Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Samtal við konur um heilsu og lífið sjálft.Konur búa yfir mikilli visku og við ætlum læra af hvor annarri með því að deila sögum og reynslu af því sem lífið hefur boðið uppá. Ekki halda þetta verði ... more
FAQs about Fyrir konur- Hlaðvarp með Gurrý Torfa:How many episodes does Fyrir konur- Hlaðvarp með Gurrý Torfa have?The podcast currently has 22 episodes available.
April 12, 2025Gurrý: Skotheld ráð til ykkar sem eigið erfitt með að koma hreyfingunni í rútínu og ef mataræðið er ruglinu.Skilaboð til þeirra sem hafa ekki hreyft sig í einhvern tíma eða eru í vandræðum með mataræðið og eða bæði. Gef einföld ráð til að byrja vegferðina en oft hindrar það okkur að hefja hana því það er oft sem við höldum að við þurfum að breyta öllu í einu til að ná árangri en það er bara rangt. tvær venjur sem ætti að vera auðveldar, en gætu gert kraftaverk eða allavega betri líðan og heilsu.Stuttur þáttur sem þú ættir að hlusta á ef þetta á við þig. ...more9minPlay
April 05, 2025María Krista Hreiðarsdóttir: Um Ketó upphafið, Carnivore og allan drifkraftinn.Það var svo gaman að spjalla við Kristu um upphafið af KristaKetó vinsældunum á instagram þar sem hún deilir með okkur ýmsu um mataræðið en hún er á Carnivore með hennar útfærslu, framkvæmdum heima fyrir og ýmsu öðru. Ótrúlega hvetjandi hún Krista með einlægri framkomu og það besta er að hún kemur bara dyranna nákvæmlega eins og hún er klædd. Það er best að hlusta á þáttinn og fá smá innblástur í lífið. ...more49minPlay
March 29, 2025Gurrý: Þrjú mjög hagnýt ráð til að gera lífið betra og einfaldara.Í þessum þætti fer ég yfir þrjú hagnýt ráð eða leiðir sem hafa hjálpað mér mikið að líða betur og einfalda líf mitt. Þessi ráð koma frá mínum frábæru yogakennurum og yoganáminu mínu hjá Kristbjörgu Elí. 1: Gera daglegt skipulag, hér erum við að skipuleggja svefn, matmálstima, hreyfinguna og það sem við þurfum að gera á hverjum degi. Skyldur okkar í vinnu og gagnvart fjölskyldu en líka fyrir okkur sjálfar.2: Ekki taka hlutum eða orðum perónulega án þess að skoða á ég þetta eða er hugurinn minn að rugla í mér núna. Þurfti virkilega að læra þetta og fékk harða kennslu í gegnum td. Biggest Loser og fjölmiðlaumfjöllun í kringum það allt. Góður skóli Takk fyrir það :)3: Þurfum ekki að hafa skoðanir á öllu eða hlusta á fólk með skoðanir á hlutum sem þau hafa ekki hundvit á. Þvílíkt frelsi að sleppa þessu bara. ...more19minPlay
March 22, 2025Inga Kristjánsdóttir: Allt um prótein, hvað gera þau fyrir okkur, hvaða prótein eigum við að velja og hvað þurfum við mikið.Inga Kristjánsdóttir næringarþerapisti er algjör snillingur í öllu varðandi mataræðið og það sem er best að útskýra á einfaldan og gagnlegan hátt fyrir okkur. Við ræðum um:Prótein og hvað þau gera fyrir okkur konur.Hvaða prótein eigum við að velja úr mat.Inga útskýrir próteinduft, mismunandi tegundir og hvað ber að varast.Hvað við þurfum mikið af próteinum á dag.Gagnlegt fyrir allar konur sem vilja bæta eigin heilsu og vera meira upplýstar....more42minPlay
March 15, 2025Særún Lúðvíksdóttir: Um Ölla, son hennar sem lést 18 ára gamall, sorgina sem fylgir því að missa barn og Minningarsjóð Ölla sem hún stofnaði.Særún Lúðvíksdóttir er ein af mínum uppáhalds konum en hún æfði hjá mér í mörg ár og við kynntumst vel, en hún steig upp og hjálpaði mér á erfiðum tímum í rekstri líkamsræktarstöðvar sem ég rak Yama Heilsurækt og fyrir það verð ég henni alltaf þakklát. Særún segir okkur frá sjálfri sér sem ung einstæð móðir í Keflavík og Njarðvík með tvo syni, Örlyg Aron Sturluson og Elvar Sturluson. Örlygur var alltaf kallaður Ölli og var vel þekktur íþróttamaður fyrir hans einstöku hæfileika í körfubolta. Ölli var einungis 18 ára gamall þegar hann lést. Á þessum tíma var Særún með þriggja mánaða gamalt barn. Særún segir okkur frá því hvernig það er að missa barnið sitt og læra lifa með því en hún segir sjálf að það sé lífstíðardómur að missa barn og hún jafni sig aldrei en hafi lært að lifa með sorginni.Árið 2013 stofnaði Særún Minningarsjóð Ölla: Minningarsjóður Ölla - Forsíða en sjóðurinn styrkir börn til íþróttaiðkunar sem eiga ekki kost á því vegna bágrar fjárhagsstöðu foreldra eða aðstandenda. Sjóðurinn heldur minningu Ölla á lofti með kærleika og stuðningi til þessara barna. ...more1h 7minPlay
March 08, 2025Auður Harpa og Dagbjört Pálsdóttir: Um dating lífið og samskiptin við hitt kynið.Fórum yfir spurningar frá hlustendum sem voru flestar um dating lífið og samskipti við hitt kynið. ...more45minPlay
March 01, 2025Dagbjört Pálsdóttir: Um lífið eftir skilnað.Dæja vinkona mín er ein skemmtilegasta kona sem ég þekki. Í þessum þætti ræðum við um vináttuna sem styrktist svo mikið þegar við fórum á sama tíma í gegnum skilnað og hvernig við fórum í gegnum þetta og vandamálin sem við þurftum að takast á við. ...more47minPlay
February 21, 2025Inga næringaþerapisti um bætiefni fyrir heilsuna.Ræddum um bætiefnin, hvað þarf að taka og er nauðsynlegt að taka inn bætiefni. Það sem við fórum yfir:Þessi fimm frænku: Magnesíum, omega 3, gerla, D-vítamín og fjölvítamín.Bætiefni fyrir streituna: B-vítamín, magnesíum og fleiriBætiefni fyrir líkamsræktina: Kreatín og Glutamine.Bætiefni fyrir breytingaskeiðið. ...more39minPlay
February 15, 2025Helga Björk Jónsdóttir: Um hugrekkið til að skipta um skoðun í lífinu.Helga Björk er góð vinkona mín og við spjöllum um að það má skipta um skoðun hvað maður ætlar að verða þegar maður er orðin stór, og ræddum stórt skref sem hún tók þegar hún fór í meðferð á Vogi og eftirmeðferð á Vík. ...more1h 7minPlay
February 08, 2025Auður Harpa: Stefnumóta lífið og að finna mojo-ið sitt afturAuður Harpa og Gurrý ræða um stefnumóta lífið og hvernig það er að missa mojo-ið sitt og finna það aftur á miðjum aldri. ...more1hPlay
FAQs about Fyrir konur- Hlaðvarp með Gurrý Torfa:How many episodes does Fyrir konur- Hlaðvarp með Gurrý Torfa have?The podcast currently has 22 episodes available.