Spænska veikin varð fimmtíu til hundrað milljónum að bana þegar hún reið yfir heimsbyggðina fyrir hundrað árum. Saga veikinnar á Íslandi er rakin í tveimur þáttum. Seinni þátturinn fjallar um hörmungarnar á mörgum þéttbýlisstöðum þegar meirihluti íbúa veiktist og margir dóu, hvernig Reykjavík breyttist í draugabæ og fjöldagrafir voru teknar í kirkjugarðinum við Suðurgötu. Sagðar eru sögur af fólki sem lifði og fólki sem dó og hvernig landsmenn brugðust við.
Viðmælendur: Soffía Jónsdóttir, úr sjónvarpsþáttunum Spænska veikin frá 1998, Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðingur, Magnús Gottfreðsson læknir, Magdalena Oddsdóttir, úr sjónvarpsþáttunum Spænska veikin frá árinu 1998, Erla Doris Halldórsdóttir, sagnfræðingur og hjúkrunarfræðingur, Kolbrún Þorvaldsdóttir, og Sigurður Tómasson bóndi, úr útvarpsviðtali sem var sent út árið 1973.
Umsjón: Brynjólfur Þór Guðmundsson.
Tæknimaður: Úlfhildur Eysteinsdóttir.