Handkastið

Handkastið

By HandkastiðSports
Download on the App Store

All Handkastið episodes

  • Þjálfarabreytingar í Krikanum og samningarlausir Íslendingar
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp síðustu dagana í handboltanum.
    Það stefnir allt í að það verði þjálfarabreytingar í Krikanum þar sem Aron Pálmarsson gæti verið næsti þjálfari karlaliðsins.
    Valsmenn eru byrjaðir að styrkja sig.
    Íslendingar í Kolstad á leiðinni heim?
    Elín Klara og Einar Bragi að gera það gott í Svíþjóð.
    Hvar enda Bjarki Már og Stiven Tobar?
    Hvað eru heitustu take Stymma og Kidda fyrir næsta tímabil?
    Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
    56 min
  • Egyptaland sigrað og hver er framtíð Handboltapassans?
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi mættu í Rapyd stúdí´ó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum.
    Landsliðið gerði góða ferð til Egyptalands og sigraði heimamenn í tveim æfingarleikjum.
    Yngri flokkarnir kláruðust um helgina með handboltaveislu í Kaplakrika.
    Hafa niðurstöður kosninganna áhrif á þj´álfaramál ÍR?
    Óvænt úrslit í undankeppni HM.
    Skuldir HSÍ og hvað ætlum við að gera með Handboltapassan?
    Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
    51 min
  • Til hamingju Valur og þjálfarakapallinn fer að leysast
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé komu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp síðustu daga í handboltanum hér heima og erlendis.
    Til hamingju Valskonur með Íslandsmeistaratitilinn.
    Landsliðið spilar 2 æfingaleiki við Egypta í vikunni í beinni á Rúv
    Afturelding og Selfoss eiga eftir að ráða þjálfara fyrir næsta tímabil en það ætti að fara að skýrast.
    Búið að draga í undanúrslit í Meistaradeild karla.
    Ársþingið enn og aftur til umræðu.
    Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
    1 hr 13 min
  • ÍBV svara fyrir sig og fyrsta ótímabær spáin
    Stymmi Klippari, Davíð Már Kristinsson og Ásgeir Gunnarsson mættu í Rapyd stúdíó-ið og ræddu handboltann undanfarna daga.
    ÍBV gerðu sér lítið fyrir og pökkuðu Val saman í leik þrjú hjá þeim.
    Þórsarar halda áfram að styrkja sig fyrir átökin á næsta ári.
    Ársþing HSÍ fór fram um helgina og nóg að ræða þaðan.
    Fyrsta ótímabæra spá næsta tímabils leit dagsins ljós.
    Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
    55 min
  • Valur Íslandsmeistari eftir frábært úrslitaeinvígi
    Stymmi Klippari, Geiri Sly og Alli Eyjólfs mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp úrslitaeinvígi karla og kvenna.
    Valur er Íslandsmeistari eftir eins marks sigur á FH á Hlíðarenda.
    Er verið að sprengja konfetti á vitlausum tímapunktum í leikjum?
    Ársþing hjá HSÍ framundan og verður spennandi að sjá hvaða breytingar verða.
    Læti í Vestmannaeyjum og umgjörðin ekki nógu góð?
    Final 4 er klárt og Álaborg eru einu nýliðarnir.
    Þetta og svo miklu miklu í nýjasta þætti Handkastsins.
    1 hr 9 min
  • Allt undir á fimmtudaginn og ÍBV fengu ekki neyðarlán
    Stymmi Klippari, Kiddi Bjé og Sigurjón Friðbjörn mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum.
    Það var stórkostlegur leikur í Kaplakrika í kvöld og orðið ljóst að við förum alla leið í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn.
    Thea Imani er á leið í atvinnumennsku.
    Það ræðst í vikunni hvaða lið leika til úrslita í Meistaradeild Evrópu.
    Handboltaþingið er um helgina og nokkrar breytingartillögur til umræðu.
    Valur er komið í 1-0 gegn ÍBV í einvígi þeirra um titilinn.
    Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
    1 hr 22 min
  • Ræðst einvígið í næsta leik og tveir oddaleikir framundan
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Benni Grétars gerðu upp helgina í handboltanum á Íslandi og erlendis.
    FH svaraði fyrir sig í einvíginu gegn Val og allt er orðið jafnt.
    Ræðst einvígið í næsta leik á Hlíðarenda og er pressan komin yfir á Val?
    Þurfum að Haukar að fara sjóleiðina í oddaleikinn gegn ÍBV?
    Stjarnan og Grótta mætast í oddaleik en það er vonlaust að spá fyrir um sigurvegara í því eftir síðustu leiki liðanna.
    Meistaradeildin fer aftur af stað í vikunni og Final 4 er undir.
    Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
    1 hr 5 min
  • Hiti innan og utan vallar og djók rautt spjald er Valur vann FH
    Það hefur verið mikill hiti innan og utan vallar í Þjóðaríþróttinni síðustu sólarhringa en Handkastið gerir upp það helsta í þessum þætti. Valur leiðir í úrslitaeinvíginu gegn FH 1-0 eftir sigur á heimavelli þar sem Jóni Bjarna Ólafssyni var vikið upp í stúku af dómurum leiksins - sem ekki allir virðast sammála um.
    1 hr 8 min