Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp helgina í handboltanum á Íslandi og erlendis.
Stiven Tobar farinn að æfa með Valsmönnum en fær hann samning?
Valur farnir til Evrópu og FH einnig í eldlínunni í vikunni.
Bræðurnir skildu jafnir og fóru heim með sitthvort stigið.
ÍR eru svo gott sem komnir upp úr Grill 66 deildinni eins og Afturelding kvenna megin.
Mun frammistaða Björgvins Páls í deildinni skipta einhverju máli um valið í lokahóp landsliðsins í desember?
Natasja Hammer mætti á völlinn 15 dögum eftir fæðingu.
HK með risa sigur gegn Gróttu.
Bikarkeppnin fer af stað hjá stelpunum í vikunni en Haukar og Valur sitja hjá.
Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.