Helgaspjallið

Helgaspjallið

By Helgi ÓmarsSociety & Culture
Download on the App Store

Helgaspjallið episodes

  • Þáttur 149 - Ágústa Kolbrún um mikilvægi sjálfstals, sjálfsmildi og foreldra okkur sjálf
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Starbucks Take-Away drykkir - fæst í Bónus og N1
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Ágústa Kolbrún Roberts er mikill brauðryðjandi í andlegum málum á Íslandi, en hún sprakk fyrst á samfélagsmiðlum þegar hún deildi myndböndum árið 2011 með andlegum hugleiðingum og hefur síðan þá tileinkað lífinu sínu í að aðstoða fólk með að tengjast sjálfum sér betur. Ágústa er jóga kennari og heilari og byrjaði vegferð hennar snemma eftir erfiða æsku þegar hún ferðaðist til Ítalíu og naut sína með indjánum í Ameríku aðeins tvítug. Við förum yfir allskonar viðfangsefni, meðal annars hvernig við þurfum að læra og skoða að sitja með okkur, foreldra okkur, tala fallega til okkar og þannig ná tökum á hver við erum innra með okkur. Við tölum um innsæið og andleg ferðalög ásamt svo mörgu öðru.
    Þið finnið Ágústu á samfélagsmiðlum, Instagram og Tiktok undir nafninu: @agustajoga -
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 26 min
  • Þáttur 148 - Valgerður Árnadóttir varaþingkona Pírata og formaður samtaka grænkera leggur línurnar
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Starbucks Take-Away drykkir - fæst í Bónus og N1
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Valgerður Árnadóttir er varaþingkona Pírata, formaður samtaka grænkera sem hefur lifað tímana tvenna, en hún fór ung í fyrirsætustörf á heimsvísu þar sem skuggalegur raunveruleiki fékk hana aftur heim þar sem hún fór að ryðja sér til rúms í þjóðfélaginu. Í dag má segja að hún sé hágæða aktivisti með hjartað á réttum stað og brennir fyrir siðferðislegar breytingar fyrir bæði dýr og mannfólk og skafar ekkert af hlutunum. Ég kynntist Valgerði fyrst á Klambratúni, en við erum nágrannar og hundaeigendur, og í hvert skipti sem ég sé hana á túninu, þá hlakka ég til að heyra hvað hún hefur að segja og hvað við munum koma til með að tala um. Ég er ótrúlega þakklátur að hafa fengið hana í þáttinn og við förum útum allt.
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 26 min
  • Þáttur 147 - Birta Björnsdóttir varafréttastjóri RÚV um Úkraínustríðið og fleira á mannamáli
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Starbucks Take-Away drykkir - fæst í Bónus og N1
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Birta Björnsdóttir á nokkra mjög flotta titla innan RÚV, hún er varafréttastjóri, yfirmaður erlendra frétta og þið þekkið hana eflaust mörg frá hlaðvarpinu Heimskviður. Hún er fyrst og fremst klár en einnig með þæginlegustu rödd til að hlusta á. Við ákváðum að fara yfir mál sem við þekkjum öll og teygjum okkur í ýmsar trjágreinar tengdar Úkraínustríðinu. Það er erfitt að gera sér hugarlund að þetta sé í gangi en Birta brýtur málið örlítið niður ásamt nýjum tíðindum í tengslum við Wagner hópinn. Við förum einnig yfir starf hennar sem fréttakona og gefur okkur innsýn inní ábyrgðarfullt hlutverk hennar. Við tölum líka örlítið um hvað Josh Harnett var sætur, en til að ná því samhengi þá býð ég ykkur bara að njóta þáttarins.
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 20 min
  • Þáttur 146 - Unnusti minn Pétur Björgvin um sjálfsábyrgð og andlega vinnan innan sambandsins
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Starbucks Take-Away drykkir - fæst í Bónus og N1
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Það var sérstaklega góð tilfinning að fá unnusta minn Pétur Björgvin Sveinsson í stúdíó-ið. Ég er ótrúlega heppinn að eiga maka, sem er ekkert nema stuðningsríkur, sérstaklega klár og gefur bestu ráðin. Hann segir svo margt sem ég hugsa oft hvað ég væri til í að deila með hlustendum. Við höfum unnið rosalega mikið í sambandinu okkar, en við kynnumst báðir með allskonar bagga á bakinu, og í staðinn fyrir að láta það hafa samband á sambandið þá höfum við unnið daglega í því að nýta það í að styrkja sambandið okkar, með samskiptum, stuðning og hvatningu. Hljómar allt mjög krúttlega, en hefur klárlega verið krefjandi. Í þessum þætti förum við yfir mikið af því, en við hefðum þurft nokkra klukkutíma til að dekka allt. Pétur er algjörlega einstakur, og ég vona að þið getið tekið eitthvað með úr þessum þætti til að fyrst og fremst rækta eigið samband við ykkur sjálf, og svo sambandið ykkar við ykkar maka, ef þið eigið svoleiðis.
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 12 min
  • Þáttur 145 - Dr. Matthew Croasmun & Dr. Ryan McAnnally-Linz höfundar bókarinnar Life Worth Living
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Starbucks Take-Away drykkir - fæst í Bónus og N1
