Gímaldið

Gímaldið

By GímaldiðNews
Download on the App Store

Gímaldið episodes

  • Sirkabát #9: Hugtökin hægri og vinstri sveiflast eftir deilumálum stjórnmála hverju sinni

    Hvað þýðir það að vera hægri- eða vinstrisinnuð í stjórnmálum? Viktor Orri Valgarðsson, doktor í stjórnmálafræði, útskýrir uppruna hugtakanna og hvernig merking þeirra  breytist eftir tímabilum, löndum og deilumálum í stjórnmálum hverju sinni.

    Sirkabát er hlaðvarp sem Gímaldið gefur út. Í þáttunum er rýnt á bak við fréttir, gjarnan í tölfræði eða annað sem er til þess fallið að dýpka umræðuna.

    Gímaldið er fjölmiðill í áskrift – þú getur stutt við okkur með því að kaupa áskrift og fengið þannig aðgang að öllu efni Gímaldsins. 
    Hver áskrift skiptir máli.
       

    27 min
  • Ingibjörg Isaksen kallar eftir samvinnu þvert á flokka í málefnum barna

    Í við­tali við Gímald­ið fer Ingi­björg Isaksen þingflokksformaður Framsóknarflokksins yf­ir stöðu ­flokks­ins, fram­tíð­ar­sýn sína fyr­ir flokk­inn og póli­tík­ina í þing­in­u. Ingibjörg hefur lýst yfir framboði til formanns flokksins. Sigurður Ingi Jóhannsson hættir sem formaður á flokksþingi Framsóknarflokksins í febrúar. 

    Ingibjörg seg­ir í viðtalinu að tæki­færi fel­ist í tóma­rúm­inu á vinstri væng stjórn­mál­anna. „Ef við horf­um á þetta póli­tíska lit­róf sjá­um við að flokk­ar sem eru hægra meg­in eru komn­ir tölu­vert langt til hægri eins og Mið­flokk­ur­inn sem er stofn­að­ur í raun­inni út frá Fram­sókn. Hann er kom­inn jafn­vel hægra meg­in við Sjálf­stæð­is­flokk­inn í ein­hverj­um mál­u­m,“ seg­ir Ingi­björg og bæt­ir við: „Við er­um ekki alltaf þar. Við er­um frek­ar að leita til vinstri. Við sjá­um það bara í raun­inni í alls kon­ar mál­um þeg­ar kem­ur að til dæm­is inn­flytj­enda­mál­u­m.“

    Und­an­farn­ar vik­ur hef­ur ver­ið beð­ið eft­ir yf­ir­lýs­ing­um frá Will­um Þór Þórs­syni og Lilju Al­freðs­dótt­ur um for­manns­fram­boð en Ingi­björg hef­ur nú brot­ið ís­inn og er fyrst til að til­kynna fram­boð til for­manns.

    Gímaldið er nýr fjölmiðill í áskrift.
    Áskriftir gera okkur kleift að vinna að því að byggja upp fjölmiðil sem lýsir upp samfélagið.
    Gerast áskrifandi að Gímaldinu.

    25 min
  • Nágrannar: Óskeikult ráð að vera bara næs

    Nágrannar er nýtt hlaðvarp úr smiðju Gímaldsins sem Erla Hlynsdóttir stýrir.

    Við ætlum að fjalla um nágranna frá ýmsum hliðum. Við eigum öll nágranna. Þeir búa í búsinu við hliðina á okkur, í íbúðinni fyrir neðan okkur eða uppi á næstu hæð. Sumum nágrönnum kynnumst við en öðrum ekki. Við kynnumst broti af lífi nágranna okkar og þeir broti af okkar.

    Guðríður Haraldsdóttir er viðmælandi fyrsta þáttar. Hún segir það óskeikult ráð að vera bara næs við nágranna og bjóða góðan daginn á ganginum. Hún segir meðal annars frá því þegar sérsveitin bankaði upp á hjá henni til að fá að síga niður á næstu svalir.

    Gímaldið er nýr fjölmiðill í áskrift. Við viljum halda áfram að stunda blaðamennsku, birta áhugavert efni, lýsa upp samfélagið. Þú getur tekið þátt með því að gerast áskrifandi. Þú getur líka lagt til frjálst framlag. Farðu inn á gimaldid.is og veldu að vera með í að halda samfélaginu upplýstu. 

    33 min
  • Einhverf Barbie og ósýnilegu stelpurnar

    Einhverf Barbie er ekki bara dúkka heldur tákn um sýnileika og viðurkenningu í heimi þar sem stelpur með einhverfu hafa lengi verið ósýnilegar.

    Erla Hlynsdóttir fjallar um einhverfa Barbie-dúkku sem er nýkomin á markað. 

    Pistillinn birtist á áskriftamiðlinum Gímaldinu.

    Þú getur verið með í að styðja við Gímaldið með því að kaupa áskrift eða leggja til frjálst framlag. 

    8 min
  • Þjóðfélagið þarf að geta bognað án þess að brotna – Víðir Reynisson í viðtali um nýja stefnu í öryggis- og varnarmálum

    Þing­mað­ur­inn Víð­ir Reyn­is­son hef­ur víð­tæka reynslu á sviði al­manna­varna og þjóðar­ör­ygg­is. Aðalheiður Ámundadóttir blaðamaður ræð­ir við hann um við­bún­að á Ís­landi ef til stríðs­á­taka kæmi og um nýja stefnu utanríkisráðherra í ör­ygg­is-­ og varn­ar­mál­u­m.

