Hefnendurnir

Hefnendurnir

Download on the App Store

Hefnendurnir episodes

  • Hefnendurnir 30 - State of the Union
    Hulkleikur snýr aftur í faðm Ævormans og saman halda þeir uppá þrítugsafmælið með nýju Hefnendastefi og heiftarlegu hugarangri um Doktorinn, Stallone og endinn á Contact. Allt fyrir Jarðarbúa.
    1 hr 50 min
  • Hefnendurnir 29 - Pilotpælingar
    Á meðan Hulkleikur heimsækir Finnland lítur Ragnar Rawkeye Hansson aftur í heimsókn til Ævormans og þeir hugleiða finnska fyndni, segja nektarsögur af sjálfum sér og fara á flug um pilot þætti.
    1 hr 11 min
  • Hefnendurnir 28 - Leikur Köngulóarkonunnar
    Á meðan Hulkleikur spókar sig í borg englanna fær Ævorman gestahefnandann Rawkeye í heimsókn til að ræða við sig um klúrar kápur, steðjaverksmiðju og ferskan doktor áður en þeir kafa ofaní kvenhetjur í tölvuleikjum.
    1 hr 14 min
  • Hefnendurnir 27 - De Palmasunnudagur
    Að þessu sinni pizza Hefnendur sig upp áður en Ævorman skreppur frá og Hulkleikur fær í heimsókn kvikmyndafræðinginn og De Palma ástríðumanninn Ara Gunnar Þorsteinsson sem færir alla góða jarðarbúa í sannleikann um það hvers vegna dýrka eigi Brian, meistara myndmálsins.
    1 hr 33 min
  • Hefnendurnir 26 - Bless Boy Wonder
    Í sínum tuttugusta og sjötta þætti hallmæla Hefnendurnir meintum leðurblökuskapara og minningargreina tvær dívur hvíta tjaldsins áður en þeir rifja upp góðu stundirnar með hefnendaheimilisvininum Robin Williams.
    1 hr 6 min
  • Hefnendurnir 25 - Glerdýraborgin
    Hefnendurnir smella í sig steinastaupum, ræða flóttamenn úr æskuparadís og rifja upp minnistæðar bíófarir áður en þeir taka á móti dröfningunni DD Rozas sem leiðir þá í allan sannleikann um það sem gerist bakvið tjöldin í draumaborginni L.A.
    1 hr 24 min
  • Hefnendurnir 24 - Anna í Sveittuhlíð
    Hefnendurnar ræða manngerðar endur, takmarkaða múltíversa og rostungahorror áður en þeir fara í bíó með Önnu Svövu Knútsdóttur. Inniheldur mjög minor spoilera um Guardians of the Galaxy.
    1 hr 4 min
  • Hefnendurnir 23 - Með sand í egóinu
    Hetjurnar hugumprúðu eygja alklæðnað Amazóngyðju, sækja syndaborgina svarthvítu heim, mæna á minnkaðan mauratamningamann og halda hamingjusamir niður Heiftarveginn, er þeir verja heilum þætti í að gera upp nýafstaðna nördaveislu mega-myndasöguráðstefnunnar í San Diego.
    1 hr 44 min
  • Hefnendurnir 22 - Úr Leðurblökuskápnum
    Heilagar Halakörtur Jarðarbúar! Haldiði ekki að Hefnendurnir hafi hent í heljarstóran hátíðarþátt um Leðurblökumanninn sjálfan. Dýnamíska dúóið okkar heldur upp á 75 ára afmæli hempuklædda krossfarans með löngu og íburðarmiklu spjalli um Batman. Tíu Bill Finger upp til guðs!
    1 hr 58 min
  • Hefnendurnir 21 - Litla Líkkistan
    Ævör og Hulda hella uppá jurtate og ræða kynskipti ofurhetja, kynþáttaskipti ofurhetja og afstæði apavæmninnar. Örvar Eusébio lýsir úrslitaleik Hefnendadeildarinnar og limir fljúga.
    53 min

About Hefnendurnir

From the publisher's feed

Podcast by Hefnendurnir