Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Júlli Magg: Símtal sem breytti golfhringnum
    Norska félagið Fredrikstad verður með lið í efstu deild Noregs á næsta tímabili í fyrsta sinn síðan 2012. Liðið er í toppsæti norsku B-deildarinnar þegar fjórar umferðir eru eftir og sex stigum frá því að tryggja efsta sætið.
    Með liðinu leikur Víkingurinn Júlíus Magnússon sem fenginn var fyrir tímabilið. Júlíus er í landsliðsverkefni þessa dagana og var hann fenginn í viðtal um landsliðið, tímabilið með Fredrikstad og Víking.
    Júlíus fór meðal annars yfir fjarveru sína frá landsliðsæfingu dagsins, landsliðskallið fyrir síðasta verkefni, velgengni Fredrikstad, hvernig það kom til að hann hefur borið fyrirliðabandið hjá liðinu í haust og hvernig það var að fylgjast með Víkingum í sumar.
    28 min
  • Ástríðan - Uppgjör í 3. deild
    Sverrir Mar og Gylfi Tryggva fengu góða gesti þegar þeir gerðu upp tímabilið í 2.deild.
    Kristófer Páll (Reynir S) og Ingvi Rafn (Kormákur/Hvöt) voru gestir þáttarins.
    Lið Ársins, leikmaður ársins, efnilegastur og besti þjálfarinn.
    Allt í samstarfi við Unbroken, Preppbarinn, Bola Léttöl, JakoSport og ICE níkótínlausra púða.
    1 hr 58 min
  • Enski boltinn - Fætur á jörðinni og McSósan til bjargar
    Hallur Flosason, fyrrum leikmaður Aftureldingar og ÍA, er gestur í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag.
    Gummi og Steinke eru auðvitað á sínum stað.
    Hallur er mikill Arsenal maður og var að vonum ánægður með sigur sinna manna í stórleiknum gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í gær.
    Einnig var rætt um aðra leiki helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni og aðeins farið í Championship-deildina líka.
    49 min
  • Innkastið - Jarðarför í kyrrþey og Óskar farinn
    Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars í Innkastinu eftir 22. umferð Bestu deildarinnar.
    Eyjamenn eru fallnir niður í Lengjudeildina, Fylkir kláraði þetta með stæl, Fram fékk ljótan skell sem hjálpar ekki Ragga Sig, Kjartan Henry með hnífasettið og Víkingur og Stjarnan í stuði.
    54:00 KAFLA SEM VAR BÆTT VIÐ! Strax eftir upptöku var tilkynnt að Óskar Hrafn væri hættur með Breiðablik. Það var ekki hægt að setja þáttinn í loftið án þess að ræða það!
    Hvernig verður byrjunarlið landsliðsins?
    1 hr 5 min
  • Útvarpsþátturinn - Besta lokahófið, lokaumferðin og Stefán Teitur
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 7. október. Elvar Geir, Benedikt Bóas og Valur Gunnars.
    Fotbolti.net heldur lokahóf Bestu deildarinnar. Val á liði ársins, þjálfara ársins, leikmanni ársins, besta unga leikmanninum og besta dómaranum opinberað.
    Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar og hitað upp fyrir lokaleikina í Bestu deildinni, auk þess sem Stefán Teitur Þórðarson er á línunni. Stefán Teitur skoraði hina fullkomnu þrennu gegn Íslendingaliðinu Lyngby .
    1 hr 46 min
  • Heimavöllurinn: Besta lokapartýið!
    Besta deildin 2023 kláraðist í gærkvöldi og nú er komið að því að gera sumarið upp. Elíza Gígja og Guðmundur Aðalsteinn mæta á Heimavöllinn og fara yfir sumarið ásamt Mist Rúnarsdóttur - Í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.
    1 hr 34 min
  • Ástríðan - Uppgjör í 2. deild
    Sverrir Mar og Gylfi Tryggva fengu góða gesti þegar þeir gerðu upp tímabilið í 2.deild.Bragi Karl (ÍR) og Tómas Þórðarson (Dalvík) gestir þáttarins.Lið Ársins, leikmaður ársins, efnilegastur og besti þjálfarinn.Allt í samstarfi við Unbroken, Preppbarinn, Bola Léttöl, JakoSport og ICE níkótínlausra púða.
    1 hr 33 min
  • Tiltalið: Ívar Örn Árnason
    Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður KA -  Ívar Örn Árnason. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
    2 hr 20 min
  • Innkastið - Vesturbæjarvonir og Vestradraumar
    Evrópubaráttunni í Bestu deildinni er lokið en lífsbaráttu laugardagur er framundan. Lið ársins í Lengjudeildinni er opinberað, Vestri vann 50 milljóna króna leikinn og þjálfaraskipti verða hjá KR.
    Elvar Geir, Baldvin Borgars og Sölvi Haralds gera upp helgina og skoða öll helstu tíðindin úr íslenska boltanum í Innkastinu.
    1 hr 36 min
  • Ungstirnin - Íslandsvinur og ungir Framarar bjarga hlutunum
    Nýjasti þátturinn af Ungstirnunum er kominn út; þátturinn sem kynnir fyrir þjóðinni næstu stórstjörnur fótboltans. Þáttastjórnendur eru þeir Arnar Laufdal og Bjarni Þór Hafstein.
    Í þessum þætti kynna þeir til leiks Carlos Forbs (2004) sem seldur var til Ajax í sumar frá Man City eftir ótrúleg ár í akademíu þeirra bláklæddu. Fjallað er um Desire Doue (2005) en hann er næsta stórstjarna Rennes í frönsku úrvalsdeildinni líkt og Eduardo Camavinga var á sínum tíma.
    Viktor Djukanovic, Íslandsvinur (2004) er einnig kynntur til leiks en hann spilaði gegn Breiðabliki árið 2022 með Buducnost frá Svartfjallalandi, Óskar Hrafn þjálfari Blika minntist einmitt á að hann væri besti leikmaður liðsins fyrir einvígið en Djukanovic er að gera ótrúlega hluti fyrir Hammarby í Svíþjóð þessa dagana í sænsku úrvalsdeildinni.
    Mikið var um að ræða í Skandinavíuhorninu góða, ungir Framarar að gera geggjaða hluti, Benóný Breki með hnífana á lofti, Hákon Arnar mun fá tíma til að láta ljós sitt skína hjá Lille og hversu nettur er Bjarki Steinn í Venezia? Og svo margt margt fleira.
    1 hr 25 min