Háski

Háski

By Unnur ReginaHistory
Download on the App Store

Háski episodes

  • Ferðaháski: Davine Arkens

    Í þætti dagsins fáum við að heyra um 3 ungar konur sem áttu allar eitt sameiginlegt. Þær héldu á vit ævintýranna í Ástralíu með bakpoka á öxlunum. 

    Áhyggjur þeirra voru mestar um að verða bitnar af snák eða einhverju miður skemmtilegu skordýri. Það kom svo á daginn að það var mannfólk sem þær hefðu átt að óttast mest. 

    44 min
  • Týnd í stormi: Stolpa og Kim fjölskyldan

    Í þætti dagsins heyrum við tvær sögur af fjölskyldum sem héldu í frí en enduðu í miklum hremmingum. Hvernig lifir maður af í nístandi frosti á mannlausum stað með fimm mánaða gamalt barn með í för? Hvernig bjargar maður börnunum sínum þegar maður getur ekki bjargað sjálfum sér? Er betra að bíða og frjósa í hel eða halda út í auðnina og vonast eftir að rekast á aðra mannveru? 

    44 min
  • Þátturinn um allt sem er furðulegt

    Í þætti dagsins förum við yfir hin ýmsu mál og öll eiga þau eitt sameiginlegt : að vera furðuleg. Hvernig er hægt að fá í sig eldingu 7 sinnum á margra ára tímabili og lifa það af? Hver lifði af 33333 feta fall? Er hægt að lifa án sólarljóss? Við förum um víðan völl í þessum þætti. 

    48 min
  • Inga Illverk kemur í heimsókn

    Í þætti dagsins fáum við að heyra sögur frá þremur merkilegum konum. Þeim Teku Adams, Ellen Halbert og Mary Vincent. Þessar þrjár konur eiga það allar sameiginlegt að hafa lifað af hrottalegar árásir og notað sína rödd til að hjálpa öðrum eftirlifendum ofbeldis. 

    Inga Kristjáns þáttastjórnandi hlaðvarpsins Illverk kemur í heimsókn og segir okkur frá virkilega áhugaverðu máli. 

    1 hr 7 min
  • Eyðimerkurháski: Roger & Shirley Sargeant

    Í þætti dagsins fáum að heyra hvernig lautarferð bandarískrar fjölskyldu breyttist í helvíti. Roger og Shirley voru með dætur Shirley 9 og 5 ára gamlar í lautarferð í eyðimörk Arizona. Eyðimörkin er hættulegur staður, ekki bara vegna hversu hart umhverfið er heldur eru hættulegir einstaklingar þar á ferð um nætur. Við fáum einnig að heyra hversu ótrúleg börn eru og sögur af litlum krílum sem hafa lifað ótrúlegustu hluti af. 

    1 hr 2 min
  • April Sykes AUKAÞÁTTUR

    Í þessum aukaþætti förum við yfir sögur þeirra sem lifað hafa af tilraun til morðs. Þáttur dagsins er ekki fyrir viðkvæma. 

    42 min
  • Ricky Megee partur.1

    Að vakna í grunnri gröf er líklegast eitthvað sem enginn vill upplifa. Það gerði hinsvegar hinn Ástralski Ricky Megee, og þessi gröf var í miðjum óbyggðum á afskekktasta stað Ástralíu. 

    53 min
  • Háski á hafi: Hawley & Lundy feðgarnir

    Í þætti dagsins heyrum við sögu Hawley & Lundy feðganna, hvernig veiðiferð sem átti að efla tengsl og samskipti á milli föður og sonar breyttist í martröð. Við heyrum einnig frásagnir fólks sem lent hefur í flugslysum og köfum aðeins ofan í hvað þú getur gert til að vera sem öruggastur ef hörmungar skyllu á. 

    58 min
  • Linda Björk / Eyþór Garðarsson

    Í þætti dagsins heyrum við stutta frásögn um Lindu Björk Ólafsdóttur, lögreglukonu sem bjargaði manni úr brennandi íbúð. 

    En mál vikunnar er um hann Eyþór Garðarsson, skipverja á Svanborgu SH. Svanborg SH fórst við Svörtuloft árið 2001. En atburðirnir sem áttu sér stað þennan vetrardag, munu seint hverfa úr minni hans.

    49 min

About Háski

From the publisher's feed

Háski er podcast þáttur sem fjallar um fólk sem hefur lent í lífsháska og hvernig þeim tókst að komast í gegnum ótrúlegar aðstæður. Mannshugurinn og líkaminn er magnað fyrirbæri og lygilegt hvað…