Helgaspjallið

Helgaspjallið

By Helgi ÓmarsSociety & Culture
Download on the App Store

Helgaspjallið episodes

  • Þáttur 129 - Saga Sig um ferillinn og hvernig andleg heilsa og stór frami helst í hendur
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
    Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
    Saga Sig er ljósmyndari, listakona og leikstjóri og er með nokkra af stærstu kúnnum heimsins í töskunni á borð við Apple, Nike, Vogue og Topshop. Þrátt fyrir stóran feril, þá er Saga með fæturna læsta í jörðina og er hógværðin og góðmennskan uppmáluð. Hún er einnig einstaklega mysteríus og þess vegna þótti mér einstaklega skemmtilegt að fá hana til mín í, það sem ég var farinn að upplifa sem yfirheyrsla. En forvitnin var þokkalega til staðar og svörin voru allt nema vonbrigði. Saga er eins stórkostleg og listin hennar, og er ég svo glaður og þakklátur að hafa fengið hana til mín fyrir aðra að kynnast henni aðeins undir glamúrus og smá dularfullu skelinni.
    www.instagram.com/sagasig
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 15 min
  • Þáttur 128 - Kristín Sam um ofbeldi í vináttu, eftirköstin og nýr raunveruleiki eftir skilnað
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
    Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
    Kristín Sam er húðperri, meyja, markaðsdrottning og heilsu & ræktarfanatíkus. Hún gaf út bókina Húðin í fyrra og hefur verið áberandi á samfélagsmiðlum. Nýlega opnaði hún sig á Instagram reikning sínum um ofbeldi sem hún upplifði í skóla af hálfu vinkonu, sem tók hana fyrir og endaði hún í ofbeldishringiðunni. Ofbeldið gekk á frá grunnskóla og uppí menntaskóla, þar sem eins og hún segir frá, hún heyrði innsæið og hlustaði. Hún þurfti að koma sér út, í kjölfarið sagði hún skilið við vinahópinn sinn. Hún deilir með okkur ferlinu, afhverju hún kom fram með sannleikan sinn og hvað því fylgdi. Kristín talar einnig um hversu mikilvægt það er að opna á þessa tegund af ofbeldi, fyrir kynslóðirnar okkar og mikilvægi þess að skila skömminni og sérstaklega núverandi og komandi kynslóðir. Kristín hefur einnig horft á nýjan raunveruleika í augun, eftir skilnað og með tvö börn. Kristín er eins skýr og þær gerast og öll ánægja í heimi að fá að hafa hana hjá mér í stólnum og tala um það sem skiptir máli.
    www.instagram.com/kristin_sam
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 7 min
  • Þáttur 127 - Kristín Sesselja um ástarsorg, Söngvakeppnina og sjálfshvatningu
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
    Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
    Söngkonan Kristín Sesselja er stórkostleg í sínu fagi og í þessum þætti fáum við að kynnast henni betur og gröfum meðal annars í hvernig textinn af laginu 'Óbyggðir' varð til, en hún mun flytja það í Söngvakeppninni í ár. Hún talar opið og heiðarlega um ástarsorgina sem var innblástur af laginu, hvernig hún vann sig úr þeim og hvar hún stendur í dag. Við ræðum einnig sjálfshvatningu sem er orðinn stór partur af lífinu hennar eftir að ummæli útfrá keppninni hafa risið á yfirborðið og hvernig henni tekst að halda hausnum frjálsum og skýrum. Kristín er að öllu leyti stórkostleg persóna, og magnað að hlusta á hana. Hún er aðeins 22 ára, en hljómar eins og sjóuð gömul sál í ungum líkama. Mæli með -
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 20 min
  • Þáttur 126 - Ragga Nagli og Helgi fara í flæði -
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
    Það er fátt betra en að setjast niður á móti heimsins bestu og klárustu Röggu Nagla, ýta á rec og fljóta með straumnum, það er mesta gæfa að hlusta á hana, tala við hana og í þessum þætti gerum við nákvæmlega það. Við ræðum mikið útfrá sálfræðilegum sjónarmiðum en eins og margir vita er hún sálfræðingur að mennt. Njótið vel - þjóðargersemin, Ragga Nagli.
    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar -
    1 hr 22 min
  • Þáttur 125 - Dagbjört Jóns, konan á bakvið bókina Fundið Fé um auðveldari fjármál og markmið
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
