Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    7th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Latest release

    Today

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

All Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - Toppuðu sig í fáránleikanum
    Það átti sér stað ótrúlegur dómaraskandall í ensku úrvalsdeildinni um liðna helgi þegar Tottenham tók á móti Liverpool.
    Enn ein afsökunarbeiðnin fylgdi í kjölfarið.
    Kristján Atli Ragnarsson, stuðningsmaður Liverpool, mætti í Thule-stúdíóið á skrifstofu Fótbolta.net og gerði málið vel upp ásamt Guðmundi Aðalsteini Ásgeirssyni og Elvari Geir Magnússyni.
    Einnig var farið yfir aðra leiki í umferðinni en það litu dagsins ljós mjög óvænt úrslit.
    1 hr 7 min
  • Útvarpsþátturinn - La Masia í Garðabæ og norsk falleinkunn
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpsformi þessa vikuna.
    Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke gera upp fimmtudagsumferðina í Bestu deildinni. Stjarnan er á barmi þess að ná Evrópusæti og útlitið er orðið svart í Vestmannaeyjum.
    Þá er rætt um 50 milljóna króna leikinn, landsliðið og fleira.
    1 hr 10 min
  • Heimavöllurinn: Þrjú stig og ljótur skellur
    Landsliðið okkar sigraði Wales en fékk svo skell gegn Þýskalandi í fyrstu leikjum sínum í Þjóðadeildinni. Íþróttafréttamaðurinn Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og þjálfarinn Óskar Smári Haraldsson mæta á Heimavöllinn og gera leikina upp og spá í spilin. Þátturinn er í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.
    1 hr 5 min
  • Enski boltinn - Meintur fíll og of sniðugur Arteta
    Þeir Jóhann Skúli Jónsson og Sverrir Mar Smárason eru þekktir þáttarstjórnendur, en þeir létu vel af stjórn í þætti dagsins.
    Sæbjörn Steinke fékk þáttarstjórnanda Draumaliðsins og Svona var sumarið annars vegar og þáttarstjórnanda Ástríðunnar hins vegar til að gera upp 6. umferðina í ensku úrvalsdeildinni.
    Jonny Evans henti upp sýningu á Turf Moor, jafntefli í Norður-Lundúna slagnum, meistararnir halda áfram að vinna, Liverpool heldur áfram að elta og hvenær mun Brighton fara hiksta? Er Mikel Arteta að reyna vera of sniðugur?
    1 hr 3 min
  • Útvarpsþátturinn - Flottir Evrópu-Blikar og Herra Víkingur
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 23. september.
    Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars fara yfir það helsta í íslenska boltanum og gera upp Evrópuleik Breiðabliks.
    Langleikjahæsti Víkingurinn, Halldór Smári Sigurðsson, er gestur og gefur skemmtilega innsýn inn í meistaralið Víkings.
    Þá er Kristján Atli sérfræðingur þáttarins um enska boltann á línunni. Vandræði Man Utd, byrjun Liverpool og Lundúnaslagurinn koma við sögu. Einnig er rætt um Íslendingaliðið Lyngby.
    1 hr 47 min
  • Leiðin á Laugardalsvöll - Hitað upp með þjálfurunum
    Á morgun fara fram undanúrslitin í Fótbolti.net bikarnum. Fjögur lið berjast þá um tvö pláss í úrslitaleiknum sjálfum sem fram fer á Laugardalsvellinum.
    Í undanúrslitunum mætast Víðir og KFG annars vegar og KFA og KFG hins vegar.
    Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og Sæbjörn Þór Steinke heyrðu í dag í þjálfurunum fjórum sem stýra liðunum sem eftir eru í keppninni. Staðan var tekin fyrir morgundaginn.
    36 min
  • Innkastið - Nýr Maggiball og mestu skemmtikraftar Bestu
    Umspil Lengjudeildarinnar er fyrsta mál á dagskrá í Innkastinu. Elvar Geir, Baldvin Borgars og Sölvi Haralds fara yfir fyrri undanúrslitaleikina.
    Þá er Besta deildin einnig tekin fyrir. Fram fékk stig í Kórnum og KR náði að fresta Íslandsmeistarafögnuði Víkings. Þá er rætt um mestu skemmtikrafta deildarinnar.
    Einnig kemur Fótbolti.net bikarinn og 2. deildin við sögu
    1 hr 12 min
  • Enski boltinn - Farið að hitna undir Ten Hag?
    Gummi og Steinke fengu góðan gest í Thule-stúdíóið á mánudagskvöldi því sjálfur Nablinn, Andri Már Eggertsson, mætti til þess að fara yfir enska boltann.
    Mikið er rætt um Manchester United en það er dökkt ský yfir Old Trafford þessa stundina.
    Er farið að hitna undir Erik ten Hag?
    Farið er yfir alla umferðina en það er ansi áhugaverð umferð að baki í enska.
    1 hr 29 min