einarsson er í beinni frá Keflavík
    1 hr 27 min
  • Einn mesti sigurvegari sem hefur spilað í íslenskum fótbolta
    Pablo Punyed er einn mesti sigurvegari sem hefur spilað í íslenskum fótbolta.
    Hann lenti hér á landi aðeins 21 árs gamall og hefur fest hér rætur. Hann lítur núna á sig sem Íslending.
    Pablo spilar í dag með Íslands- og bikarmeisturum Víkings en hann er staðráðinn í að snúa aftur á fótboltavöllinn eftir að hafa slitið krossband á dögunum.
    Í þessum hlaðvarpsþætti ræðir hann um meiðslin, ferilinn til þessa og lífið á Íslandi.
    59 min
  • Innkastið - Landsliðið og Lengjudeildin
    Sérstakur aukaþáttur af Innkastinu á meðan Besta deildin er í landsleikjafríi. Umsjón: Elvar Geir.
    Farið er yfir landsleikinn í Tyrklandi og þá er fjallað vel um Lengjudeildina en síðasta umferðin verður leikin á laugardag.
    Fréttamenn .Net þeir Sölvi Haralds stuðningsmaður ÍR og Stefán Marteinn stuðningsmaður Njarðvíkur eru með Elvari í hljóðveri. Einnig Hilmar Jökull sem býður sig fram í formannsstól Tólfunnar.
    Einnig er rætt um 2. deild og næstu leikir í þeirri Bestu skoðaðir.
    1 hr 29 min
  • Tveggja Turna Tal - Hákon Sverrisson
    Hákon Sverrisson hefur þjálfað hjá Breiðablik í um 30 ár ásamt því að vera einn leikjahæsti leikmaður félagsins frá upphafi.Hákon hefur frá 2016 verið yfirþjálfari Blika en hefur auk þess í gegnum áratugina sérhæft sig í þjálfun yngstu iðkendanna og það væri gaman að vita hve mörg þúsund börn hafa hitt Hákon í Fífunni.Hákon Sverrisson er óumdeildur og góður maður. Hann er guðsgjöf fyrir fótboltann í Kópavogi og á Íslandi.Tveggja Turna Tal er hlaðvarpsþáttur þar sem Jón Páll Pálmason sest niður með þjálfurum, þverrt á íþróttagreinar, og ræðir þjálfun með gestum sínum. Þættirnir eru á öllum helstu hlaðvarpsveitum og er í boði Nettó, Netgíró og Lengjunnar.Það eru gulur september. Það Er Alltaf Von.Njótið!
    1 hr 35 min
  • Útvarpsþátturinn - Gamla og nýja bandið búa til smelli
    Útvarpsþátturinn er frumfluttur í hlaðvarpsútgáfu þessa vikuna. Elvar Geir og Tómas Þór á Ölveri eftir fyrsta sigur Íslands í Þjóðadeildinni. 2-0 gegn Svartfjallalandi.
    Sæbjörn Steinke er með þeim og er leikurinn gerður upp, farið yfir frammistöðu leikmanna og stöðu mála.
    Í seinni hlutanum eru svo fréttir vikunnar og komandi umferð í Lengjudeildinni. Guðmundur Aðalsteinn er með í þeim hluta.
    1 hr 38 min
  • Hugarburðarbolti GW3 Er Haaland mennskur?
    Erling Braut West Ham. Önnur þrennan í röð og 7 mörk í fyrstu 3.umferðunum. Liverpool gerðu góða ferð á Old Trafford með dyggri aðstoð Casemiro. Chris Kavanagh átti hörmungar dag á Emirates. Bournemouth með stórkostlega endurkomu í Guttagarði. John Duran að standa undir nafni í 9.unni hjá Aston Villa og Newcastle unnu sterkan heimasigur gegn Tottenham. Kóngurinn, hirðfíflið og rauða spjaldið á sínum stað ásamt sigurvegara mánaðarins!
    1 hr 5 min
  • Enski boltinn - Liverpool fékk betri sköllótta Hollendinginn
    Liverpool fór illa með Manchester United í stórleik í ensku úrvalsdeildinni í gær.
    Arnar Laufdal, stuðningsmaður Liverpool, og Eysteinn Þorri Björgvinsson, stuðningsmaður Manchester United, mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og gerðu leikinn upp.
    Einnig var farið yfir aðra leiki helgarinnar og aðeins rætt um gluggadaginn.
    Enski boltinn hlaðvarpið er í boði Nova.
    55 min
  • Tveggja Turna Tal - Sigurvin Ólafsson
    Sigurvin Ólafsson er óumdeilanlega einn af Turnum efstu deildar og neðri deilda í Íslenskum fótbolta. Venni er margfaldur Íslandsmeistara og hvar sem hann hefur komið er honum líst sem einstaklega góðum manni. Þátturinn í dag er stútfullur af góðum ráðum, áhugaverðum sögum, kímni og gleði. Það er gulur September. Munum: Það Er Alltaf Von. Tveggja Turna Tal er hlaðvarpsþáttur þar sem Jón Páll Pálmason sest niður með þjálfurum, þverrt á íþróttagreinar, og ræðir þjálfun með gestum sínum. Þættirnir eru á öllum helstu hlaðvarpsveitum og er í boði Nettó, Netgíró og Lengjunnar.Njótið!
    1 hr 53 min
  • Útvarpsþátturinn - Þegar einn gluggi lokast opnast annar
    Davíð Snorri Jónasson aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands er gestur vikunnar í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Það er landsleikjagluggi framundan og Ísland mætir Svartfjallalandi og Tyrklandi í Þjóðadeildinni.
    Áður en spjallað er við Davíð er farið yfir helstu fótboltafréttirnar. Orri Steinn fór til Real Sociedad á gluggadeginum, ljóst er hverjum Víkingur mætir í Sambandsdeildinni, það er heil umferð framundan í Bestu deildinni og toppbaráttan í Lengjudeildinni er galopin.
    Enski boltinn kemur að sjálfsögðu einnig við sögu í þættinum.
    1 hr 41 min