    Fylgjendur og unnendur bókarinnar Fundið Fé hafa kannski tekið eftir að höfundur hennar heldur sér nokkuð mikið útúr sviðsljósinu. En í dag mætti hún á móti mér í stólnum og var mesta ánægja að spjalla við hana um fjármál á algjöru mannamáli og markmið þegar kemur að peningum. Dagbjört kann að meta "fokkjú money" og er langt frá því að vera excel týpan og í kjölfarið hannaði hún og gerði bók sem hún þurfti sjálf. Við tölum um allt í kringum hvernig við getum lært um fjármál og hvernig við erum að eyða peningunum okkar, hvernig við getum auðveldað markmið okkar og að framkvæma draumana okkar, sem krefjast peninga. Tölum um sparnaðarráð í lífi og til dæmis ferðalögum ásamt svo mörgu öðru. Það var svo ótrúlega gaman að kynnast henni á meðan við tókum upp og hvernig þessi þáttur okkar á milli varð til.
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 28 min
  • Þáttur 124 - Sigga Dögg kynfræðingur um samskipti í lífi & samböndum
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
    Sigga Dögg er augnablikið. Ég er get ekki sagt ykkur hvað það mikil ÁNÆGJA að tala og hlusta á Siggu tala. Ég er svo glaður að gefa þennan þátt út. Sigga talar um samskipti í lífinu og samböndum. Við ræðum einnig hvernig við beitum okkur í hugsnum á okkur í lífi og leik. En almennt kemur Sigga með hverja sleggju á eftir annarri. Njótið vel!
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó Podcaststöðvarinnar
    1 hr 2 min
  • Þáttur 123 - Ásta Guðrún markþjálfi - Hvernig við öðlumst meiri sjálfsþekkingu á nýju ári
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
    Masters markþjálfarinn og dásemdarkona Ásta Guðrún kom til mín til að ræða hvaða tól og tæki við getum nýtt okkur til að læra að þekkja okkur örlítið betur á nýju ári. Ásta er með nærveru sem manni langar helst að baða sig í og hvernig hún nálgast orðin sín og visku til annarra er útaf fyrir sig dásamlegt að hlusta á. Ásta stóð á tímamótum árið 2014 þar sem markþjálfaranámið fann hana og hefur hún síðan tileinkað sér að aðstoða aðra til betri sjálfsþekkingar og ég spyr hana spjörunum úr í þessum þætti. Tala sjálfur að vissu kannski of mikið, svo biðst afsökunar á því! Ásta er viskubrunnur og er vissum að þið hlustendur munu geta tekið eitthvað með ykkur inní nýja árið frá þessari mögnuðu konu.
    www.instagram.com/astamcccoach
    www.hverereg.is
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar -
    1 hr 30 min
  • Þáttur 122 - Spjall, jóla & áramóta kveðja frá mér til ykkar
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
    Mín orð til ykkar inní nýja árið. Takk fyrir samfylgdina, takk fyrir hlustanirnar og skilaboðin. Hlakka til að gera fleiri og fræðandi þætti fyrir ykkur á nýju ári. Endalaust ást og þakklæti -
    Ykkar
    Helgi
    26 min
  • Þáttur 121 - Erna Hrund - Við förum yfir árið sem er að líða & royal, Meghan og Harry drama
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
    Vörumerkjastjórinn, Instagram stjarnan og fyrst og fremst, vinkona mín settist niður með mér til að skoða árið sem er að líða, hvað við lærðum og hvað við tökum mest frá árinu. Erna er alltaf ekkert nema einlægnin og heiðarleiki og við fáum innsýn hennar hennar líf. Ásamt því það sem hefur verið heitt á könnunni hjá okkur, Royal dramað og þá sérstaklega Harry og Meghan. Við erum bæði skoðunargjörn og förum eins varlega í þá sálma og við getum og köstum á milli hinna ýmsu póla varðandi þau umtöluðu Meghan og Harry og þeirra nýju nálgun á þeirra hugmynd um prívasí. Við Erna erum bæði þekkt fyrir að vera málglöð svo gerið ykkur ready.
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar.
    1 hr 51 min
  • Þáttur 120 - Fjármál 101 með Anítu Rut og Kristínu Hildi hjá Fortuna Invest
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
    Ég get byrjað á að segja, ég ELSKA Fortuna Invest instagramið. Ég er alveg legit fan og ég og stelpurnar höfum lengi reynt að láta það passa að allar þrjár gætu komist á sama tíma, og eins og alheimurinn vinnur þá var tíminn núna. Rósa komst því miður ekki, en Aníta Rut og Kristín Hildur mættu byssur blasíng og við fórum yfir fjármál á mannamáli. Ásetningurinn var að gera þátt þar sem hver sem er getur hlustað og skilið hvað um er verið að ræða, og auðvitað hvetja sem flesta til að dýfa tánum í fjárfestingarleikinn og hvernig við gerum hann skemmtilegan.
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 34 min

About Helgaspjallið

From the publisher's feed

Helgaspjallið er podcast útgáfa af lið á Trendnet.is