
Sign up to save your podcasts
Or


It's a bird! It's a plane! Yes, it's an airplane!
Airplane hefur haft áhrif á allan gríngeirann eins og hann leggur sig. Spoof? Það var nánast ekkert til fyrr en Airplane kom, hún er mikilvæg, hún er góð og við mælum með henni
Árið 1994 komu þrjár kvikmyndir. Ace Venture Pet Detective, The Mask og Dumb and Dumber. Ég er nokkuð viss um að allir vita nákvæmlega hvað þessar myndir eiga sameiginlegt en það er að sjálfsögðu Jim Carrey, þetta ár gjörsamlega sprengdi allan skalann hjá honum og það voru afskaplega fáar sálir sem vissu ekki hver Jim Carrey væri. Eftir 4 góð ár í Living Color fóru kvikmyndahlutverkin að dælast inn og allt sem gerðist eftir það þekkjum við dálítið vel.
Team America : World Police eftir Trey Parker og Matt Stone leit dagsins ljós árið 2004 og fagnar því 20 ára afmæli á næsta ári. Flestir ættu að þekkja nöfn Parker og Stone þar sem þeir hófu feril sinn á teiknimyndaþætti sem heitir South Park og er á 3 eða 4 seríu í dag, mögulega meira.
Ég hugsa að það muni flestir eftir því þegar að Team America kom út og eru enn í dag að vitna í legendary línur eins og "Matt Damon" eða "Durka durka" enda handrit sem nálgast Shakespear í gæðum. Þremur árum áður féllu tvíburaturnarnir og Bandaríkjamenn voru í miðju "War on Terror" þegar að þessi mynd lítur dagsins ljós, lituð af viðburðum fyrri ára og innrása í mið-austurlönd.
Parker og Stone hafa ekki miklar áhyggjur yfir því hvern þeir móðga en Bandaríkin, N-Korea, leikarastéttin sem telur sig vera breyta heiminum og fleiri verða fyrir öllu mögulegu skítkasti. Það heppnast líka alveg gríðarlega vel. Það sem kom mér mest á óvart við enduráhorfið, hafandi ekki séð hana síðan 2004, var hvað hún eldist vel. Team America er ennþá mjög fyndin, lögin eru geggjuð og leikmyndin er framúrskarandi. Ef þú hefur ekki séð hana þá mæli ég með henni.
Ein af tveimur myndum sem bárust villt og grimmt um óskarinn árið 2007. Að lokum fór það svo að Daniel Day-Lewis fékk styttuna fyrir besta leik sem Daniel Plainview í þessari frægu mynd.
Daniel Planview er einn af þeim heppnu sem fann olíu í bandaríkjunum um árið 1900 en hann svífst einskis til að öðlast enn meiri pening og vald.
One Flew Over The Cuckoo's Nest kom út 1975 - Leikstýrð af Milos Forman með Jack Nicholson, Lousie Fletcher, Christopher Lloyd, Danny Devito, Will Sampson og fleiri.
R.P. McMurphy (Nicholson) leikur fyrrverandi stríðsmann úr koreska stríðinu sem á erfitt með að fylgja reglum samfélagsins. Hann hefur ítrekað komist í vandamál við lögin og þarf nú að dvelja í vinnubúðum vegna ítrekaðra glæpa. Hann fær því þá frábæru hugmynd að segjast vera geðveikur svo að hann komist inn á spítala og geti haft það notalegt í stað þess að vinna allan daginn en það sem bíður hans er langt frá því að vera það sem hann bjóst við. Þar bíður hans valdasjúkur hjúkrunarfræðingur, Nurse Ratchet, sem sér heiminn á andstæðan máta við McMurphy.
Myndin hefur haft gríðarleg áhrif í gegnum árin en við ræðum það í þættinum.
Tryggvi er í útlöndum þannig að ég fékk nokkra vel valda gesti til að koma í heimsókn og segja aðeins frá því hvernig kvikmyndir hafa fylgt þeim út lífið, gefið þeim falleg eða erfið augnablik og upplifanir sem þau munu seint gleyma.
Þessi þáttur er tileinkaður okkur öllum sem elska kvikmyndir.
Í næstu viku tökum við fyrir One Flew Across The Cuckoos Nest
Það er sumarfrí og því endurútgefum við einn vinsælasta þáttinn okkar sem datt því miður út þegar að við gerðum breytingu yfir í myndbandsútgáfur. Þessi þáttur er ekki í mynd enda fyrir breytingar en hann er gjörsamlegt kaos frá byrjun til enda, líkt og myndin sjálf, endilega njótið.
Í þessari viku tökum við fyrir myndina The Father frá 2020 með Anthony Hopkins og Olivia Colman í aðalhlutverki. Anthony Hopkins fer með hlutverk hins 82 ára gamla Anthony sem er kominn með vitglöp/dementia og neitar allir aðstoð frá dóttir sinni og þeirri hjálp sem hún reynir að ráða inn sér til aðstoðar. Þessi kvikmynd hefur því miður farið framhjá mörgum en er að okkar mati með betri sem við höfum horft á í langan tíma. Anthony Hopkins var tilnefndur til óskars og réttilega vann en hann fer með stórleik, hverjum hefði dottið í hug að maðurinn myndi peak-a sem leikari á 82 ára aldri? Ef þú hefur ekki séð þessa mynd þá mælum við sterklega með því að horfa á hana þar sem myndin er einstök og ótrúlega ruglandi, sem leiðir eiginlega til þess að þátturinn verði það líka.
Njótið, í næstu viku verður endurútgefinn Wicker Man þátturinn þar sem við erum að henda okkur í sumarfrí erlendis.
Eftir þetta Fast ævintýri er kominn á alvöru hreinsun. Kvikmynd sem hefur staðist tímans tönn og er enn að hafa áhrif á fólk sem sér hana í dag. Hún fagnar fimmtugsafmæli á næsta ári og því tilefni til að kíkja á hana. Jack Nicholson fékk óskars tilnefningu og er, ótrúlegt en satt, ágætlega ungur. Maður sér það nú ekki oft.
Næsta mynd er The Father
From the publisher's feed