
Sign up to save your podcasts
Or


Út á rúmsjó um borð í einum flottasta togara íslenska skipaflotans, Sigurði VE nýtur lífsins Bikaróður Eyjamaður. Hornamaður sem spilaði allan sinn feril með bandalaginu, fann lykt af titlum og safnaði þeim að sér í massavís. Upplifði hæðir og lægðir með ÍBV og tók stóra slagi sem formaður deildarinnar eftir að ferlinum lauk. Einstaklega skemmtilegar sögur frá þessum mikla meistara, fyrirgefðu ferðin til Kanarí, Aron Pálmarsson og Duranona til Eyja og margt margt fleira... Bikaróður Eyjamaður, alltaf hress og alltaf glaður... Grétar Þór Eyþórsson
Hreinræktaður Eyjamaður í húð og hár! Hann blæðir fyrir bandalagið og vill hvergi annarstaðar vera en á Eyjunni fögru. Hann spilaði allan sinn feril með ÍBV fyrir utan eitt tímabil og steig ölduna með félaginu sínu í miklum brotsjó þegar stóð jafnvel til að leggja handboltadeildina niður. Hann er einn af þeim sem byggði starfið aftur upp, gaf líf og sál í klúbbinn og byggði grunn að handbolta stórveldinu sem nú ríkir í Eyjum! Frábær leikmaður með stórkostlega yfirsýn yfir völlinn þrátt fyrir að vera aðeins með eitt auga. Hinn eini sanni gleðigjafi... Sigurður Bragason... Siggi Braga
Einn sá allra skemmtilegasti, vinsælasti og einn sá allra skotfastasti leikmaður sem við Íslendingar höfum átt.
Hinn eini sanni... Sigurður Valur Sveinsson
Oft kallaður Forrest Gump handboltans og kemur úr Hafnarfirðinum, hann á litríkan og áhugaverðan feril að baki og er í dag einn helsti handboltaspekingur þjóðarinnar. Hóf ferilinn í FH en eftir að hafa hætt nokkrum sinnum sló hann íslandsmet í gerð "come back" samninga með KR, Fjölni, Gróttu og að sjálfsögðu stórveldi ÍH. Einn af þeim sem allir vilja þekkja... með andlit fyrir sjónvarp og rödd fyrir útvarp... vöðvatröllið Teddi Ponza.
Hann byrjaði ekki að æfa handbolta fyrr en hann var 16 ára og tveimur árum seinna var hann komin í landsliðshóp Íslands. Algert náttúrutalent og einn sá besti í heimi í sinni stöðu, enda spilaði hann með heimsliðinu í handbolta. Mikill leiðtogi sem þolir ekkert annað en að vinna og vera bestur! Víkingur og Afturelding eru liðin sem standa honum næst en ásamt því að spila með Drammen í Noregi þá endaði hann ferilinn mjög óvænt 42 ára gamall með Fimleikafélagi Hafnarfjarðar.
Einn af sonum Selfoss og núverandi þjálfari. Það fór ekki alltaf mikið fyrir honum en hann safnaði titlum með Haukum áður en hann færði sig til Þýskalands og síðar til pólska stórliðsins Kielce. Fyrsti Íslendingurinn til þess að spila sem atvinnumaður í Póllandi, á að baki mjög farsælan feril með landsliðinu... Vítaskytta og alltaf fremstur í hraðarupphlaupum... Þórir Ólafsson gjörið svo vel
Stálmúsin eins og hann er kallaður er einn af þeim sem spilaði eingöngu með svokölluðum gullaldarliðum. Eftir að hafa alist upp í Mosfellsbænum og svo spilað með öflugu liði KR þá náði hann sér í medalíur og bikara þegar hann vann m.a. þrennuna með FH 1992 og svo aftur með Aftureldingu 1999. Grjótharður hornamaður sem að átti það til að skella sér fyrir utan og negla boltanum í netið úr skyttustöðunni. Einn af þeim allra skemmtilegustu... Sigurður Stálmús Sveinsson
Tíkallinn, Spinner, fagmaður og dómari... Einn af gullaldarliði Hauka í Hafnarfirðinum.
Hann á frekar óvenjulegan feril sem hófst í Breiðholtinu og ferðaðist með hann á óvenjulega staði í handbolta. Hann liggur alls ekki á skoðunum sínum og hefur hátt þar sem hann fer! ÍR-ingur inn að beini og þjálfar í dag meistaraflokk félagsins ásamt því að hafa staðið að stofnun leikmannasamtaka Íslands. Það þurfti alls ekkert að draga orðin upp úr þessum snilling þar sem sjáfstraustið er í botni og sögurnar skemmtilegar eftir virkilega flottan og áhugaverðan feril.
Garðbæingur í húð og hár og er líka býsna hár. Einn af þeim sem að gat neglt á markið þannig að það brotnaði en besti vinur hans þoldi ekki að spila við hliðina á honum í horninu á sama tíma. Atvinnumennska og landsliðaferill og að sjálfsögðu rússneskir hermenn í Stjörnunni. Gegnheill og góður Stjörnumaður, brennur fyrir félagið sitt og handboltann og eins og sannur Garðbæingur er hann með gervigras í garðinum heima hjá sér... Eðalmaðurinn og einn sá besti úr Garðabæ.... Vilhjálmur Halldórsson!
From the publisher's feed