Helgaspjallið

Helgaspjallið

By Helgi ÓmarsSociety & Culture
Download on the App Store

Helgaspjallið episodes

  • Þáttur 89 - Sara Odds: "Frelsaðu þig frá eitruðum samskiptum"
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Við Sara Odds sameinuðumst í annað skipti hér á Helgaspjallinu og í þetta skipti fórum við yfir samskipti. Í þessum þætti tölum við um ábyrgðina okkar innan samskipta sem við mætum í lífinu. Sara setur einnig mjög myndrænt hvernig heilinn á okkur þróast sem var ekkert eðlilega áhugavert. Hún er kemur með allskonar sleggjur sem setur hlutina í brjálaðslega skemmtilegt samhengi. Við förum einnig yfir hvernig við getum skilið okkar hlutverk innan samskipta, hvort svosem það sé í ástarsamböndum eða öðrum samböndum og hvað elsku sjálfsábyrgðin er okkar mikilvægasta og dýrmætasta tól. Njótið vel kæru hlustendur x
    Þátturinn var tekinn þátt í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 22 min
  • Þáttur 88 - Kolbrún Pálína um úrvinnslu áfalla og að rísa upp aftur
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Kolbrún Pálína, eins geggjuð og hún er fögur. Við fáum að kynnast henni á dýpra leveli í þessum þætti. Frá hlutverkum hennar í æsku, Ungfrú Ísland ævintýrið, hvernig það var og hvaða lærdóm hún tók með sér inní lífið. Við förum yfir fjölskyldulífið og skilnaðinn sem kveikti á hugmynd Kolbrúnu Pálínu til að gera sjónvarpsþættina ÁST sem sýndir voru á Sjónvarpi Símans. Við förum yfir hvað hún lærði í markþjálfun og hvað fékk hana til að fara læra markþjálfann sjálf. Ásamt því að koma með sleggjur varðandi lífið eins og það leggur sig. Njótið vel -
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó Podcaststöðvarinnar -
    1 hr 13 min
  • Þáttur 87 - Már Gunnarsson um blinduna, lífið og Söngvakeppnina
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Hjartaknúsarinn Már Gunnarsson mætti í stúdíó-ið korter eftir að hann fékk símtalið um að hljómsveitin Amarosis hafi fengið gyllta miðann inní úrslit Söngvakeppninnar 2022 þar sem þau enduðu í þriðja sæti. Már hefur lengi vel átt auðvelt með að heilla þjóðina uppúr skónum og er þetta viðtal engin undantekning. Við ræðum æskuna, blinduna, ástina, sönginn og svo margt annað. Njótið vel!
    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 12 min
  • Þáttur 86 - Solla Eiríks um breytingarnar og andlegt heilbrigði
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Hún er smá eins og vinkona okkar allra landsmanna en Solla Eiríks, betur þekkt sem Solla græna tekur okkur á smá ferðalag þar sem hún segir okkur frá ferli sínum og lífi. Frá hippalífinu í Danmörku yfir í vinnuna í gegnum árin. Solla talar einlægt um breytingarnar í lífinu sínu og hvernig örlögin og hið fyrirfram ákveðna hefur spilað fallega með henni. Við ræðum hluti eins og sálfræðimeðferð, lærdóminn, burn-outin, aldurinn, skilnaðinn, náttúruna og heilbrigði eins og það leggur sig. Njótið vel -
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó Podcaststöðvarinnar -
    1 hr 20 min
  • Þáttur 85 - Stefán Óli og Birgir Steinn - Frá einelti og kvíða í Söngvakeppni Sjónvarpsins
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Stefán Óli er glænýr í íslenskri tónlistarsenu og sjáum við hann "frumsýndan" á stóra sviðinu í Söngvakeppninni þann 26 febrúar. Mennirnir á bakvið lagið Ljósið sem Stefán Óli mun flytja eru þeir Birgir Steinn og Andri Þór tónlistarmenn. Við fáum örlítið að kynnast mönnunum á bakvið þetta fallega lag en við ræðum meðal annars einelti sem Stefán Óli varð fyrir á yngri árum og hvernig hann komst í gegnum það og hvað hann tók með sér frá þeirri erfiðu reynslu og hvernig hann nýtti hana sér til góðs. Birgir Steinn er mörgum kunnugum en hann er meðal annars með litlar 29 milljón streymi á lagið sitt Can you feel it á Spotify. Við tölum um kvíða, tónlistargeirann, bölvun góðmennskunar, hvernig var að eiga Stefán Hilmars sem pabba, kvíða og þeirra tól til að sigrast á honum ásamt öðru. Um er að ræða tvo stórkostlega menn sem eru að gera geggjaða hluti og yndislegt að tala við þá og kynnast þeim betur. Mæli með!
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó Podcaststöðvarinnar -
    1 hr 29 min
  • Þáttur 84 - Gummi Kíró - "Ég er eins og ég er því ég er alltaf ég sjálfur"
