Helgaspjallið

Helgaspjallið

By Helgi ÓmarsSociety & Culture
Download on the App Store

Helgaspjallið episodes

  • Þáttur 139 - Ída Páls um að flytja og búa í Kyoto Japan með manni og barni
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
    Þegar Ída Páls flutti til Japan með manninum sínum, hönnuðinum Sigmundi Pál með dóttur þeirra. Ég er ótrúlega upptekinn af Japan og um leið og Ída lenti aftur heim eftir búsetu sína úti vissi ég að ég vildi setjast niður með henni og forvitnast um Japan. Hún leyfði fylgjendum sínum á Instagram og Tiktok að fylgjast með og ég persónulega skemmti mér konunglega að horfa á bæði skemmtilegt og fræðandi efni. Ef þið eruð í skapi fyrir kósí þátt, þá er þessi fyrir ykkur. Njótið vel -
    Hægt er að fylgjast með Ídu á samfélagsmiðlum undir idapals -
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 13 min
  • Þáttur 138 - Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir fyrrv. saksóknari & þingkona um ofbeldi & réttarkerfið
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
    Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir alþingiskona og fyrrum saksóknari hefur lengi barist fyrir réttlæti er kemur að málum ofbeldis, en hún hefur til dæmis verið aðstoðarsaksóknari og deildarstjóri ofbeldisbrotadeildar lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, aðstoðarmaður félags- og jafnréttismálaráðherra og saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara. Í dag situr hún á þingi og ástríða hennar liggur enn í réttlæti þar á bæ. Það var mikill heiður að fá hana til mín og það kom á óvart hvað hún er fáranlega skemmtileg, með geggjaðan húmor og svo hafsjór af visku. Það er ákveðin von sem maður fær í hjartað vitandi að kona eins og Þorbjörg siti á Alþingi og fær forvitni mín algjöra útrás. Njótið vel -
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 13 min
  • Þáttur 137 - Ragnhildur Steinunn um móðurmissi, móðurhlutverkið og ferilinn
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
    Ragnhildi Steinunni þarf varla að kynna en hún hefur prýtt skjáinn okkar síðustu ár og hefur vakið sérstaklega mikla athygli þessa dagana fyrir nýja þáttaröð á Rúv sem heitir Tvíburar. Hún er sjálf tvíbura-mamma og hefur Ragnhildur yfirleitt haldið einkalífinu sínu í lágmarki fyrir almenning svo ég var sérstaklega þakklátur að hafa fengið hana til mín í einlægt spjall þar sem við förum yfir ferilinn hennar, við ræðum móðurhlutverkið, móðurmissinn sem hún upplifði aðeins sjö ára að aldri. Það var mesta ánægja að hlusta á hana og lífsgildin hennar, reynslu og starfsferil og fjölskyldulífið. Njótið vel -
    Hægt er að horfa á Tvíburar á mánudagskvöldum kl 20:05 á Rúv -
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 41 min
  • Þáttur 136 - María Ólafs söngkona - "Mér leið eins og þetta væri martröð og langaði að vakna"
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
    Söngkonan María Ólafs keppti fyrir hönd Íslands í Eurovision 2015 með lagið Unbroken. María hefur ekki mikið látið fyrir sér fara síðan hún kom heim eftir keppni og talar hún einlægt um sína upplifun eftir keppnina og opnar sig um áfallið sem hún varð fyrir eftir að Eurovision búbblan sprakk og hún sat ein með það áreiti og ljót ummæli af hálfu fjölmiðla og netverja sem hún þurfti að þola eftir að hafa sigrað einn ástsælasta söngvara landsins í einvíginu og alveg eftir stóra sviðið. Eins gleðilegt og Eurovision tímabilið er fyrir okkur áhorfendur þá leitar söngkonan okkar sem við kusum út og stóð sig með prýði reglulega til sálfræðings. María er eins einlæg og hún er hæfileikarík og er þakklátur fyrir að hafa fengið hana í þáttinn og gefið okkur sína hlið.
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 26 min
  • Þáttur 135 - Bjarni Snæbjörnsson leikari um dagbókarskrifin sem umturnuðu lífinu hans -
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
    Fyrir nokkrum mánuðum gerðum við Ragga Nagli okkur glaðan dag og fórum út að borða og á leiksýninguna "Góðan daginn faggi" í Þjóðleikhúsinu, aldrei hefði mig grunað að ég mundi labba út yfir mig hamingjusamur, sorgmæddur, séður og heyrður allt í sama pottinum. Að hafa skemmt mér svona stórkostlega en á sama tíma fara í gegnum alla tilfinningaflóruna. Bjarni Snæbjörnsson er maðurinn á bakvið þessa sýningu ásamt teyminu sínu. Síðan þá hef ég viljað fá hann í þáttinn og er ekkert eðlilega þakklátur fyrir spjallið okkar, við förum inní okkar eigin reynslu og speglum okkur í hver öðrum. Lokasýning "Góðan daginn faggi" verður þann 28 apríl næstkomandi, og er þessi sýning nauðsyn fyrir alla að sjá. Svo ég hvet ykkur til að næla ykkur miða á meðan þeir eru til á tix.is -
