Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp síðustu dagana í handboltanum.
Það stefnir allt í að það verði þjálfarabreytingar í Krikanum þar sem Aron Pálmarsson gæti verið næsti þjálfari karlaliðsins.
Valsmenn eru byrjaðir að styrkja sig.
Íslendingar í Kolstad á leiðinni heim?
Elín Klara og Einar Bragi að gera það gott í Svíþjóð.
Hvar enda Bjarki Már og Stiven Tobar?
Hvað eru heitustu take Stymma og Kidda fyrir næsta tímabil?
Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.