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Gummi Kíró hefur vakið allskonar athygli uppá síðkastið, en þá aðallega fyrir að vera nákvæmlega hann sjálfur. Gummi hefur ótrúlega magnaðan einstakling að geyma og við förum yfir hin ýmsu mál. Allt frá hinu persónulega yfir í vinnulífið. Hvað felst í starfinu? Hvað er kírópraktík? Hvað snýst þetta um? Hvernig navigate-ar hann umtal? Í þessum þætti fáum að kynnast þessum yndislega manni betur og virkilega góð hlustun að setjast á móti honum.
    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 10 min
  • Þáttur 83 - Stella Bára dáleiðari um undirmeðvitundina og dáleiðslu -
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Vá vá vá. Ég vissi ekki hvað ég væri að fara útí þegar ég bauð Stellu Báru Eggertsdóttir dáleiðara í spjall til mín. Ég hef ávallt verið ótrúlega forvitinn um dáleiðslu. Hvað er þetta? Hvernig virkar þetta? Er þetta bara eitthvað mambo jambo? Ég var gjörsamlega orðlaus eftir spjallið okkar. Að hlusta á Stellu var eitt magnaðasta spjall sem ég átti. Hún segir okkur frá hvað dáleiðsla er og hvernig hún virkar. Við tölum einnig um undirmeðvitundina. Hvað er þessi undirmeðvitund? Hvað gerir hún og hvernig getum við unnið með henni? Hvað með meðvitundina? Hvaða áhrif hefur hún? Þessu og svo mörgu öðru fái þið svör við í þessum þætti. Ég get enganvegin mælt meira með þessum þætti og
    1 hr 35 min
  • Þáttur 82 - Dagný Bergling hjá Rvk Ritual um fyrstu skref sjálfsvinnu, manifest, mörk og samskipti
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Einn af mínum persónulegu mentorum Dagný Berglind er ein af tveimur eigendum Rvk Ritual, hugleiðslu og djúpöndunarkennari og lífs strategy coach. Við ákváðum að setjast niður og taka upp hinn fullkomna þátt til að kickstata þessu glænýja ári. Við tökum ótrúlega margt fyrir eins og hvernig hennar andlega vegferð byrjaði og hvað hún lærði og hvernig hlustendur geta tekið sín fyrstu skref að líta inná við. Við tölum um hvað það er að setja mörk og hvernig hægt er að beyta sér í þeim málum ásamt því að við brjótum niður námsskeið Rvk Ritual sem er fjórþætt, hvernig við lærum inná okkur, purify, markmið og manifest og hvernig við sköpum okkar nýjar og heilbrigðar venjur sem gera það að verkum að við getum haldið áfram að byggja eins heilbrigt líf fyrir okkur og sálina okkar.
    Hægt er að finna upplýsingar á www.rvkritual.is
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó Podcaststöðvarinnar -
    1 hr 34 min
  • Þáttur 81 - Stjörnuspekingurinn Jara Giantara um 2022
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Mér fannst svo ótrúlega viðeigandi að enda árið á smá völuspá frá Jöru Giantöru sem vakti mikla athygli í fyrsta þættinum sem við tókum saman. Jara er stjörnuspekingur og mér persónulega mikill leiðbeinandi. Hún er með silkimjúka rödd og ótrúlega næm. Mér finnst skemmtilegast í heimi áður en ég dett inní nýtt ár að lesa um hvað koma skal. Hvað segja spekingar. Jara fer yfir 2022, við hverju má búast og afhverju. Hvernig eigum við að stilla okkur inní nýja árið og hafa í huga. Jara segir okkur einnig frá foreldrahlutverkinu, en hún á dóttir sem er trans og við fengum smá innblik inní þann part af lífi hennar.
    Gleðilegt nýtt ár kæru hlustendur, ég er þakklátur fyrir hverja einustu hlustun og þakka ykkur kærlega fyrir stuðninginn á árinu sem er að líða.
    Sjáumst í janúar!
    Kram
    Helgi
    1 hr 32 min
  • Þáttur 80 - Andri Hrafn sálfræðingur um m.a andlega heilsu í íþróttum
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Stundum gleymi ég að Andri félagi minn sé sálfræðingur því hann er svo brjálaðslega sætur. Ég sá viðtal við hann í sjónvarpinu þar sem hann er að tala um andlegu heilsuna í íþróttum og hann sagði margt svo áhugavert að ég varð að plata hann í þáttinn. Að setjast niður með honum var svo geggjað og spjalla um andlega heilsu meðal annars í íþróttum kveikti á allskonar spurningum. Hvenær verða íþróttir toxískar fyrir andlegu hliðina okkar? Hvernig hefur toxísk masculinity áhrif á andlegu hliðina? Afhverju höldum við oft að aðeins líkamleg heilsa sé svarið? Er hægt að gleyma sér í að verða betri líkamlega og gleyma andlegu hliðinni? Við förum um víðan völl í umræðunni og Andri er með svo marga geggjaða punkta og ég hlakka eiginlega til að plata hann aftur til mín. Njótið vel -
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó-i Podcaststöðvarinnar -
    1 hr 26 min

About Helgaspjallið

From the publisher's feed

Helgaspjallið er podcast útgáfa af lið á Trendnet.is