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó-i Podcaststöðvarinnar -
    1 hr 20 min
  • Þáttur 134 - Eva Dögg & Helgi ræða samskipti og samskipti í samböndum
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
    Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
    Mín besta kona og uppáhald meðal hlustenda, Eva Dögg Rúnars settist með mér að ræða samskipti og samskipti í samböndum.
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó Podcaststöðvarinnar
    53 min
  • Þáttur 133 - Nína Hundaþjálfari um hvað hvernig við lærum á okkur í gegnum hunda -
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
    Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
    Ég var að versla fyrir Noel í versluninni Móra á Nýbýlavegi þegar það labbar inn kona, hún er nett klædd, með tattoo á hökunni, smitandi bros og ekkert eðlilega kröftuga nærveru. Það er Nína hundaþjálfari og er gestur minn að þessu sinni, en ég spurði hana þá og þarna hvort hún hefði áhuga á að koma í hlaðvarpið. Hún að engu leyti valdi vonbrigðum því dældi útúr sér visku og innblæstri bæði í lífinu og í tengslum við hundana, sem við erum sammála um að eru mögnuðustu verur sem við eigum á þessari jörð. Við förum mikið yfir hvað við getum hreinlega lært af hundunum og hversu mikil gjöf þeir eru. Að því leyti hvernig við upplifum þá þegar við eigum þá en einnig bara hvað þeir standa fyrir sem verur. Við förum yfir það og svo margt meira.
    Njótið vel.
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 31 min
  • Þáttur 132 - Haukur Skúlason annar stofnandi og framkvæmdastjóri Indó - "Ekkert kjaftæði"
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
    Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
    Haukur Skúlason ef framkvæmdastjóri og annar stofnandi sparisjóðsins Indó sem hefur vakið mikla athygli hér á landi en Indó er fyrsti sparisjóðurinn sem hefur verið stofnaður hér á landi frá grunni síðan 1991. Sem er gríðarlega gott ár ef útí það væri farið. En ég var áhugasamur um manninn á bakvið þessa nýjung og ég varð allt annað en fyrir vonbrigðum. Haukur er skýr, heiðarlegur og eins og hann orðar sjálfur, ekki með neitt kjaftæði. Ég spyr hann einnig útí hans hætti og nálgun á lífið sem einnig kom ótrúlega skemmtilega á óvart. Hann talar um Indó og hvað það snýst um á mannamáli og það sem ég kunni held ég mest að meta: Hann vill alveg hrista upp í hlutunum. Það og fullt af öðrum stórum spurningum í þessum þætti. Njótið vel!
    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 23 min
  • Þáttur 131 - Bylgja Borgþórs um Eurovision, Morðcastið og ættleiðingu -
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
    Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
    Snilldarkona lífs míns Bylgja Borgþórs snýr aftur í Helgaspjallinu. Það er fátt skemmtilegra en að tala við hana, enda skýrasta, fyndnasta og no-bullshit manneskja sem ég þekki. Við erum báðar háklassa Eurovision hommsur og þátturinn er tekinn upp á úrslitakvöldsdegi Söngvakeppnarinnar svo við erum eðlilega sjúklega peppuð, köstum á milli skoðanna okkar, spáum, spegúlerum og skoðum. Við förum örlítið yfir lögin sem komin eru áfram og við hverju við getum búist við í maí. Eurovision er ekki okkar eina viðfangsefni, en við förum útum víðan völl, Morðcastið, ættleiðingin og almennt gröfum ofan í Bylgju og hvernig hún er eins og hún er. Svo ég lofa gleði og góðu kósí partý með þessum þætti.
    Njótið vel -
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 14 min
  • Þáttur 130 - Alexsandra Bernharð um trauma sem mótaði hana og lærdóm síðasta árið
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
    Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
    Við Alexsandra Bernharð setjumst niður í fyrsta skipti eftir að stormurinn í fjölmiðlum stóð yfir fyrir tæplega ári. Við förum yfir allt milli himins og jarðar, meðal annars að við kynntumst henni á dýpra leveli, förum yfir andlegt ferðalag hennar og hún deilir með okkur traumanu sem mótaði hana hvað mest sem manneskju. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið hana til mín í Helgaspjallið og um er að ræða einstaklega hógværa og góða manneskju sem hefur verið mikil ánægja að kynnast síðustu mánuði, og hér erum við loksins, að hittast í fyrsta skipti að fara yfir málin með ykkur hlustendum.
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 23 min

About Helgaspjallið

From the publisher's feed

Helgaspjallið er podcast útgáfa af lið á Trendnet.is