Gímaldið

Gímaldið

By GímaldiðNews
Download on the App Store

Gímaldið episodes

  • Þolinmóðasti flokkur landsins bíður færis

    Framsóknarflokkurinn hlaut verstu kosningu í sögu flokksins í síðustu alþingiskosningum og er frekar vansæll í sinni stjórnarandstöðu. Formannskosningar eru framundan og flokkurinn vinnur að því að finna sína fótfestu á pólitíska litrófinu að nýju.
    Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir ræða um Framsóknarflokkinn, en Gímaldið birtir ítarlegar greiningu á stöðu flokksins og rýnir í möguleika hans til framtíðar með Ólafi Þ. Harðarsyni.
    Hér geta áskrifendur lesið greiningu Gímaldsins á Framsóknarflokknum. 


    30 min
  • Sirkabát - Þáttur 2

    Í öðrum þætti Sirkabát ræða Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson við þau Ara Klæng Jónsson, doktor í félags- og lýðfræði og Jóhönnu Gunnarsdóttur, forstöðumann fræðasviðs á fæðinga- og kvenlækningasviði. 
    Þýðir hækkandi meðalaldur kvenna þegar þær eignast fyrsta barn endilega að frjósemi minnki? Hvað þýðir það að frjósemi sé minni meðal erlenda kvenna en íslenskra? Þessum spurningum og fleirum er velt upp með sérfræðingunum

    29 min
  • Sirkabát - Þáttur 1

    Í Sirkabát skoða Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson tölur úr fréttum og þjóðfélagsumræðunni og spyrja sig: Er umræðan rétt? Er hún röng? Eða svona sirkabát?

    Í fyrsta þættinum skoða þeir tölur Hagstofu Íslands um frjósemi kvenna á Íslandi. Hvað þýðir það þegar Hagstofan segir að frjósemi var 1,56 árið 2024? Hvernig hefur þetta breyst með árunum? Hefur breytt samsetning þjóðarinnar undanfarinn áratug áhrif á þessa mælingu?

    18 min
  • Beðið eftir Guðlaugi og Sanna heimilislaus

    Oddvitarnir og flokkarnir í borginni

    Und­ir­bún­ing­ur fyr­ir val á lista fyr­ir kosn­ing­ar til sveitar­stjórna er nú í full­um gangi hjá flokk­un­um. Það hef­ur gu­stað um marga odd­vita í Reykja­vík­ur­borg á kjör­tíma­bil­inu og þótt flest­ir þeirra vilji gefa kost á sér aft­ur er all­ur gang­ur á því hvort flokks­fé­lag­ar þeirra vilji veita þeim braut­ar­geng­i.

    Samkvæmt samantekt Gímaldsins má ætla að farnar verði fjölbreyttar leiðir við val á lista; leiðtogakjör, prófkjör, uppstilling og röðun í flokksráðum. Þessar leiðir og fleiri eru til umræðu í flokkunum.

    Hjá Sjálfstæðisflokki bíða margir eftir ákvörðun Guðlaugs Þórs um hvort hann fer í leiðtogaslag við Hildi Björnsdóttur. Sanna Magdalena Mörtudóttir oddviti Sósíalista á ekki heima í sínum flokki og útilokar framboð fyrir hann en vill halda áfram í borginni. Því hefur verið velt upp hvort hún fari fram sem óháð, jafnvel með Samfylkingunni. 

    Aðalheiður Ámundadóttir og Eyrún Magnúsdóttir rýna í stöðuna í borginni.

    27 min
  • Bókapressan - Þáttur 2

    Annar þáttur Bókapressunnar er kominn í loftið. Auður Jónsdóttir og Kristján Hafþórsson fá til sín Tómas Hermannsson útgefanda hjá Sögum. Hann hefur staðið að útgáfu ótal bóka um fótbolta og körfubolta, svo eitthvað sé nefnt, og segir skipta máli að börn fái bækur sem þeim þyki gaman að lesa og veki hjá þeim áhuga. 

    47 min
  • Gímaldið - 5. nóvember 2025

    Zohran Mamdani er nýr borgarstjóri í New York. Hverju breytir kjör hans fyrir Demókrata og bandarísk stjórnmál? Aðalheiður Ámundadóttir og Eyrún Magnúsdóttir ræða þessa nýjustu stjörnu bandarískra stjórnmála, viðspyrnuna gagnvart Trumpismanum og skoða hvaða áhrif þessar sviptingar vestra hafa á íslenska pólitík. 

    33 min
  • Bókapressan - þáttur 1

    Gímaldið kynnir fyrsta bókaþáttinn. Hann heitir Bókapressan og umsjónarmenn eru þau Auður Jónsdóttir og Kristján Hafþórsson. Gestur þáttarins er enginn annar en Árni Helgason sem nýverið gaf út bókina Aftenging. 

    43 min

About Gímaldið

From the publisher's feed

Hlaðvarp Gímaldsins 🧡 Gímaldið er fréttatengdur fjölmiðill í áskrift. Við birtum greiningar og fréttaskýringar og gefum út þætti um samfélag, stjórnmál og menningu. Vertu með okkur í að lýsa upp…