Helgaspjallið

Helgaspjallið

By Helgi ÓmarsSociety & Culture
Download on the App Store

Helgaspjallið episodes

  • Þáttur 119 - Elenóra Rós bakari um nýtt líf eftir burnout og frelsið útúr skápnum
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
    Elenóra Rós skaust uppá stjörnuhimininn hér á landi þegar hún aðeins 19 ára gömul gaf út sína fyrstu uppskriftarbók sem seldist upp á mettíma. Í ár gaf hún svo út glænýja bók, Bakað meira sem hefur verið að tæmast hratt úr búðum nú fyrir jólin. Hún fangaði athygli fjölmiðla og fylgjenda sinna með geislandi karísma og óaðfinnanlegum hæfileika í sínu fagi. Við Elenóra blómstruðum einstakalega vel í hversu mikið við getum talað, og hversu mikið af mismunandi viðfangsefnum við getum komið inní einn þátt af Helgaspjallinu. Við ræðum burnout og hvernig hún reis uppúr því og hvað hún öðlaðist andlega í kjölfarið. Sjálfsvinnuna og sjálfsástina. Ásamt hvernig hún komst á þann stað sem hún er í dag, í ferlinum sínum og andlega. Elenóra er að öllu leyti eins og sól í mannsmynd, hún nálgast allt með svo miklum kærleika og kemur hlutum svo vel frá sér að ég get eiginlega ekki útskýrt aðdáun mína á henni. Njótið vel -
    1 hr 28 min
  • Þáttur 118 - Jón Jónsson um mikilvægi og ávinninga góðmennskunnar
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
    Söngvarinn og þjóðargersemin Jón Jónsson settist niður með mér korter í jól og ég fékk aðeins að forvitnast um manninn sem við þekkjum öll sem ljósbera í íslensku samfélagi. Það sem mér fannst magnaðast hvernig hann deilir því hvernig ásetningur hans að vera góður við náungann hefur í raun og veru gefið honum aukin lífsgæði ásamt því að hann gleðji fólkið sem hann mætir og skemmtir. Ég forvitnast inní hver lykillinn er að 20 ára sambandi og hjónabandi ásamt því hvernig þau hjón takast á við að eiga fjögur börn með tilheyrandi vinnum og verkefnum. Jón er eins stórkostlegur einstaklingur og við sjáum á skjánum og hlustendur fá eflaust að kynnast honum á örlítið dýpri hátt í þessum þætti.
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 16 min
  • Þáttur 117 - Margrét Jónasar heilsuþjálfari og Tiktok stjarna um að lifa samkvæmt sjálfum sér
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
    Margrét Jónasar þykir mér svo fassinerandi kona, ég fylgi henni grimmt á Tiktok og var svo innilega spenntur að setjast niður með henni og vá hvað ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Ég dáist sérstaklega að henni því hún þorir og tekur afskarið og prófar og miðlar til annarra. Margrét er hokin af reynslu í bransanum og í persónulegri vinnu og þróun og það var svo ótrúlega skemmtilegt að hlusta á hana. Margrét kemur einnig inná atriði sem vert er að skoða sem við kannski höfum ekki heyrt áður, og ef ég tala við sjálfan mig, þá finnst mér ekkert eðlilega skemmtilegt að hlusta á.
    Þátturinn var tekinn í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 23 min
  • Þáttur 116 - Alda Sigmunds um að alast upp með narsissistískri móður
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
    Þegar ég var í Tælandi las ég bókina endurminningabókina Daughter eftir Öldu Sigmundsdóttur og ég gat ekki látið hana frá mér. Bókin er skrifuð af svo einskærri snilld, berskjöldun og krafti og það lýsir einnig persónunni sem Alda hefur að geyma þegar hún settist niður í stólinn á móti mér. Ég var dáleiddur að hlusta á hana tala um reynslu sína og visku um hvað það er að alast upp með narsissistískri móður og andlegu ofbeldi sem með því fylgdi. Alda hjálpar okkur að skilja þennan flókna og eyðinleggjandi persónuleika og við berum saman reynslu okkar í gegnum þáttinn. Þátturinn er í lengri kantinum, en ég hefði getað haldið áfram að tala við hana langt fram á kvöld. Ég er þakklátur og auðmjúkur að hafa fengið hana til mín og vona að þið njótið þáttarins.
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Sírís Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    Alda Sigmundsdóttir skrifaði endurminningabókina Daughter sem fjallar um baráttu hennar við að losna úr viðjum narsissísks ofbeldis sem hún bjó við í æsku.
    1 hr 44 min
  • Þáttur 115 - Björgvin Páll um tilfinningar og uppskeru frá sársauka
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
