
Sign up to save your podcasts
Or


Ári síðar tökum við upp Evil Dead seríuna á ný og nú er stóra spurningin, nær Sigurjón að vinna Tryggva yfir í Evil Dead fan með þessari?
Það er komið að hryllingsmyndunum sem Tryggvi elskar en við ætlum að taka aðeins öðruvísi myndir þetta árið, ekkert basic drepa drepa. Þetta er reyndar drepa drepa en...öðruvísi.
Næst er Evil Dead : Rise
Við tökum seinni Guy Ritchie myndina í tvennunni okkar, þessi kom út 19 árum síðar og við förum aðeins yfir hvað hefur breyst í kvikmyndagerðinni hjá kallinum öll þessi ár. Bjóðum einnig upp á einstaklega slæma, íslenska, Matthew McConaughey eftirhermu
Næst er Cabin in The Woods
Við heimsækjum klassíska glæpagrínið Snatch eftir Guy Ritchie. Önnur myndin sem Ritchie leikstýrir en án efa sú allra vinsælasta og mögulega sú allra besta. Í næstu viku ætlum við að hoppa 19 ár fram í tímann og horfa á The Gentlemen, svipuð mynd en hvað hefur breyst í stílnum hans á þessum 19 árum?
Can you feel the Kenergy? Við tökum fyrir tekjuhæstu mynd ársins hingað til og reynum að komast að því hvort Barbie dúkkur séu ennþá vinsælar.
Í þessari viku tökum við fyrir eina af stærstu neglunum hans Clint Eastwood en í næstu viku tökum við BARBIE
Þríleikur Edgar Wright og Simon Pegg hófst árið 2004 og lauk 2013 með stór sprengjunni The World's End. Margir telja þessa mynd vera slakari en forverarar sínir en við förum yfir það í þættinum og hvernig endurtekin áhorf mögulega gera hana að sterkustu myndinni í þríleiknum, þegar að sjokkið yfir 180° beygjunni í söguþræðinum kemur manni ekki lengur á óvart.
Við ræðum líka aðeins Shaun of The Dead og Hot Fuzz þar sem við höfum báðir séð þær, þannig að þessi þáttur er meira og minna bara Cornetto þríleikurinn eins og hann leggur sig.
Njótið og í næstu viku verður DIRTY HARRY
Eftir megahittarana There's Something About Mary, Meet The Parents og leikstjórn á Cable Guy (hey, hún græddi pening...) sneri Ben Stiller aftur á stóra skjáinn sem karakterinn Zoolander. Þetta var ekki í fyrsta skipti sem hann hafði leikið karakterinn og ekki síðasta, því miður, en nokkrum árum áður fæddist Derek Zoolander á VH1 Fashion Awards í formi sketsa sem gerðu grín að bransanum sem var verið að verðlauna. Líkt og fyrri myndir Stiller sló Zoolander í gegn, græddi slatta af pening og stendur enn sterk 22 árum síðar.
From the publisher's feed