Í fyrsta þætti um skrímslin frá New York, rapp-hljómsveitina Beastie Boys, kynnumst við sögusviðinu: New York undir lok áttunda áratugarins þegar ný tónlistartegund var að fæðast í Bronx hverfinu, rapp og hip hop tónlist. Beastie Boys voru í byrjun pönk- og harðkjarnatónlist en ákváðu að breyta um stíl og færa sig yfir í rapptónlist. Þegar fyrst breiðskífan kemur út, Licensed to Ill, árið 1986, slá Beastie Boys í gegn, sem fyrsta hvíta rappsveitin; þeir eru ungir og áhrifagjarnir menn. Þeir fara í risastóra tónleika ferð, öðlast heimsfrægð og verða þekktir sem miklir og kjaftforir ólátabelgir.