Helgaspjallið

Helgaspjallið

By Helgi ÓmarsSociety & Culture
Download on the App Store

Helgaspjallið episodes

  • Þáttur 159 - Ragna Sigurðardóttir um jómfrúarræðuna sína á Alþingi, pólitík, lífið og vonina
    Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Þið hafið mjööög líklega séð þessa stórmögnuðu mannveru á Instagram reel-i sem hópur af geggjuðu fólki deildi út og brútt, vegna þess eins að hún talaði tungumálið sem svo mörg okkar höfum verið að berjast fyrir að einhver stjórnmálamaður gerir. Ragna Sigurðardóttir er algjörlega stórkostleg en hún situr sem varaþingmaður fyrir Samfylkinguna og við ræðum rosalega rosalega mikið um allt mikilvægt sem tengist pólitík á mannamáli, lífið, vonina, Gaza og svo margt fleira. Mæli með að hlusta -
    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 40 min
  • Þáttur 158 - Arna Engilberts um örlagaríka æsku og heilun á innra barninu okkar
    Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Arna Engilberts er stílisti, vegan kokkur og eigandi Rokyo.is en hún hefur stundað mikla sjálfsvinnu og í hvert skipti sem ég hitti hana, þá líður mér eins og hún hafi blásið mig uppí loft með innblæstri og sálarfæðu. Ég er svo þakklátur að fá hana í þáttinn, við ræðum örlagarík veikindi sem hún fór í gegnum og endaði lömuð, ásamt hversu mikilvægt það er að skoða að hefja sjálfsvinnuna að heila barnið sitt og hvernig við gerum það. Arna tekur okkur í ferðalagið sitt og ég gæti ekki mælt meira með að hlusta á þessa stórkostlegu mannveru og vona að þið getið tekið fallegt með ykkur frá þessu spjalli.
    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 16 min
  • Þáttur 157 - Ásdís Grasa um grasalækningar og hvað við getum gert fyrir bætta heilsu
    Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Það er fátt skemmtilegra að tala við einhvern sem kennir þér eitthvað nýtt. Grasalækningar er eitthvað, sem að mínu mati er það sem koma skal þegar kemur að langvarandi heilsu. Ásdís hefur okkur innsýn inní hvað grasalækningar eru og hvað við getum gert í okkar daglega lífi til að bæta heilsu okkar og hvað matur getur raunverulega verið heilandi fyrir okkur, andlega og líkamlega. Ásdís er ekkert eðlilega klár og ekki síður skemmtileg og það er mér svo mikil ánægja að fá hana til mín, og hlakka til að fá hana aftur ef við stöndum við plön okkar um annað Helgaspjallsdeit!
    Þið getið fylgt Ásdísi á samfélagsmiðlum undir notendanafninu @asdisgrasa -
    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 34 min
  • Þáttur 156 - Helgi & Ragga Nagli um mörkin sem við þurfum að setja á okkar sjálf og aðra
    Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Við Ragga Nagli sameinum krafta okkar enn á ný og í þetta skipti með námsskeiðinu okkar "Sjálfsefling - Allur pakkinn" sem verður haldið í fyrsta skipti núna í október, fullt er á námsskeiðið en við komum til með að halda fleiri. Í þessum þætti förum við yfir ýmislegt sem fram kemur á námsskeiðinu, meðal annars mörk, vináttur, sjálfstal og hvernig við getum stillt okkur inn og sett okkar eigin mörk á þessum sturluðu tímum í heiminum.
    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 1 min
  • Þáttur 155 - Karin Kristjana hjá Nola um adhd, að vera bugleg og lífið fyrir og eftir greiningu
    Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Drottning snyrtivara, Karin Kristjana er eins og kannski áður hafi verið kallað "ofurkona" eða "ofurmamma" með blússandi business, þrjá stráka, heimili, mann og lífið almennt að jöggla. En bakvið tjöldin var hún ósofin með kaotískan haus og ógreint adhd. Karin er viskubrunnur og sérstaklega góð að miðla eigin reynslun til þeirra sem henni þykir vænt um, hún hefur reynst mér persónulega sérstaklega vel, og er ég henni svo þakklátur að hún var tilbúin að setjast niður með mér og opna sig um hennar krefjandi vegferð með adhd, en hún greindist fyrst 39 ára og það var fyrst þá sem henni tókst að koma ró á eigin lífi og taugakerfi. Mæli mikið með hlustun, og sérstaklega þegar hún brýtur niður þýðinguna á bakvið orðið "bugleg" - hold your socks.
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 38 min
  • Þáttur 154 - Helga Magga um macro's og andlega og líkamlega heilsu
