Hefnendurnir

Hefnendurnir

Download on the App Store

Hefnendurnir episodes

  • Hefnendurnir 50 - Shades Of Vei!
    Hefnendurnir fagna fimmtugsafmælinu með extra löngum þætti þar sem Hulkleikur og Ævorman ræða um pavlóvur Schrödingers, geimveruglannaskap og miðaldra laugardagsgrínista áður en söngkonan og kynjapælarinn Anna Tara Andrésdóttir mætir í heimsókn til að hirta þá og fræða um leyndardóma skuggana fimmtíu.
    1 hr 49 min
  • Hefnendurnir 49 - Diplómatísk friðhelgi
    Hefnendurnir hefna um gramm af Kanye, Marvelös lóafréttir og ris og fall Júpiters áður en þeir kynna til sögunnar nýjan dagskrárlið, spjalla um spjallþáttastjórnanda og kommenta á kommentakerfi. Hulkleikur lætur þó síðan ekki Berlínarútlegð sína stöðva sig og sendir angurvært sendibréf mitt úr hjarta meginlands Evrópu.
    1 hr 18 min
  • Hefnendurnir 48 - Ástin og bleyðumarkaðurinn
    Hefnendurnir gerast amorískir í tilefni verðandi Valentínusar og velta fyrir sér ástum ofurhetja, ástum vélmenna og ástum morgunverðarklúbbsins áður en þeir sæka sig upp og beina grænum og köldum hjörtum sínum inn á við og skoða abstrakt og veraldlegar upplifanir sínar í ástarmálum.
    1 hr 27 min
  • Hefnendurnir 47 - Fyndin er grimmdin
    Ragneto kemur óvænt í heimsókn til hetjanna okkar og þrenningin þráláta þræðir sig gegnum skeggtísku, spurningabombubombur, grimmd í gríni og innrásir á Gúbíter, áður þeir velta fyrir sér kvenkyns afturgöngumorðingjum og hvort að „Nei“ sé í raun og veru ekkert svar.
    1 hr 9 min
  • Hefnendurnir 45 - Je Suis Kamala Khan
    Hetjurnar hugumprúðu fá félaga Ragneto í heimsókn til að rabba um meistara algeimsins, þeldökkan þríbura og Frozen áráttu Hulkleiks áður en þeir hugleiða hroðalega atburði í París og þýðingarþrungna meiningu þeirra.
    1 hr 12 min
  • Hefnendurnir 42 - Meiningin bakvið jólin, alheiminn og allt
    Giljahulk og Ævorstaur fá Jarðarbúahöfðingjann Benjamín Sigurgeirsson í heimsókn og ræða baráttu kóngulóarkonunnar við jólaköttinn, þolanleika miðju-Malcolms, örlög Loka Laufeyjarsonar og afmælisdag frelsarans. Auk þess mætir Lóa hjálmtýs og gaggrýnir bók og allir eru glaðir og gleðileg jól.
    2 hr 7 min
  • Hefnendurnir 41 - Stjórnræningjarnir
    Hulkleikur og Ævorman spá í slímugum sniglum, þrasa um þunglyndar mörgæsir, skemmtigarð Skerláks og falla fyrir fúríuvegi óða Max áður en þeir gaggrýna nýja íslenska myndasögu og setja á sig sjóræningjahatta til að umbreytast í útibú frá Útvarpi Sögu.
    1 hr 7 min

About Hefnendurnir

From the publisher's feed

Podcast by Hefnendurnir