Helgaspjallið

Helgaspjallið

By Helgi ÓmarsSociety & Culture
Download on the App Store

Helgaspjallið episodes

  • Þáttur 109 - Camilla Rut um skilnaðinn, taugaáfallið og uppgjörið
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
    Eftir mikla eftirvæntingu mætti perluspengjan, áhrifavaldurinn og söngkkonan Camilla Rut. Ef eitthvað einkennir þessa gleðibombu þá er það einlægni og það vantar ekkert uppá einlægnina í þessu viðtali. Við förum yfir baksögu skilnaðarins sem hún er að ganga í gegnum núna, hvernig hún hefur beitt sér andlega í kjölfarið, ásamt því að við gröfum aðeins inní fortíðina og framtíðina ásamt því að kynnast Camillu enn dýpra en við fáum að gera á samfélagsmiðlum. Camilla kemur með svo stórkostlega punkta og setur allt í svo skemmtilegt og fallegt myndrænt form sem var ekkert eðlilega mikið ánægja að fá að hlusta á og efa ekki að þið, kæru hlustendur geti tekið ýmislegt fallegt í sálina útfrá þessu spjalli. Njótið vel x
    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 19 min
  • Þáttur 108 - María Thelma leikkona - "Við hlaupum með hausnum"
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
    Gestur minn í þessum þætti er María Thelma, leikkona og hlaupari. María er fyrsta leikkonan hér á landi sem útskrifast úr Leiklistarskóla Íslands með tælenskan bakrunn sem við ræðum um í þessum þætti, ásamt því að taka stjórn á huganum og þjálfa hann, hvernig hún fann sig í hlaupinu og hvernig við skoðum tengingu líkama og hugsans þegar kemur að hlaupi ásamt svo mörgu öðru. María er með hausinn svo fallega og vel skrúfaðan á, og var það mér brjáluð ánægja að sitja á móti henni og eiga nærandi og spennandi spjall.
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 9 min
  • Þáttur 107 - Heiðrún María um innsæið og samhljóm
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
    Eftir að hafa farið í mest töfrandi kakóserimóníu lífs míns með Heiðrúnu Maríu þá vissi ég að hún væri fullkomin í gestalæti Helgaspjallsins. Við fáum að kynnast Heiðrúnu betur og ferðalaginu hennar ásamt því að læra inná innsæið okkar sem er að hennar mati okkar mikilvægasta tól. Hugtakið samhljómur fær einnig brjálaðslega fallega meiningu, en Heiðrún talar um að við erum hérna á þessari jörð til að finna samhljóm með tilverunni og umhverfi. Ég lofa að þetta var eins og næring að hlusta á hana tala um þetta.
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 31 min
  • Þáttur 106 - Jenný Valberg ráðgjafi hjá Bjarkarhlíð - "Samfélaginu fer ekki batnandi"
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals
    Það var mér mikill heiður að fá Jenný Kristínu Valberg ráðgjafa hjá Bjarkarhlíð. Hún er menntaður mann og kynjafræðingur sem hefur tileinkað sinni vinnu að hjálpa og aðstoða þolendur ofbeldis. Hún þáttastýrði meðal annars þættina Heimilisofbeldi á Stöð 2 sem vöktu mikla athygli. Hún hefur vægast sagt mikla reynslu af þessum málum en hún var sjálf í ofbeldissambandi til margra ára. Ásetningur þáttarins var að gefa hlustendum smá innblik inní hvað það er að vera í ofbeldissambandi frá hlið þolenda. Jenný er að öllu leyti stórkostleg og vel að máli komin og útskýrir allt svo vel. Þessi þáttur er mikilvægur fyrir bæði einstaklinga sem hafa upplifað slík sambönd sem og alla þeirra sem eiga í hættu á að lenda í slíku sambandi eða skilja betur ef einhver nákominn skyldi vera svo óheppinn. Jenný deilir einnig með okkur að þolendur sem sækja til Bjarkarhlíðar eru að verða yngri og yngri og aðsókn 18 ára einstaklinga hefur aldrei verið meiri. Sem segir okkur það að samfélaginu fer ekki batnandi hvað gerendur varða og þess vegna hefur öll fræðsla og skilningur á ofbeldi aldrei verið mikilvægari.
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    2 hr 3 min
  • Þáttur 105 - Ragga Nagli um núvitund og sjálfstal í heilsu og líkamsrækt
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy Heilsudýnur - sleepy.is
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals
    Hún er kannski kölluð Ragga Nagli en hún talar í sleggjum. Ef einhver þarna úti tengir við kvíðahugsanir þegar kemur að heilsu og líkamsrækt þá er þessi þáttur tilvalinn. Það er enginn sem setur hluti á eins skemmtilegan og myndrænan hátt og Ragga en hún fer skref fyrir skref hvernig við getum beitt hausnum okkar og sjálfstali þegar kemur að því að stunda líkamsrækt. Ragga Nagli er náttúrulega þjóðargersemi og kemur með hverja sleggju á eftir annarri í þessum þætti. Njótið vel -
