Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Ungstirnin - Við lifum í heimi Jude Bellingham
    Assan Ouedraogo (2006) er mjög eftirsóttur af Liverpool skv Sky Sports en Barcelona, Real Madrid eru nokkur lið sem eru á eftir þessum efnilega miðjumanni sem spilar fyrir Schalke.
    Savio (2004) er tekknískur Brassi sem hefur verið í lykilhlutverki á kantinum hjá toppliði Girona á Spáni sem er undir smásjá hjá Barcelona líkt og Ouedraogo.
    Hversu rugl góður er Jude Bellingham, er hann betri en Musiala? Zaire-Emery að spila eins og fullorðinn maður hjá PSG og hversu nett er það að Sædís Rún fór til Englandsmeistara Chelsea á reynslu?
    Íslendingalið Elfsborg klikkaði fyrsta séns á sænska meistaratitlinum, stútfullt Skandinavíuhorn, Jeremy Doku á eldi, Kristian Hlyns orðinn byrjunarliðsmaður í stærsta liði Hollands og margt margt fleira.
    1 hr 14 min
  • Útvarpsþátturinn - Fréttir vikunnar, Lyngby og Kristján Atli gerir upp enska boltann
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 4. nóvember.
    Umsjón: Tómas Þór og Benedikt Bóas.
    - Fótboltafréttir vikunnar. Meiri umræða um ráðningu KR á Gregg Ryder og sjö lið í Bestu-deildinni hafa ekki gengið frá ráðningu aðstoðarþjálfara.
    - Elvar Geir Magnússon ritstjóri Fótbolta.net í símaspjalli frá Kaupmannahöfn á leið á leik hjá Lyngby.
    - Kristján Atli Ragnarsson mætti svo og gerði upp fyrsta fjórðung í enska boltanum.
    1 hr 47 min
  • Úlfur hefur ekki áhyggjur: Þarf ekki alltaf að sækja einhvern nýjan
    Á síðustu dögum hefur verið greint frá því að fjórir reynslumiklir leikmenn væru horfnir á brott úr leikmannahópi Fjölnis. Það eru þeir Hans Viktor Guðmundsson, Guðmundur Þór Júlíusson, Bjarni Gunnarsson og Dofri Snorrason.
    Úlfur Arnar Jökulsson, þjálfari Fjölnis, ræddi brotthvarf leikmannanna í viðtali í dag. Mikil reynsla er farinn úr hópnum en Úlfur hefur ekki áhyggjur.
    Úlfur ræddi einnig um tímabil Fjölnis, tímann sem þjálfari hjá Fjölni, Extra völlinn og eftirminnilegt viðtal þar sem hann talaði um Aftureldingu.
    22 min
  • Heimavöllurinn: Þýskur grikkur en margt gott
    Ísland mátti sætta sig við tap gegn Þýskalandi og stigalaus landsliðsgluggi því niðurstaðan. Það mátti engu síður greina ýmis jákvæð teikn á lofti og þau Alexandra Bía og Guðmundur Aðalsteinn mættu á Heimavöllinn og fóru yfir málin ásamt Mist Rúnarsdóttur - í boði Orku Náttúrunnar og Dominos. Þátturinn er sá síðasti fyrir vetrarfrí.
    56 min
  • Enski boltinn - Agalegt ástand og grjóthörð fermingargjöf
    Tíunda umferðin í ensku úrvalsdeildinni fór fram um helgina og til að gera hana upp kom Framherjinn Guðmundur Magnússon í heimsókn til þeira Guðmundar Aðalsteins og Steinke.
    Umdeildir vítaspyrnudómar voru til umræðu sem og sannfærandi sigur City á grönnunum í United.
    Liverpool og Arsenal unnu örugga sigra, Tottenham vélin mallar áfram en bakslag hjá Newcastle og Chelsea.
    Á Villa Park fékk ungur Íslendingur 3-1 sigur í fermingargjöf og treyju frá manni leiksins. Frábær dagur.
