Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo g... more
FAQs about Fram og til baka:How many episodes does Fram og til baka have?The podcast currently has 427 episodes available.
May 17, 2025Fram og til baka í Eurovisionborginni BaselÞáttur dagsins er alveg helgaður Eurovision Song Contest sem haldin er í Basel í kvöld en þar munu Væb bræður og dansarar þeirra stíga á svið ásamt 25 öðrum atriðum. Felix er hluti af íslenska teyminu og veitir hlustendum innsýn inn í Eurovision tyggjókúluna og spilar ný og gömul Eurovision og Söngvakeppnislög...more1h 50minPlay
May 10, 2025Matti og Áslaug eru foreldrar Væb bræðraFimma dagsins var óvenjuleg því í fyrsta sinn var par í fimmunni. Þetta voru hjónin Áslaug Helga Hálfdánardóttir og Mattías V Baldursson (Matti Sax) en þau eru stödd í Basel í Sviss þessa dagana til að fylgja sonum sínum og Væb bræðrum Matthíasi og Hálfdáni í Eurovision. Hjónin sögðu okkur af fimm tónlistarstefnum sem hafa markað líf þeirra og talið barst víða, t.d um hljómsveitirnar Sveindóm og Klamidíu X og starfið í kirkjunni. Einnig sögðu þau hlustendum frá þrautagöngu og baráttu Matthíasar yngri við illvígan sjúkdóm sem dró hann næstum til dauða....more1h 50minPlay
May 03, 2025Gísli Magna og áhrifamiklir staðirGísli Magna tónlistarmaður er kórstjóri Léttsveitarinnar sem heldur upp á þrjátíu ára afmæli um þessar mundir og kom af því tilefni í fimmu. Gísli talaði um fimm staði sem hafa haft áhrif á hann og talið barst víða en Gísli ólst upp til fimm ára aldurs á Patreksfirði...more2h 2minPlay
April 26, 2025Staðir og fólk Elfu Lilju GísladótturGestur Felix í fimmunni var Elfa Lilja Gísladóttir tónlistarkennari og frumkvöðull í barnamenningu. Hún sagði af fimm stöðum sem hafa haft áhrif á líf hennar og auðvitað kom fólkið á þessum stöðum við sögu...more1h 50minPlay
April 24, 2025Gleðilegt sumar!Fram og til baka fagnar sumardeginum fyrsta með langri útgáfu á Rás 2. Gestur í fimmunni er Fanney Benjamínsdóttir verkefnastjóri hjá Bókmenntahátíð í Reykjavík en hún segir af fimm borgum sem höfðu áhrif á líf hennar. Svo kemur Flosi Jón Ófeigsson í heimsókn og við skoðum bestu Eurovisionlög ársins en Alla leið byrjar í sjónvarpinu á laugardaginn. Að lokum er það svo sumardrengurinn Sigurður Þór Óskarsson en hann hefur sagt skilið við leikhúsið og við spyrjum - hvað ertu eiginlega að gera? svo er auðvitað sumartónlistin í aðalhlutverki....more4h 17minPlay
April 12, 2025Eliza Reid og lærdómur síðustu áraEliza Reid hefur marga hatta og er nú að senda frá sér sína fyrstu skáldsögu, Diplómati deyr. Hún kom í fimmuna og sagði okkur af fimm atriðum sem hún lærði þegar hún gegndi hlutverki forsetafrúar í átta ár. Svo kíktum við á það sem gerðist á þessum góða degi, 12. apríl....more1h 50minPlay
April 05, 2025Marína Ósk átti ömmu sem hét HaflínaSöngkonan Marína Ósk Þórólfsdóttir hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin á dögunum fyrir jazzsöng. Hún er gestur Felix í Fram og til baka og segir af fimm augnablikum þar sem kviknaði á ljósaperu og lífið tók aðra stefnu. Lífið hefur leitt Marínu frá Suðurnesjum til Akureyrar og Amsterdam og nú inn í Mál og menningu á Laugarvegi þar sem hún syngur fyrir gesti og gangandi mörg kvöld í viku. í fyrri hluta þáttarins verður dagurinn, 5. apríl, skoðaður í tali og tónlist....more1h 50minPlay
March 29, 2025Pétur Thomsen, myndlistarmaður ársinsMyndlistarmaður ársins kom í fimmu en það er Pétur Thomsen ljósmyndari. Pétur talaði um fimm staði sem hafa haft áhrif á líf hans og þar kom Álftanesið við sögu, Arles í Frakklandi, Kárahnjúkar og Djúpifjörður og svo Sólheimar í Grímsnesi. Listin var til umræðu en líka pólitík, popp og prestskapur...more1h 50minPlay
March 22, 2025Steinn Jóhannsson og bestu kennararnirNýráðinn sviðsstjóri Skóla og frístundasviðs Reykjavíkurborgar Steinn Jóhannsson sagði frá fimm kennurum sem hafa haft áhrif á líf hans en þeir voru Tryggvi Skjaldarson Þykkvabæ, Una Steinþórsdóttir FÁ, Þorlákur Karlsson HÍ, Perry Jones Louisiana og Svava Grönfeldt í HR....more1h 50minPlay
March 15, 2025Guðrún Gunnarsdóttir og fimm eyjarSöng og fjölmiðlakonan Guðrún Gunnarsdóttir hefur sungið sig inn í hjörtu þjóðarinnar og er nú að senda frá sér nýtt lag og blása til tónleika. Af því tilefni var hún gestur Felix í fimmunni og talaði um fimm eyjar sem hafa haft áhrif á líf hennar. Eyjarnar eru Vestmannaeyjar, Hrísey, Krít, Soloye og Eldey....more1h 50minPlay
FAQs about Fram og til baka:How many episodes does Fram og til baka have?The podcast currently has 427 episodes available.