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó Podcaststöðvarinnar
    1 hr 3 min
  • Þáttur 104 - Hin hliðin á Línu Birgittu!
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals
    Lína Birgitta og allir hennar hattar. Businesskona, áhrifavaldur, einkaþjálfari, hlaðvarpsstjórnandi og einkaþjálfari. Hún elskar lúxus og er mikill fagurkeri, en ég held að fæst okkar gruni hvaða hlið hún hefur geymt sem hún leyfir okkur að kynnast í þessum nýja þætti Helgaspjallsins. Hún hefur lent í ófáum áföllum og ásamt því að hafa glímt við erfiðan sjúkdóm í mörg ár. Hún hefur nýtt hvert einasta mótlæti og erfiðleika og nýtt sem drifkraft í manneskjuna sem hún er í dag. Það var vægast sagt magnað að eiga þetta kröftuga spjall við hana og veit að hlustendur geta tekið lært mikið af henni. Ég kynni magnaða hlið af Línu Birgittu.
    Þátturinn var tekinn í Nóa Síríus Stúdíó Podcaststöðvarinnar
    1 hr 26 min
  • Þáttur 103 - Stefanía Svavars um tilgang krefjandi verkefna lífsins og æðri máttinn -
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals
    Stefanía Svavars er ein magnaðasta söngkona sem við eigum, en það sem fólk kannski ekki veit er að hún hefur stóran skilning á lífinu og hvernig maður getur beitt sér gegn krefjandi tímum. Þegar covid skall á stóð Stefanía ein, með lítið barn og ólétt í þokkabót og tekjulyndirnar af skornum skammti. En æðruleysi og hugrekki einkennir Stefaníu og er gjörsamlega magnað að hlusta á hana og hvernig hugarfarið hennar og andlegur styrkur og þroski kom henni á þangað sem hún er í dag! Skylduhlustun - njótið vel!
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 27 min
  • Þáttur 102 - Guðni Gunnarsson - "Það sem þig vantar, ert þú"
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals
    Guðni Gunnarsson er án efa ein magnaðasta manneskja sem ég hef hitt. Hugsjón hans er svo skýr og skilaboðin einföld, það sem þú veitir athygli vex og dafnar, hvort svosem þú vilt það eða ekki. Að við sjálf erum alltaf svarið. Að skrifa uppúr spjallinu okkar hefði getað verið masters ritgerð, en hann hittir naglann svo fast á höfuðið með annarri hverri setningu. Það er eitthvað svo guðdómlega fallegt við tilhugsunina að ljósið innra með okkur er allt valdið okkar og við ráðum hvernig við ætlum að hafa lífið okkar. Að mátturinn er einfaldlega okkar. Þessi þáttur er algjört must-hlustun og ef þið eruð eitthvað eins og ég, þá mundi ég hafa blað og penna við hönd, því Guðni veit hvað hann syngur. Það er mér mikill heiður að hafa sitið á móti honum og fengið að hlusta á hann og vona að þið hlustendur getið tekið allskonar fallegt og gefandi úr þessum þætti.
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíói Podcaststöðvarinnar
    1 hr 27 min
  • Þáttur 101 - Manifesting 101 með Dagnýju Berglind
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals
    Manifesting er eitthvað sem við heyrum talað og meira og meira og það hefur sýnt sig að manifesting eða ' að kalla til sín ' er eitthvað sem virkar. En hvað er það? Hvernig skiljum við það betur? Hver er fyrirvinnan? Dagný Berglind, Rvk Ritual drolla, jógakennari, hugleiðslu og djúpöndunarkennari er með svörin, eins og alltaf hér á Helgaspjallinu. Manifestum okkur í gang!
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 10 min
  • Þáttur 100 - Sylvía Haukdal um tímamót, bróðurmissi og að fylgja sannfæringunni sinni
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals
    Fyrir landsmenn sem fylgja henni á Instagram þá er hún með silkimjúka rödd og bakar geggjaðar kökur. Í þessu spjalli fáum við að kynnast Sylvíu Haukdal örlítið betur og kemur í ljós að þessi dúnmjúka og viðkunnulega týpa er líka messí í eldhúsinu og með aðra hlið sem er örlítið meiri uppreisnaseggur en við fáum að sjá á samfélagsmiðlum og skemmti ég mér konunglega að spjalla við hana. Við ræðum tímamót í hennar lífi, sorgina vegna bróðurmissirs og magaermina sem vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum. Eins auðvelt og það er að elska hana í gegnum samfélagsmiðla, þá gerir þetta spjall það enn auðveldara, enda geggjuð kona að öllu leyti. Njótið vel -
    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíói Podcaststöðvarinnar.
    1 hr 10 min

About Helgaspjallið

From the publisher's feed

Helgaspjallið er podcast útgáfa af lið á Trendnet.is