    56 min
  • Ungstirnin - Heimsókn af Nesinu og golf með fyrrum leikmanni Liverpool
    Eli Junior Kroupi (2006) er einn efnilegasti leikmaður Frakklands um þessar mundir og hefur verið líkt við engan annan en Kylian Mbappe. Hann hefur farið frábærlega af stað með aðalliði Lorient í Ligue 1 með frábærum mörkum.
    Sverre Halseth Nypan (2006) er lykilleikmaður á miðjunni í liði Rosenborg í Noregi. Manchester Utd, Manchester City, Barcelona og Real Madrid eru með augastað á þessum efnilega leikmanni.
    Góðir gestir koma í heimsókn en þeir Arnar Daníel og Tómas Johannessen leikmenn Gróttu komu í afar áhugavert og skemmtilegt spjall, tveir frábærir en afar ólíkir persónuleikar.
    Bjarni Co-host spilaði golf með fyrrum leikmanni Liverpool í Houston, þrumuræða um ömurlegt gervigras á Seltjarnarnesi, Tommi Jó á leið i Breiðablik? Kristian og Orri að gera vel og Skandinavíuhornið á sinum stað.
    1 hr 31 min
  • Páll Kristjánsson formaður KR ræðir nýjan þjálfara og gagnrýnar raddir
    Páll Kristjánsson formaður knattspyrnudeildar KR ræðir við Fótbolta.net um ráðningu á Gregg Ryder sem nýjum þjálfara karlaliðs félagsins.
    KR tilkynnti ráðningu enska þjálfarans á fréttamannafundi í KR-heimilinu í vesturbænum í dag og eftir fundinn settumst við niður með Páli og fórum yfir málin.
    Til umræðu
    - Þrumuræðan í byrjun fréttamannafundar
    - Gagnrýnin á ferlið
    - Ógrynni starfsumsókna frá stórum nöfnum sem KR fékk
    - Formlegir fundir með sex aðilum
    - Svakalega flottur fyrsti fundur Gregg Ryder
    - Ráðning á Guðjóni Erni ein stærsta fjárfesting KR
    - Er peningakall mættur með fúlgur fjár í KR?
    - Fær Rúnar Kristinsson að taka Ole Martin í Fram?
    - Þykir umræðan skrítin
    - Var Óskar Hrafn eini kosturinn fyrst?
    - Hvenær breytist aðstaðan hjá KR?
    - Leikmannamál
    16 min
  • Útvarpsþátturinn - Óvænt útspil KR og undirbúningur á Akranesi
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 28. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Fótboltafréttir vikunnar. Gregg Ryder tekur við KR og Rúnar Kristinsson var kynntur í Ulfarsárdal.
    Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA segir frá undirbúningi Skagamanna fyrir Bestu deildina.
    Baldvin Már Borgarsson fer yfir enska boltann.
    1 hr 49 min
  • Bjarni Jó snýr aftur eftir lærdómsríka árspásu
    Bjarni Jóhannsson er mættur aftur í þjálfun eftir að hafa tekið sér árspásu. Bjarni hefur verið ráðinn þjálfari Selfoss sem leikur í 2. deild næsta sumar eftir að hafa fallið úr Lengjudeildinni í sumar. Hann gerir tveggja ára samning við félagið.
    Bjarni hefur verið í þjálfun í meira en 30 ár og komið víða við á ferlinum.
    Næsta stopp er Selfoss þar sem hann stefnir að koma liðinu aftur upp í Lengjudeildina eftir vonbrigðarsumar. Selfoss er félag sem á ekki að vera í 2. deild í fótbolta.
    Í þættinum fer Bjarni yfir nýtt verkefni á Selfossi og hann fer vel yfir fríið sem hann tók frá þjálfun. Þessi mikli reynslubolti er gríðarlega spenntur að hefjast handa á nýjan leik.
    27 min