Frjálsar hendur

Frjálsar hendur

Download on the App Store
  • Favorites

    74

    Followers

  • Latest release

    6 days ago

  • Typical duration

    50 min

    per episode

  • If it hooks

    64%

    finish an episode

Based on Podcast App listening data

All Frjálsar hendur episodes

  • Trippa-Sigga 2: Lífið í Reykjavík
    Öðru sinni er borið niður í ævisögu Jónu Sigríðar Jónsdóttur (1899-1997) sem jafnan var frá fullorðinsárum kölluð Trippa-Sigga. Nú segir frá unglingsárum hennar á Snæfellsnesi en síðan vist hennar í Reykjavík, þar sem kunni vel við sig en varð líka fyrir hinni dýpstu sorg.
    50 min
  • Ódysseifskviða 9 - Ástir á Ólympsfjalli
    Í þessum kafla Ódysseifskviðu greinir enn frá veisluhöldum sem Ódysseifur er viðstaddur í höllu Fæeka. Þar flytur blinda skáldið Demódókus meðal annars heldur blautlegt kvæði um samskipti Aresar stríðsguðs og Afródítu ástargyðju. Spurningin er hvort Demódókus sé í aðra röndina sjálfsmynd skáldsins Hómers. Síðar segir meðal annars frá hinum einkennilegu Lótusætum sem Ódysseifur og menn hans hrekjast til.
    50 min
  • Hestasögur eftir Þorgils gjallanda og Gest Pálsson
    Gunnar Theódor Eggertsson hefur komist að því að Íslendingar séu að líkindum með þeim allra fyrstu sem skrifuðu dýrasögur á ofanverðri 19. öld. Þá er ekki átt við sögur þar sem dýrin tala eða hafa mjög mannlega eiginleika, heldur er reynt að lýsa ævi þeirra frá þeirra forsendum. Hér verða lesnar tvær sögur, önnur er Heimþrá eftir Þorgils gjallanda og hin Skjóni eftir Gest Pálsson.
    59 min
  • Hvað þáði kristindómurinn frá trúarbrögðum Persa? - 2
    Framhald af síðasta þætti; hér verður athygli einkum beint að sögu ríkjanna Ísraels og Júda frá 800-586 FT, greint frá því hvað þau áttu sameiginlegt og hvað var ólíkt í trúarlegum efnum. Síðan segir frá örlögum íbúanna þegar Assyríumenn hernámu Ísrael og síðan Babýloníumenn Júda. Þá hyllir loks undir hernám Persa og þau áhrif sem þeir höfðu á trúarlíf Gyðinga.
    1 hr
  • Hvað þáði kristindómurinn frá trúarbrögðum Persa?
    Í þessum páskaþætti verður fjallað um uppruna hinna svokölluðu Zaraþústra-trúarbragða í Persíu. Þar segir frá ungum Baktríumanni sem gerbylti hugmyndum landa sinna um guðdóminn og lagði grunn að nýrri trú sem var síðan við lýði í tvö þúsund árum. Og snemma í sögu þessara trúarbragða höfðu þau mjög afdrifarík áhrif á trú Gyðinga og þar af leiðandi kristinna manna líka. Fyrri þáttur.
    50 min
  • Kropotkin fursti - 3
    Kropotkin fursti skrifaði rómaða sjálfsævisögu sem áður hefur verið gluggað í í Frjálsum höndum. Nú er hann kominn á táningsár og farinn að komast í kynni við hirðlífið í hinu feyskna ríki Romanov-keisaraættarinnar. Þrælahaldið heldur áfram að varpa skugga yfir þjóðlífið allt.
    51 min
  • Trippa Sigga 1: Uppeldi á Snæfellsnesi
    Hér er gluggað í ævisögu Jónu Sigríðar Jónsdóttur (1899-1997) sem varð svo fræg fyrir hestamennsku og hestaferðir að hún var jafnan kölluð Trippa Sigga. Hér segir þó fyrst og fremst af uppeldi hennar fram að fermingu en hún ólst upp á Snæfellsnesi og bjó við vægast sagt misjafnt atlæti í æsku. Meðal annars var henni stranglega bannað að læra landafræði.
    51 min
  • Anna á Moldnúpi, Ólafur Jóhann og Ásta vitlausa - 2
    Hér segir frá gagnrýni sem Anna á Moldnúpi ("fjósakona sem fór út í heim") setti fram á skáldsögu Ólafs Jóhanns Sigurðssonar, Fjallið og draumurinn, árið 1944. Hún taldi bókina skelfilega lýsingu á sveitalífi og höfundi ekki til sóma. Ólafur Jóhann svaraði fyrir sig fullum hálsi og Anna svaraði þá enn. Í ritdeilunni birtist ólíka afstaða þeirra til bókmennta og samfélags og kynjaviðhorf koma og við sögu.
    50 min
  • Anna á Moldnúpi, Ólafur Jóhann og Ásta vitlausa 1
    Árið 1944 gaf Ólafur Jóhann Sigurðsson út skáldsöguna Fjallið og drauminn sem hlaut yfirleitt mjög góða dóma, þótt sumir væru upp og ofan, t.d. dómur Halldórs Laxness. En ein persóna bókarinnar, niðursetningurinn Ásta vitlausa, varð sérlega umdeild enda lýsing á ævi hennar sérlega ofboðsleg. Undir lok þáttar víkur svo að alþýðukonunni Önnu frá Moldnúpi sem nánar segir af í næsta þætti.
    51 min