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Dr. Matthew Croasmun og Ryan McAnnally-Linz eru kennarar við Yale háskólann og eru tveir af þremur rithöfundum bókarinnar Life Worth Living sem hefur sitið á metsölulista New York Times frá því hún kom út í mars. Þeir skrifuðu hana útfrá áfanga í Yale sem heitir sama nafni og bókin. Hugmyndin þeirra spratt þegar kennarar við skólann höfðu áhyggjur af því að námið í skólanum undirbyggi nemendur ekki nægilega vel fyrir lífið. Þessi Life Worth Living nálgun hefur reynst vel útí heimi og einnig hjá hópum eins og föngum og fyrrverandi hermönnum. Þeir eru hér á landi að kynna bókina og munu þeir vera í verslun Pennans Eymundsson á Austurstræti þann 27 júní kl 17:30. Það var einstaklega gaman að tala við þá og grafa frekar ofan í bókina, námsskeiðið, þá sjálfa og þeirra umhverfi. Matthew er meðal annars prestur og Ryan vinnur við kristin fræði svo var gaman að spurja þá spjörunum út og í kringum það margþætta starf sem þeir starfa við. Njótið vel!
    1 hr 45 min
  • Þáttur 144 - Kristrún M. Frosta formaður Samfylkingar um stöðuna á Íslandi í dag á mannamáli -
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    *Þessi þáttur kom seinna út en áætlað var, í byrjun þáttar vitna ég í þátt 142.
    Kristrún Mjöll Frostadóttir er fædd árið 1988 og á þeim tíma hefur hún lokið BS gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands, meistaragráðu í alþjóðafræðum frá Yale-háskóla í Bandaríkjunum, með áherslu á hagstjórn og alþjóðafjármál og meistaragráðu í hagfræði frá Boston-háskóla í Bandaríkjunum. Takk og bless.
    En hún hefur einnig unnið sem sem sérfræðingur í greiningardeild bandaríska fjárfestingabankans Morgan Stanley, aðalhagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands og Kviku banka, takk og bless aftur! Núna er hún rísandi kona fólksins í starfi sínu sem formaður Samfylkingarinnar og var þetta hin besta kona að fara yfir sturlaða stöðu landsins og tala um spillinguna og í raun og veru sem á sér stað innan Alþingis. Kristrún var fullkominn viðmælandi og skafar ekki af hlutunum og segir eins og er.
    Eins og hún segir sjálf, þetta snýst ekki um að við hin þurfum að vera hápólitísk til að taka þátt í umræðunni, heldur láta í okkur heyra og kjósa.
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 38 min
  • Þáttur 143 - Jara Giantara um stjörnuspeki og pólitík og nýtt podcast!
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
    Sleepy - www.sleepy.is - fæst í Vest Ármúla
    Á góðri íslensku, by popular demands, þá er Jara Giantara mætt aftur og nú til að gefa sín fimm cent inní pólitíkarumræðuna, ásamt því að gefa okkur innsýn inní hvernig pólitík og stjörnuspeki helst þokkalega í hendur. Jara er einnig búin að gefa út eigið hlaðvarp, Stjörnuspjallið þar sem hún mun gefa hlustendum atburði og stöðu pláneta og áhrif þeirra beint í æð. Við förum um víðan völl, eins og svo oft áður. Njótið vel!
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar -
    1 hr 13 min
  • Þáttur 142 - María Rut & Pælum í Pólitík um allt sem er í gangi á Íslandi í dag á mannamáli
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
    María Rut, okkar besta kona, mannamálspólitíkusarsjení og almennur viskubrunnur og flest öll jákvæð lýsingarorð í bókinni er að mínu mati, ein mikilvægasta röddin okkar þegar um er að ræða réttlætismál í íslensku samfélagi. Með stuttum fyrirvara var hún tilbúin að koma og við förum mögulega yfir alla þætti þess sem er að valda svo miklum óþægindum fyrir landsmenn. Ásetningur þáttarins var að fræða hlustendur í kringum þessi mál, skoða alvöru möguleika lausna og í rauninni allt í kringum þetta. Látum í okkur heyra og tökum afstöður og fylgjum hjartanu.
    María heldur úti fræðandi umræðu á Instagram-i síðu sinni - @mariarut á Instagram
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 51 min
  • Þáttur 141 - Erna Hrund um adhd máttinn og verða stærsti stuðningsaðili makans þíns
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
    Það er þæginlegast að fá Ernu Hrund í podcast, hún er ekkert eðlilega klár, hefur alltaf rúmlega mikið gáfulegt að segja og auðvitað mjög skemmtileg. Ég forvitnast um adhd-ið hennar Ernu og hvernig henni tekst að navigate-a hausinn sinn í stóru starfi, fullt af börnum og hraða nútímans. Við ræðum einnig heilbrigð sambönd og hvernig við getum beitt okkur með makanum sínum til að frelsa okkar kvíða og áhyggjur innan sambandsins. Auðvitað tókum við smá Harry og Meghan. Njótið vel!
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 15 min
  • Þáttur 140 - Unnur Eggerts leikkona um fæðingarþunglyndi, flugslysið og Ameríku
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Neutral þvotta og húðvörur - fáanlegt í Bónus og öðrum verslunum
    Unnur Eggerts leikkona þekkjum við flest, hún skemmti útum allar trissur fyrir börn og fullorðna sem Solla Stirða, ásamt því að hafa komið með sumarsmelli og eftirminninga í Söngvakeppni Sjónvarpsins. Unnur er sérstaklega sjarmerandi og einlæg en hún opnar sig um upplifun sína um fæðingarþunglyndi, áfallastreyturöskunina sem hún greindist með eftir að hún lenti í þeirri óraunverulegu reynslu að lenda í flugslysi þegar hún ferðaðist milli skemmtana sem Solla Stirða. Við fáum einnig innblik inní lífið hennar og starf sem leikkona í Ameríku ásamt því að fá smá "te" um bransann eins og hann leggur sig.
    Hægt er að fylgjast með Unni á samfélagsmiðlum undir notendanafninu unnureggerts -
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    Njótið vel -
    1 hr 30 min

About Helgaspjallið

From the publisher's feed

Helgaspjallið er podcast útgáfa af lið á Trendnet.is