Stymmi Klippari, Geiri Gunn og Davíð Már mættu í Rapyd stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í handboltanum.
Víkingar eru komnir í deild þeirra bestu en ná þeir að halda sæti sínu á næsta ári?
Spennandi umspil framundan um sæti í Olís deildinni á næsta tímabili.
Valskonur tryggðu sér deildarmeistaratitilinn þrátt fyrir mikil meiðsli í herbúðum þeirra.
Stjarnan er komin í botnsætið eftir tap gegn Selfoss.
Lið ársins í Olís deild karla er klárt
Olís deild kvenna klárast í vikunni með tveim umferðum.
Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.