Heimsendir

Heimsendir

By Stefán Þór ÞorgeirssonSociety & CultureHistory
Download on the App Store

Heimsendir episodes

  • #147 Lífið á Íslandi - Er að koma stríð?

    Kominn aftur miklu meiri kraftur! Í þessum þætti fjöllum við um síðustu vikur lífs míns á Íslandi ásamt umræðum um vinina Trump og Pútín, framtíð Evrópu og Úkraínu, AI auglýsingar, útivist og áfengislausan lífstíl.

    Þátturinn er í boði Bíó Paradís.

    51 min
  • #146 Logi Pedro

    Logi Pedro er hönnuður og tónlistarmaður. Við ræðum hnignun stórvelda, jákvæða þjóðerniskennd, mikilvægi vinnu, hreinskilna stjórnmálamenn og margt fleira.

    Þátturinn er í boði Bíó Paradís.

    1 hr 10 min
  • #145 Fjármálaráðgjöf 2025 - Get Rich Quick! (OPINN ÞÁTTUR)

    Þetta er vissulega ekki fjármálaráðgjöf, en, þið vitið. Vangaveltur um Bitcoin, fasteignir, hlutabréf og fleira. Hvernig á að haga fjármálum og fjárfestingum árið 2025? Hvernig mun gervigreind hafa áhrif á vinnu? Hvað er fjárhagslegt frelsi. Þetta og fleira í þætti dagsins.

    Þátturinn er í boði Bíó Paradís.

    57 min
  • #143 Árið 2024 gert upp! (OPINN ÞÁTTUR)

    Stærsta ár lífs míns? Kannski ekki, en svakalegt ár engu að síður. Fór á nyrsta odda Japans, dó næstum í jarðskjálfta í Taiwan, flutti með kött og barn til Íslands, hitti Jeff Daniels, landaði fiski og lúbarði hyski. Þetta var gott ár en 2025 verður betra.

    Hentu í follow á hlaðvarpsveitur og Insta fyrir allt það helsta úr smiðju Heimsendis!

    45 min
  • #142 Erna Mist (OPINN ÞÁTTUR)

    Erna Mist er listmálari, pistlahöfundur og leikhúsvera. Við ræðum lífið og vinnuna, Ísland og London, morgunrútínur og málverkakaup til Kína. Auk þess tölum við um listina sem tekjulind og tækifæri til að framþróa samfélag.

    Þátturinn er í boði Bíó Paradís og Heimsendafjölskyldunnar á Patreon.

    1 hr 4 min
  • #140 Eiður Westmann - Frambjóðandi til Alþingis (OPINN ÞÁTTUR)

    Útlendingamálin. Orkumálin. Vindmillur og plastagnir. Efnahagskrísa vestanhafs og ólga í Evrópu. Uppstokkun í sviðslistasjóði. Eiður Westmann, frambjóðandi úr Flokki Fólksins, mætir í Heimsendi til að ræða allt þetta og meira til í aðdraganda Alþingiskosninga 2024.

    Kæri hlustandi, þátturinn er í boði Bíó Paradís og Heimsendafjölskyldunnar á Patreon. Ef þú vilt fullan aðgang að öllu efni Heimsendis geturðu kíkt á patreon.com/heimsendir og upplifað dýrðina.

    57 min
  • #138 Tumi Gonzo (OPINN ÞÁTTUR)

    Trump forseti. Geópólitík. Deepfakes og gervigreindarmyndbönd. Gestur þáttarins er Tumi Gonzo, listamaður og leikstjóri. Önnur umfjöllunarefni eru kosningar á Íslandi, orkumálin og framtíð landsins.

    Þátturinn er í boði Bíó Paradís og Heimsendafjölskyldunnar. Ef þig langar að fá fullan aðgang að öllu efni Heimsendis bendum við á
     patreon.com/heimsendir

    59 min
  • #137 Lífið á Íslandi - Raunhagkerfið

    Hlustið í heild á www.patreon.com/heimsendir

    Löndun í Grindavík. Heimavinnandi húsfaðir í Hlíðunum. Milljón á mánuði. Og Kamala Harris í vandræðum. Allt þetta og meira í þessum flæðiþætti (sumir kalla það gas). Njótið vel!

    14 min
  • #136 Bolli Már Bjarnason (OPINN ÞÁTTUR)

    Bolli Már Bjarnason er uppistandari og útvarpsmaður, veiðimaður líka, og margt fleira. Í þættinum ræðum við jólin og rjúpurnar, áhugamál og fjölskyldulíf, vinnu og peninga. Lífið á Íslandi er líka til umræðu sem og samanburður við Japan.

    Þátturinn er opinn í boði Bíó Paradís og Heimsendafjölskyldunnar á Patreon.

    1 hr 7 min

About Heimsendir

From the publisher's feed

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar.

More shows like Heimsendir

声动早咖啡 by 声动活泼

声动早咖啡

305 Listeners