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Það er óhætt að segja að Helga Magga sé minn uppáhalds influencer, frá prótein pizzum yfirí kotasæluís yfir í einlæga nálgun um lífið, þá er hún eins alvöru og fólk gerist. Helga Magga hefur safnað að sér ýmsum starfstitlum, eins og lögreglukona, kennari, næringarþjálfari og áhrifavaldur svo eitthvað sé nefnt. Það var dásamlegt að setjast niður með henni í spjall og fá að kynnast henni betur og hlusta á hvernig hún nálgast lífið, vinnu og tilveruna almennt.
    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 11 min
  • Þáttur 153 - Harpa Kára um hugsjón, tvíburamömmu hlutverkið og velja fyrir sig
    Þátturinn er í boði:
    Nettó - www.netto.is - náið í Nettó appið í app-store og sparið!
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Harpa Kára er eins og maður mundi segja á góðri ensku ' powerhouse ' en hún ákvað ung að taka örlítið aðra leið í lífinu en vinahópurinn en hún dýfði sér ofaní sminkuheiminn og varð fljótt okkar eftirsóttasta sminka, hún er algjör jarðýta í starfi og lífi en hún hefur skrifað bók, opnað eitt fallegasta stúdíó landsins og í haust sjáiði hana á Stöð2 sem dómari í glænýrri þáttaröð sem heitir Útlit.
    Við Harpa förum um víðan völl, skrautlegt verkefni þegar hún fékk að vita að hún ætti von á tvíburum og hvernig það er að jöggla lífi og starfi. Við förum einnig yfir námsskeiðin sem við höfum verið með uppí Make Up Studio og ásamt svo mörgu öðru.
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 49 min
  • Þáttur 152 - Ósk Gunnars um föðurmissinn, adhd og breyttar lífsvenjur til bættrar heilsu
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Þið heyrið röddina hennar reglulega á vinsælustu útvarpsstöð landsins, FM957, Ósk Gunnarsdóttir. Hún er ekkert nema gleðin að vera kringum og maður mundi ekki gruna hversu mikið hún hefur gengið í gegnum miðað við hversu mikil gleðipilla hún er. Ósk deilir með okkur í þessum krefjandi verkefnum sem hún hefur fengið í hendurnar og hvernig henni tókst það. Hún er þrautsegjumaskína og setti sig í fyrsta sæti eftir föðurmissinn þar sem hún þurfti að spurja sig stóru spurningana. Ósk fékk hlaupapödduna og segir hún okkur nánar frá ávinningum og hvernig henni tókst að koma jafnvægi á adhd-ið sitt með breyttum lífsstíl, en í dag er hún lyfjalaus. Ósk er ekkert nema peppið og innblásturinn og var það mín mesta ánægja að fá hana til mín í stólinn.
    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 31 min
  • Þáttur 151 - Helgi & Áki hjá Maikai ræða ástandið í landinu & pólitík
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Starbucks Take-Away drykkir - fæst í Bónus og N1
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Það er eitt skemmtilegasta sem ég veit er að hitta góðan vin í stúdíó-inu og detta í gott flæði. Ágúst Freyr, betur þekktur sem Áki hjá Maikai er einn af þeim sem er fátt skemmtilegra að setjast niður með honum, spjalla, hlusta, rökræða, skoða og spá. Áki hefur alltaf haft sterkar skoðanir og hann er ekkert eðlilega klár, og erum við yfirleitt sammála en skemmtilegt nok þá náðum við að vera nokkuð ósammála sem var auðvitað stórskemmtilegt. Við ræðum ástandið í landinu, pólitík og annað krassandi sem kann að vera á vörum fólks um þessar mundir.
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 31 min
  • Þáttur 150 - Jóhanna Guðrún um móðurhlutverkið og fjölmiðlafárið
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Starbucks Take-Away drykkir - fæst í Bónus og N1
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Þjóðargersemin og góðvinkona mín Jóhanna Guðrún settist niður með mér í einlægt spjall þar sem hún svarar fyrir sig og deilir hjartnæmt um sína hlið um síðustu tvö ár. Hún lenti í þeirri svo óskemmtilegu reynslu að fjölmiðlar tilkynntu óléttu sína á viðkvæmum tíma gegn hennar vilja og samþykki á meðan hún var að fikra sig áfram eftir krefjandi skilnað. Hún nýtir nú þá krefjandi reynslu, snýr vörn í sókn og hefur sett á lagnirnar spennandi nýtt verkefni sem fagnar mömmum og hversu magnað og krefjandi móðurhlutverkið er.
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 27 min

About Helgaspjallið

From the publisher's feed

Helgaspjallið er podcast útgáfa af lið á Trendnet.is