
Sign up to save your podcasts
Or


Byrjum árið á japönsku klassíkinni sem hefur veitt innblástur fyrir Hunger Games, Squid Game, Call of Duty, Fortnite og margt margt margt meira.
Já það er komið að "besta" þættinum, þessi þar sem við förum yfir allar myndirnar sem við horfðum á þessu ári og gefum ímynduð verðlaun fyrir besta þetta og besta hitt. 2 og hálfur tími sem hægt væri að nota í heimspeki kennslu í háskólanum gott fólk.
Það er vín, það er góða skapið og það eru verðlaun.
Þá er komið að síðasta jólaþætti ársins og í engu öðru en svarthvítu. Í fyrra lauk jólatímabilinu okkar á It's A Wonderful Life og nú tökum við mynd sem kom ári síðar og er nánast engu síðri. Í næstu viku verður áramótaveisla hjá okkur strákanum og gefum við verðlaun fyrir þær myndir sem við höfum séð á árinu
Þriðja jólamyndin verður Gremlins, brjáluðu lítlu skrímslin sem gerðu allt vitlaust hérna í denn. Í næstu viku tökum við fyrir Miracle on 34th Street frá 1947.
Jóhann Favrú og Vilhjálmur Ferrio gerðu saman eina ástsælustu jólamynd allra tíma árið 2003 sem ber nafnið Elf. Við ræðum hana og Elf on a shelf, hvað sem það er.
I'm too old for this shit.... hefur Murtaugh sagt við Riggs oftar en einu sinni. Við hefjum jóla þemað á þessari óvenjulegu jólamynd sem parast mjög vel við Die Hard ef við segjum sjálfir frá.
Á þessu 20 ára afmæli "Greatest Worst Movie Ever Made" tökum við fyrir The Room eftir Tommy Wisaeu. Tryggvi var andlega ekki tilbúinn í þetta en það er allt í lagi af því að það er aldrei neinn andlega tilbúinn í.....The Room. hahahah what a story mark
Klassíkerinn með Carl Weathers þar sem hann heimsækir frumskóginn í leit að hinu fullkomnu stew. Now you take this home, throw it an a pot, add some broth, a potato, baby you got a stew going
Næsta mynd er The Room
Dead or alive, you're coming with me sagði Robocop árið 1987. Kvikmynd sem spyr öfuga spurningu við Terminator, hvað myndi gerast ef að vélmennið væri góði gæinn?
Í næstu viku tökum við Predator
John Kramer er með krabbamein á lokastigi og undirbýr sig fyrir dauðann með ýmsum hættum. Leitin hans að æðra tilgang mun færa hann í áttir sem hann átti aldrei von á og kynnast fólki sem breytir honum til lengri tíma. Fylgdu okkur í þessari rómantísku dramamynd með Tobin Bell og budget Marky Mark
From the publisher's feed