    Víð­ir starf­aði við al­manna­varn­ir í rúma tvo ára­tugi áð­ur en hann tók sæti á þing­i, síð­ast sem sviðs­stjóri al­manna­varna hjá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra. Þá hef­ur hann set­ið í al­manna­varna­nefnd ESB og ver­ið for­mað­ur vinnu­hóps EFTA um al­manna­varn­ir ásamt því að hafa set­ið í fjölda nefnda og ráða hins op­in­bera um al­manna­varn­ir og ör­ygg­is­mál.

    Víð­ir bend­ir á að þeg­ar fyrstu al­manna­varna­lög voru sett hér á landi ár­ið 1962 hafi þau nær al­far­ið ver­ið mið­uð út frá hern­að­arógn fyrstu ár­in, enda hafi Kalda stríð­ið, Kúbu­deil­an og kjarn­orkuógn ver­ið hluti af veru­leika þess tíma. Það hafi ekki ver­ið fyrr en ár­ið 1967 að kafli um nátt­úru­ham­far­ir var tek­inn inn í lög­in, en mest hef­ur reynt á þann hluta und­an­farna ára­tug­i. „En það er al­veg ljóst að síð­ustu miss­er­in hef­ur orð­ið gjör­breyt­ing á því hvern­ig við þurf­um að hugsa þetta og það hef­ur ver­ið reynt að end­ur­spegla það í sam­starfi stofn­ana og skipu­lagi mála. Þessi stefna á að vera veg­vís­ir í því hvern­ig við höld­um áfram með þau verk­efni og jafn­vel tök­um upp ný sem, sem end­ur­spegl­ar bara þá þörf okk­ar að geta brugð­ist við mis­mun­andi að­stöðu í heim­in­um hverju sinn­i.“

    Þau ræða meðal annars um áfallaþol en Víðir segir að best sé að skýra það út með líkingu við málm. Þjóðfélagið þurfi að þola áföll að því marki að þau geti bognað án þess að brotna.

    Umfjöllun Gímaldsins um öryggis- og varnarmálastefnu má finna á gimaldid.is.
    Gímaldið er nýr fjölmiðill í áskrift.
    Áskriftir gera okkur kleift að vinna að því að byggja upp fjölmiðil sem lýsir upp samfélagið.
    Gerast áskrifandi að Gímaldinu. 

    35 min
  • Sirkabát #8: Greindu Betur

    Ár hvert safnast 14-19 ára ungmenni saman og rýna í tölur og gögn í keppninni Greindu betur. Keppnin hefur vaxið mikið frá því hún hófst árið 2021. 

    Keppninni er skipt upp í tvo aldursflokka eftir námsstigi og keppnisefnið er sniðið að getu hvers flokks. Tilgangurinn er að efla upplýsingalæsi grunn- og  framhaldsskólanema. 

    Kristín Ingvarsdóttir og Arndís Vilhjálmsdóttir hjá Hagstofunni ræða um keppnina í nýjasta þættinum af Sirkabát. 

    22 min
  • Tala ársins 2025

    Hver er tala ársins 2025?

    Sirkabát rýnir í tölur ársins með gestum þáttarins. Tölur ársins segja margar og ólíkar sögur. Sirkabát fékk nokkra einstaklinga til að rýna í árið, velja sína uppáhalds tölu og deila með hlustendum. 

    Arndís Vilhjálmsdóttir, teymisstjóri notendaþjónustu hjá Hagstofunni
    Emil Dagsson, doktorsnemi í hagfræði við Háskóla Íslands og starfsmaður deildar rannóknar og spár hjá Seðlabanka Íslands
    Kolbeinn Stefánsson, félagsfræðingur og dósent við félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands
    Ingvar Örn Ákason, verkefnastjóri Handboltapassa  HSÍ
    Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði við Miðstöð í lýðheilsuvísindum
    Hafsteinn Einarsson, nýdoktor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands
    Eyrún Magnúsdóttir, blaðamaður og stofnandi Gímaldsins
    Karen Kjartansdóttir, samskiptafulltrúi á Veðurstofunni

    Þáttastjórnendur eru Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson

    42 min
  • Sirkabát - Þáttur 6

    Hvað er margar mismunandi tegundir af jólabjórum til sölu í ríkinu? Í þessum jólaþætti Sirkabát taka þáttastjórnendur sér fyrir hendur að greina þróun á sölu og breytingum á úrvali á jólabjór seldur er í verslunum ÁTVR.


    Umsjón: Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson.

    16 min
  • Heillaður af bókum – Einar Kári Jóhannsson ritstjóri

    Í Bókapressunni fáum við innsýn inn í heim ritstjóra bóka í desember, en Einar Kári Jóhannsson hjá Benedikt bókaútgáfu er í viðtali við Erlu Hlynsdóttur. Fáar bækur hafa hreyft eins mikið við honum og bókin „Beðið eftir barbörunum“ – Waiting for the Barbarians eftir J. M. Coetzee.
    Starfsfólk bókaútgáfa þarf að ganga í flest störf í desember. Bókaútgefendur eru eins og á hlaupabretti í desember við að halda öllu gangandi og tryggja að bækur berist í búðir, segir Einar meðal annars í viðtalinu.

    Þú getur tryggt þér áskirft að Gímaldinu hér

    28 min
  • Sirkabát - Þáttur 5

    Er jólamaturinn dýrari í ár en í fyrra? Þáttastjórnendur Sirkabát útbjuggu sína eigin jólamatarkörfu og reiknuðu út vísitölu jólaveisluverðs. 


    Umsjón: Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson.

    17 min

About Gímaldið

From the publisher's feed

Hlaðvarp Gímaldsins 🧡 Gímaldið er fréttatengdur fjölmiðill í áskrift. Við birtum greiningar og fréttaskýringar og gefum út þætti um samfélag, stjórnmál og menningu. Vertu með okkur í að lýsa upp…