Gímaldið

Gímaldið

By GímaldiðNews
Download on the App Store

Gímaldið episodes

  • Birgir Ármannsson tekur til máls um fundarstjórn forseta

    Hvaða herr­um þjón­ar for­seti Al­þing­is og hver ræður dagskrá þingsins í raun og veru? Hvernig býr meirihlutinn sig undir málþóf og hvernig heldur forseti sönsum þegar allt verður vitlaust? Þess­um spurn­ing­um og mörg­um öðr­um svar­ar Birg­ir Ár­manns­son, fyrr­ver­andi þing­for­seti í við­tali um leikja­fræð­ina á Al­þing­i.

    44 min
  • Þjálfuð til að berjast gegn eigin þjóð: Þórdís Kolbrún segir frá skipulögðum barnsránum

    Þór­dís Kol­brún R. Gylfa­dótt­ir ræð­ir skipu­lögð barns­rán Rússa í Úkra­ín­u; Um börn­in sem num­in hafa ver­ið á brott og eru rænd upp­runa sín­um með heila­þvott­i, hvern­ig unn­ið er að end­ur­heimt þeirra og hvern­ig Evr­ópa og al­þjóða­sam­fé­lag­ið geti og eigi að bregð­ast við.

    Gímaldið er áskriftarmiðill. Þú getur gerst áskrifandi hér 

    33 min
  • Sirkabát #15: Skoðanakannanir

    Rík þörf er á umræðu um gæði þeirra skoðanakannana sem birtast víða í opinberri umræðu. Þetta segir Ólafur Þór Gylfason, sviðstjóri markaðarannsókna hjá Maskínu, en hann settist niður með þáttastjórnendum Sirkabát og ræddi um úrtaksrannsóknir hér á landi og erlendis og þær breytingar sem hafa átt sér stað á undanförnum áratugum. Hann segir sérstöðu Íslands í þessum efnum að hverfa og ræðir áskoranir sem því fylgja.
    Þátturinn er opinn á helstu hlaðvarpsveitum. Sirkabát er hlaðvarp sem rýnir í tölur að baki fréttum og er gefið út af Gímaldinu.
    Gímaldið er áskriftarmiðill. Hægt er að styðja við bakið á þáttagerð Sirkabát með því að gerast áskrifandi hér.  

    27 min
  • Pawel Bartoszek: Stuðningsfólk ESB geti lært af baráttunni gegn Brexit

    Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar, ræðir Evrópumálin, sigursögu Póllands og Brexit. Hann telur óttann við að glata fullveldinu í viðskiptabandalögum fela í sér minnimáttarkennd. Öflug fullvalda ríki innan ESB beri vott um hið gagnstæða. Pawel segist ekki kvíða umræðu næstu mánaða. Ísland sé rótgróið lýðræðisríki og þjóðin eigi sér langa og ríka umræðuhefð. 


    Aðalheiður Ámundadóttir ræðir við Pawel Bartoszek.

    Gímaldið er áskriftarmiðill. Hver einasta áskrift skiptir okkur máli.
    Áskriftarvefur Gímaldsins

    20 min
  • Davíð Þorláksson: Það verður engin sátt um Borgarlínu fyrr en hún byrjar að virka

    Davíð Þorláksson segist sjaldan heyra nýja spurningu eða hugmynd sem tengist Borgarlínunni. Vangaveltur og ýmis konar gagnrýni sem fram komi um Borgarlínuna sé almennt eitthvað sem hafi fyrir löngu verið svarað. Hann segir eðlilegt að fólk spyrji spurninga og það sé líka eðlilegt að verkefnið sé ekki endilega sérlega vinsælt. Innviðaverkefni, af þeirri stærðargráðu sem Borgarlínan er, njóti almennt ekki hylli fyrr en fólk sjái þau virka. Davíð hefur verið framkvæmdastjóri Betri samgangna undanfarin fimm ár en nýverið var hann ráðinn í starf framkvæmdastjóra Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins, sem er nýtt félag utan um rekstur Strætó og Borgarlínunnar þegar þar að kemur. 
    „Það verður sátt um verkefnið þegar að fyrsta lotan er komin og byrjuð að virka og fólk sér áhrifin sem að þetta mun hafa. Ég geri mér engar væntingar um að það verði einhver mikil víðtæk sátt um þetta fyrr en að það gerist,“ segir Davíð í viðtali við Gímaldið um Borgarlínuna, nýtt skipulag almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu og umræðuna um verkefnið.
     
    Eyrún Magnúsdóttir ræðir við hann. Davíð Þór Guðlaugsson tók myndir.

    Gímaldið er áskriftarmiðill. Hver einasta áskrift skiptir okkur máli.
    Áskriftarsíða Gímaldsins

    32 min
  • Sirkabát #14: Hvað er verðbólga eiginlega að mæla?

    Í janúar 2026 uppfærði Hagstofan flokkunarkerfi vísitölu neysluverðs yfir í alþjóðlegan staðal sem nefnist COICOP 2018. En hvað þýðir það eiginlega – og hvernig er verðbólga mæld? Ásta Jenný Sigurðardóttir, teymisstjóri vísitölu neysluverðs á Hagstofunni, útskýrir hvernig neyslunni er skipt í flokka og hvaðan vogir mismunandi útgjaldaliða koma.


    Ef þú sérð tölu í fréttum og vilt vita meira, sendu okkur línu á [email protected].

    26 min
  • Sálfræðilegi samningurinn á íslenskum fjölmiðlamarkaði

    Þorsteinn Hjálmsson ræðir meistaraverkefni sitt í mannauðsstjórnun við HÍ: „Nei, en ég vinn á Ríkisútvarpinu. Það eru hinir sem eiga erfiðara.“ Upplifun blaða- og fréttamanna á sálfræðilega samningnum. 
    Þorsteinn segir að samningurinn sé sterkur í faginu en hann mótist á ólíkan hátt eftir því hvort blaðamennirnir starfa á RÚV eða einkareknum fjölmiðlum.  

    27 min
  • Bókapressan: Anna Lea Friðriksdóttir nýr formaður FÍBÚT

    Bækur hafa alltaf verið stór þáttur í lífi Önnu Leu Friðriksdóttur sem nýverið var kjörin formaður Félags íslenskra bókaútgefenda fyrst kvenna.

    „Við vitum það að bóklestur fer minnkandi. Það er mest rætt um börnin og þeirra bóklestur. En ég held að yngstu börnin séu í raun meiri fyrirmyndir fyrir fullorðna heldur en fullorðnir fyrir börnin,“ segir Anna Lea í viðtali við Bókapressuna. Hún segir að fullorðna fólki megi gjarnan skoða eigin bóklestur en ekki alltaf bara einblína á börnin. 

    Gímaldið gefur út Bókapressuna, hlaðvarp um bækur og allt sem þeim tengist.
    Það má alltaf hafa samband við okkur með því að senda póst á [email protected].
    Við minnum á að Gímaldið er áskriftarmiðill. Hver einasta áskrift skiptir okkur máli    

    20 min

About Gímaldið

From the publisher's feed

Hlaðvarp Gímaldsins 🧡 Gímaldið er fréttatengdur fjölmiðill í áskrift. Við birtum greiningar og fréttaskýringar og gefum út þætti um samfélag, stjórnmál og menningu. Vertu með okkur í að lýsa upp…