Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Rúnar Kristins leyfir Frömurum að dreyma í Dal draumanna
    Rúnar Kristinsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Fram og tekur formlega til starfa sem þjálfari liðsins í Bestu deildinni um mánaðamótin.
    Eftir fréttamannafund í dag ræddi Elvar Geir Magnússon við Rúnar í fundarherbergi í Úlfarsárdalnum. Rætt er um nýtt verkefni Rúnars og ýmislegt fleira.
    39 min
  • Enski boltinn - Ekki bara góður þjálfari, líka góð manneskja
    Það var mjög svo áhugaverð umferð í ensku úrvalsdeildinni um liðna helgi. Það er alltaf gaman að fá enska boltann aftur að loknu landsleikjahléi.
    Jón Júlíus Karlsson, stuðningsmaður Newcastle, er gestur í þætti dagsins en hann ræðir við Gumma og Steinke um fína byrjun sinna manna á tímabilinu. Eddie Howe hefur sannað sig sem magnaður stjóri.
    Þá er farið vel yfir umferðina sem er að baki og helstu fréttapunkta í kringum deildina.
    1 hr 8 min
  • Enski boltinn - Hvað er að frétta hjá Leeds?
    Enska úrvalsdeildin snýr aftur um helgina en aðalmálið í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag er Leeds og Championship-deildin.
    Fjölmiðlamaðurinn Máni Pétursson er sérstakur gestur í þættinum en hann er grjótharður stuðningsmaður Leeds sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
    Farið var yfir tímabilið hingað til í Championship-deildinni og auðvitað var rætt eitthvað um ensku úrvalsdeildina líka.
    1 hr 1 min
  • Siggi Höskulds: Allir Þórsarar farnir að þrá að spila í efstu deild
    Sigurður Heiðar Höskuldsson var í gær tilkynntur sem nýr þjálfari Þórs og samdi hann til þriggja ára. Þór var í þjálfaraleit eftir að ljóst varð að Þorlákur Árnason yrði ekki áfram þjálfari liðsins.
    Siggi var síðasta árið aðstoðarþjálfari Vals en þar áður var hann þjálfari Leiknis og gerði góða hluti þar.
    Hann er staddur í Belgíu og var því í símaviðtali. Hann ræðir áhuga Þórs á sér, tengingu fjölskyldunnar norður árið hjá Val, samanburður milli Þórs og Leiknis, aðkomu landsliðsfyrirliðans og ýmislegt annað.
    17 min
  • Tiltalið: Arnór Gauti Ragnarsson mætti aftur og fór yfir sumarið
    Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar er leikmaður Aftureldingar Arnór Gauti Ragnarsson en hann fer yfir tímabilið og við fáum stutt 'recap' á sumrinu frá honum.
    0 min
  • Innkastið - Gylfasýning gladdi og Van Dijk lagði hönd á plóg
    Ísland vann Liechtenstein 4-0 á Laugardalsvelli í kvöld. Innkastið gerir upp Gylfasýninguna og býr sig undir umspilið í mars á næsta ári.
    Elvar Geir, Sæbjörn Steinke, Guðmundur Aðalsteinn og Sverrir Örn í Thule stúdíóinu.
    Einnig er rætt um fréttir úr íslenska boltanum, meðal annars þjálfaramál Haugesund og KR.
    1 hr 7 min
  • Útvarpsþátturinn - Landsliðið, Hannes, Haugesund og slúður
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 14. október. Umsjónarmenn: Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur er Hannes Þór Halldórsson fyrrum landsliðsmarkvörður.
    Landsleikur Íslands og Lúxemborgar er gerður upp, rætt um endurkomu Gylfa og einkunnagjöf leikmanna skoðuð. Hannes ræðir um landsliðið og nýja sjónvarpsþætti um ÍA sem fara af stað á mánudaginn.
    Rætt er um íslenskt slúður og þjálfarakapalinn. Jörgen Freyr Ólafsson er í beinni frá Haugesundi.
    1 hr 48 min
  • Tiltalið: Hallgrímur Jónasson
    Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er ekki leikmaður heldur þjálfari Bestu deildarliðs KA, Hallgrímur Jónasson. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
    1 hr 26 min