Frjálsar hendur

Frjálsar hendur

Download on the App Store
  • Favorites

    74

    Followers

  • Latest release

    6 days ago

  • Typical duration

    50 min

    per episode

  • If it hooks

    64%

    finish an episode

Based on Podcast App listening data

All Frjálsar hendur episodes

  • Ódysseifskviða 11 - Í höll hinnar göldróttu Kirku
    Hér segir áfram frá tilraunum Ódysseifs og manna hans til þess að komast heimleiðis. Nú liggur leiðin meðal annars til eyjar þar sem hin mjög svo viðsjála Kirka býr og reynist félögum Ódysseifs mjög þung í skauti en hann reynir að snúa vörn í sókn með hjálp sendiguðsins Hermesar.
    51 min
  • Jósef á Svarfhóli 1
    Jósef Björnsson (1878-1964) var lengst af bóndi á Svarfhóli í Borgarfirði. Hann var sveitastólpi mikill en í bókinni Æskustöðvar (1954) fjallaði hann fyrst og fremst um foreldra sína og æskuárin. Í þessum þætti lýsir hann foreldrum sínum bæði fallega og hispurslaust.
    51 min
  • Skjaldbökur, sporðdrekar og furðulegt fólk
    Enski náttúrufræðingurinn og rithöfundurinn Gerald Durrell (1925-1995) skrifaði æskuminningar um undir nafninu Fjölskylda mín og fleiri dýr. Þar lýsir hann á bráðskemmtilegan hátt lífi fjölskyldu sinnar á grísku eyjunni Korfu er hann var 10 ára. Þar koma dýr mjög við sögu en einnig litríkt mannlíf, því mjög gestkvæmt var hjá fjölskyldunni.
    50 min
  • 40 ára afmælisþáttur: Hvað ef ...?
    Þessi þáttur er fluttur um það bil sem 40 ár eru frá því fyrsti þáttur Frjálsra handa var sendur út. Sá þáttur fjallaði um "hið sögulega ef" - það er að segja hvað hefði breyst ef einhver tiltekin smáatriði í sögunni hefðu farið öðruvísi en þau fóru. Í tilefni dagsins verður fjallað um sama efnið í þessum þætti og sér í lag hvað hefði breyst ef valdarán kommúnista í Rússlandi 1917 hefði misheppnast.
    51 min
  • Þýskur kafbátur birtist á ytri höfninni
    19. september 1939 birtist þýskur kafbátur óforvarandis á ytri höfninni í Reykjavík. Síðari heimsstyrjöldin var þá nýhafin og þýskir kafbátar farnir að láta að sér kveða á hafinu. Það sem Íslendingar vissu ekki þá var að skipverjar einmitt þessa báts höfðu nýlega framið einn fyrsta stríðsglæp stríðs, og kafbátaforinginn átti síðan eftir verða örlagavaldur í stríðinu.
    50 min
  • Ódysseifskviða 10 - Viðureign við Kýklópa
    Nú dregur heldur betur til tíðinda í Ódysseifskviðu því nú verður lesin ein allra frægasta frásögn kviðunnar, það er að segja þegar Ódysseifur og félagar hans lenda í klóm hinna eineygðu risa sem Kýklópar kallast.
    51 min
  • Hvað þáði krisintómurinn frá trúarbrögðum Persa 3
    Þetta er framhald af tveimur þáttum um páska þar sem fjallað var um trúarbrögð sem spámaðurinn Zaraþústra í Baktríu stóð á bak við um árið 1200 fyrir upphaf tímatals okkar. Persar tóku þessi trúarbrögð upp á sína arma og þegar þeir lögðu undir sig Babýlon á 6. öld FT höfðu þau djúp og varanleg áhrif á trúarbrögð Gyðinga sem þangað höfðu verið herleiddir.
    50 min
  • Séra Halldór Jónsson á Kleppi
    Halldór Jónsson (1873-1953) var prestur að Reynifelli og tónskáld. Á efri árum veiktist hann á geði og þurfti að leggjast inn á geðspítalann Klepp um tíma. Frá því sagði hann svo í æviminningabók sem út kom skömmu fyrir andlát hans og nefndi Ljósmyndir 1. Mjög sjaldgæft var að fólk talaði um þær mundir opinskátt um glímu sín við geðsjúkdóma og því er hin hispurslausa frásögn Halldórs mjög óvenjuleg.
    51 min
  • William Somerset Maugham 1 - Kirkjuþjónninn og hin opna gröf
    Líkt og umsjónarmaður hafði áður lesið úr fyrstu smásögum Edgars Allans Poes og Antons Tsékovs er birtust á íslensku, þá leitar hann nú hófanna í smásagnasöfnum Williams Somersets Maughams (1874-1965) en hann var einhver vinsælasti rithöfundur heims á fyrri hluta 19. aldar og sérlega rómaður fyrir smásögur. Hér eru tvær sögur sem eru dæmigerðar fyrir Maugham, ein fislétt skemmtisaga og önnur sem getur nöturlega mynd af þjónum breska heimsveldisins.
    50 min