Handball Special

Handball Special

By Handball SpecialNewsSports News
Download on the App Store

Handball Special episodes

  • #6 Kristján Arason

    Ein helsta handboltahetja þjóðarinnar og einn sá allra besti! Goðsögn í Kaplakrika og titlaóður með stærstu liðum heims á sínum leikmannaferli. Spilar m.a. með FH, Gummersbach í Þýskalandi og ofurliði TEKA á Spáni og var einn stærsti hlekkurinn í sigri Íslands í B-keppninni í Frakklandi. Einn besti leikmaður heims á sínum tíma og gæti líklega bundið saman hvaða vörn sem er enn þann dag í dag. Þjálfaði í Þýskalandi og yngri landslið Íslands ásamt því að vinna alla titla sem eru í boði á Íslandi sem þjálfari FH... Handboltagoðsögnin úr Hafnarfirði... Kristján Arason!


    Í boði NOCCO- NETGÍRÓ
    Ægir Brugghús & Ölhúsið

    1 hr 50 min
  • #5 Einar Hólmgeirsson

    Grjótkastarinn úr Breiðholtinu! Einar Hólmgeirsson sló í gegn með ÍR í byrjun aldarinnar þegar hann beyglaði markstangir, reif netin og hamraði hverri sleggjunni á fætur annarri í markið. Hann hélt áfram að negla boltanum á 400km hraða í Þýskalandi og með landsliðinu en fékk einnig allt of vænan skerf af hinum ýmsu meiðslum. Hann nennir engu veseni, var vakin af Alexander Petterson á óhugnalegan hátt og var rotaður í loftinu í leik... og það var allt Ásgeiri Erni að kenna! Þekktur fyrir sín þrumuskot... Einar Hólmgeirsson!


    Í boði NOCCO- Ægir Brugghús & Ölhúsið

    1 hr 17 min
  • #4 Atli Rúnar Steinþórsson

    Atli Rúnar Steinþórsson hefur spilað með flestum liðum landsins þó að hann kvitti nú helst undir það að vera Valsari. Hann hef hætt oftar en hann hefur byrjað í handbolta og nú síðast náði hann einum leik í deildinni áður en hann sleit hásin. Grjótharður gæji af gamla skólanum sem tuskaðist til á línunni og skilaði alltaf góðu framlagi í sókninnni en lét aðra um það að spila vörn. Hann á Íslandsmeistaratitla með þremur félögum ásamt því að sigra næst efstu deild og henti þýskri goðsögn í gólfið í einhverjum töffaraskap í æfingaferð í Þýskalandi.

    Valur-Afturelding-Grótta-FH-Stjarnan ásamt nokkrum titlum í bumbubolta... Einn af Stálmúsum handboltans!

    Í boði NOCCO- Ægir Brugghús & Ölhúsið

    1 hr 27 min
  • #3 Sigurður Eggertsson

    Gleðigjafinn sjálfur er engum líkur! Hann spilaði með flestum Reykjavíkurfélögunum, vann titla, spilaði meiddur með landsliðinu á EM, fékk undarlegar hótanir í aðdraganda þáttarins og þolir ekki dani af því að þeir þykjast ekki skilja hann. Reifst við Dag Sigurðsson, elskar Roland Eradze og breytti um lífssýn eftir að "Bavú" gekk til liðs við Val. Þetta er þáttur sem engin má missa af!!

    Í boði NOCCO- Ægir Brugghús & Ölhúsið

    1 hr 41 min
  • #2 Vignir Svavarsson

    Ljónið af Ásvöllum, Herra Haukar, Vignir LePier.

    Var upphaflega miðjumaður en villtist inná línuna sem borgaði sig svo sannarlega.
    234 landsleikir, hæðir og lægðir í atvinnumennskunni, brons með íslenska landsliðinu á EM og merkilega margir skrautlegir liðsfélagar í gegnum tíðina. Alexander Shamkuts-Holger Glandorf og tékkneskt gerpi sem bindur saman vörnina... Hans orð-ekki mín!
    Í boði NOCCO- Ægir Brugghús & Ölhúsið

    1 hr 14 min
  • #1 Sigurgeir Árni Ægisson

    Handboltahetjan úr Kaplakrikanum, groundaður af læknisráði, fyrirliði, íslandsmeistari, atvinnumennskan og landsliðið og svo auðvitað OASIS hárgreiðslan!

    Í boði NOCCO- Ægir Brugghús & Ölhúsið

    1 hr 3 min

About Handball Special

From the publisher's feed

Tryggvi Rafns hittir gamlar kempur sem fara létt yfir ferilinn, velja uppáhalds liðsfélagana og rifja upp skemmtilegar sögur.