    Handboltamaðurinn og rithöfundurinn Björgvin Páll kom í settið og var mikill heiður að fá að hlusta á hann. Við skrif bókarinnar ' Án filters ' þurfti Björgvin að skoða gömul trauma frá æsku og hvernig þau höfðu áhrif á hann á fullorðnisárum sem hann deilir með okkur ásamt því hvernig sá andlegi sársauki bæði manifestaðist ásamt hvernig uppskeran var og hvernig hægt er að nýtt hann sér til krafts og góðs. Björgvin hefur einnig gefið úr bókina 'Barn verður forseti' sem hann skrifaði á mettíma, en hugmyndin af bókinni var einfaldlega, bókin sem hann hefði þurft þegar hann var yngri. Við ræðum svo margt annað og ástríða Björgvins er ekkert eðlilega aðdáunarverð, og vona ég að þessi þáttur geti verið öðrum til góðs.
    Njótið vel -
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 24 min
  • 114 - Jensína Edda skólastýra - "Lífið streymir til okkar og við þurfum að læra að bregðast við"
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
    Þeir sem þekkja þessa drottningu, þeir vita afhverju hún er sest í sætið hér á Helgaspjallinu. Jensína Edda Hermannsdóttir er ein magnaðasta manneskja sem ég þekki og það var mér mín mesta ánægja og heiður að fá að sitja á móti henni og hlusta á hana. Hún er skólastýra á Laufásborg og hefur unnið með Hjallastefnunni síðan hún hóf starf sitt. Það er varla hægt að telja niður allar sleggjurnar sem Jensína talar um en ég skal reyna. Við ræðum um hvernig við nálgumst börn í uppeldi, okkar eigin berskjöldun og styrkurinn í henni, taka eignarhald á sjálfum sér, bera ábyrgð á sjálfum sér, að lána ekki það sem við eigum ekki og ég gæti haldið endalaust áfram. Fyrir foreldra og ekki foreldra, njótið vel. Jensína er gjörsamlega stórkostleg.
    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar.
    1 hr 26 min
  • Þáttur 113 - Beggi Ólafs um sambandsslitin og fjölmiðlafárið
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
    Beggi Ólafs er kominn í þriðja sinn í Helgaspjallið. Beggi gaf á dögunum út bókina Tíu skilaboð - Að skapa öryggi úr óvissu og kom heim til Íslands frá Los Angeles þar sem hann stundar doktorsnám, til að kynna bókina og ég náði honum í stúdíó-ið. Við ræðum að sjálfssögðu hvernig bókin varð til en förum einnig í eitt stærsta verkefni sem Beggi hefur tekið að sér, sem voru krefjandi sambandsslit. Við rýnum aðeins í ferlið og Beggi opnar sig mjög einlægt og fallega. Við ræðum einnig fjölmiðlafárið sem Beggi fann sig í og hvernig það fékk á hann og svaraði einnig spurningum í kringum það. Við förum um víðan völl og alltaf jafn mikil ánægja að tala við þennan einstaka mann.
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 40 min
  • Þáttur 112 - Sylvia Briem um hormóna og að lifa samkvæmt okkar þörfum okkar
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
    Sylvía Briem mætti í comeback þátt og ég gæti haft hana í þætti í hverjum mánuði, enda er hún eitt magnað afl af kærleika, þrautseigju og metnaði. Hún setti nýlega á markað merkið El Taco Truck sem hefur verið á margra manna vörum og seldist nánast upp á einu augabragði. Við förum aðeins yfir frumkvöðlavinnu hennar og bakrunn. Við förum einnig yfir hvernig við lærum að lifa samkvæmt okkar eigin þörfum, sjálfsmildi og hormóna ásamt svo mörgu öðru. Njótið vel!
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 2 min
  • Þáttur 111 - Eva Dögg Rúnars um frestun, sambönd og skrefin að núvitund
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
    Jógadrottningin, grasaguddan og olíujukkan Eva Dögg Rúnars snýr aftur, einu barni ríkari og reynslunni einnig. Við förum yfir frestunaráttuna sem við glímum svo mörg við og persónuleg svik okkar í eigin garð. Við förum einnig yfir fjögur skref Rvk Ritual í átt að núvitund og sjálfsrækt og nálgun á náin samskipti í samböndum.
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Siríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    57 min
  • Þáttur 110 - Jara Giantara um öld vatnsberans og taka stjórn á hugsunum okkar
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Sleepy - www.sleepy.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Dr. Teals - Lyf & Heilsa, Hagkaup, Lyfja, Fjarðarkaup og fl
    Stjörnuspekingurinn og jógakennarinn Jara Giantara er einn vinsælasti viðmælandinn að mati hlustenda svo við splæstum í glænýjan þátt, sem þykir einnig viðeigandi miðað við ástandið í heiminum í dag. Jara fer í gegnum stjörnukortin og gefur okkur smá útskýringar á öllu því sem gengur á í heiminum okkar í dag, eins og ástandið í Úkraínu og Íran. Við ræðum einnig um system og skoðum það smá og skorum á allskonar hugmyndir, ásamt því hugsanirnar okkar og hvernig við erum ekki hugsanirnar okkar, heldur aðeins sálin sem skoðar þær og veljum og höfnum. Njótið vel.
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 4 min

About Helgaspjallið

From the publisher's feed

Helgaspjallið er podcast útgáfa af lið á Trendnet.is