Handkastið

Handkastið

By HandkastiðSports
Download on the App Store

All Handkastið episodes

  • Æfingaleikjabragur í tapi gegn Svíum og Selfoss og Stjarnan berjast fyrir lífi sínu
    Stymmi Klippari, Geiri Sly og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerði upp vikuna í handboltanum.
    Íslenska landsliðið tapaði gegn Svíum 33-35 í æfingarleik.
    Teitur eru draumur þjálfarans.
    Reynir Þorsteinn Leó of mikið þegar hann fær sénsinn?
    Handboltaþing fer fram um helgina.
    Stjarnan voru rændar marki á mikilvægu augnabliki.
    Verður fjölgað í 10 lið í Olís deild kvenna á næsta ári?
    Hvaða lið fellur um helgina?
    þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
    1 hr 5 min
  • Valskonur deildarmeistarar og Víkingar í deild þeirra bestu
    Stymmi Klippari, Geiri Gunn og Davíð Már mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum.
    Víkingar eru komnir í deild þeirra bestu en ná þeir að halda sæti sínu á næsta ári?
    Spennandi umspil framundan um sæti í Olís deildinni á næsta tímabili.
    Valskonur tryggðu sér deildarmeistaratitilinn þrátt fyrir mikil meiðsli í herbúðum þeirra.
    Stjarnan er komin í botnsætið eftir tap gegn Selfoss.
    Lið ársins í Olís deild karla er klárt
    Olís deild kvenna klárast í vikunni með tveim umferðum.
    Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
    1 hr 3 min
  • Valur deildarmeistari, sumarfrí á önnur lið og rosalega úrslitakeppni framundan
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp lokaumferðina í Olís deild karla.
    Valur eru deildarmeistarar eftir harða baráttu við FH.
    ÍR hafa kvatt deild þeirra bestu og leika í Grill 66 deildinni á næsta ári.
    Stjarnan er á leið í umspil.
    Frábærir leikir í 8 liða úrslitum sem hefjast 25.mars.
    Stelpurnar spila um helgina og rosalegur botnbaráttuleikur á Selfossi.
    Nú fer allt að gerast í Meistaradeild Evrópu!
    Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
    1 hr 22 min
  • Mest spennandi lokaumferð í manna minnum á fimmtudaginn
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Rapyd stúdíóið og gerðu upp næst síðustu umferð Olís deildar karla.
    Það eru öll lið að spila um eitthvað á fimmtudaginn?
    Tekst Þór að komast í úrslitakeppnina?
    Bjargar ÍR sér frá falli?
    Ná ÍBV að skemma deildarmeistarapartýið fyrir Val?
    Stelpurnar Okkar spiluðu vel í 43 mínútur í Svartfjallalandi en svo varð algjört hrun á leik þeirra.
    Snorri Steinn búinn að velja landsliðshópinn og enn á ný sjáum við nýjan þriðja markmann.
    Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
    1 hr 2 min
  • ÍR gæti fallið í sófanum og hverjir ætla að vinna deildina?
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gunnar Valur mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp 20.umferð Olís deildarinnar.
    Afturelding kastaði frá sér möguleika á sigri gegn FH á lokasekúndnum leiksins.
    Settu ÍBV og ÍR markamet í Vestmannaeyjum?
    Það vill ekkert lið lenda á móti Fram í úrslitakeppninni.
    Falla ÍR í sófanum á morgun þegar Stjarnan tekur á móti KA?
    Frábær sigur íslensku stelpnanna gegn Svartfellingum en hvar eru örvhentu stelpurnar okkar?
    Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
    1 hr 19 min
  • Aukakastið - Ásbjörn Friðriksson
    Ásbjörn Friðriksson er nýjasti gestur Aukakastsins þar sem Stymmi Klippari og Kiddi Bjé fá til sín handboltafólk og gerir upp feril þess allt frá fyrstu æfingu.
    Ási eins og hann er oftast kallaður fer yfir uppvaxtarárin á Akureyri, árin í atvinnumennsku og hvort þau hefði getað verið fleiri og tíma sinn í FH.
    Skemmtileg ferðalög sem hann fór í með FH gegnum árin eins og þegar þeir flugu til Rússland eingöngu til að taka fimm víti í evrópukeppninni.
    Það er óhætt að mæla með hlustun á þennan frábæra þátt fyrir allt handboltaáhugafólk en Ási kemur með marga frábæra punkta sem ungir iðkendur ættu að tileinka sér sem vilja ná lagt í boltnaum.
    1 hr 29 min
  • Lygileg spenna - Bikarvika framundan og ótrúlegar samsæriskenningar
    Sérfræðingurinn settist í Rapyd stúdíóið með þeim Benedikt Grétarssyni og Davíð Má Kristinssyni. Farið var yfir málin í Olís-deildum karla og kvenna þegar þrjár umferðir eru eftir í báðum deildum. Söguleg spenna er í deildunum báðum og allt getur gerst. Ofan í það þá er bikarvika framundan þar sem krýndir verða bikarmeistarar næstu helgi.
    1 hr 17 min
  • Snorri Steinn gerir upp EM!
    Snorri Steinn Guðjónsson mætti Sérfræðingnum í Rapyd Stúdíó-inu og fór yfir Evrópumótið þar sem íslenska landsliðið lauk leik í 4.sæti eftir tap gegn Króatíu í leik um bronsið.
    Farið var yfir alla leiki mótsins, tilfinningarússíbanann í milliriðlinum, meiðsli Elvars Arnar og undanúrslitahelgina í Herning.
    Snorri Steinn var spurður út í framhaldið hjá sér sem landsliðsþjálfara - framtíð íslenska handboltans og miklu meira til.
    Snorri Steinn svaraði meðal annars þeirri spurningu hver væri efnilegasti leikmaður Íslands í dag.
    1 hr 53 min