Helgaspjallið

Helgaspjallið

By Helgi ÓmarsSociety & Culture
Download on the App Store

Helgaspjallið episodes

  • Þáttur 79 - Katrín Tanja um að vera komin heim, andleg heilsa og tengingu líkamans -
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Það er mikil gleði að fá að tilkynna það að dóttirin er snúin heim. Katrín Tanja segir okkur frá stórri ákvörðun um að koma heim til Íslands og skipta um þjálfara. Við ræðum einnig tenginu okkar við líkamans og sérstaklega kviðfinningar (gut feelings). Við tölum um eiginleika ömmu Katrínar um að vera séður og heyrður og hversu einstakt það er ásamt svo mörgu öðru.
    Þessi þáttur var tekinn upp í Podcaststúdíó-i Nóa Síríus
    32 min
  • Þáttur 78 - Foreldrafræðsla.is um sjálfsuppbyggingu og sjálfsmildi innan foreldrahlutverksins -
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Þrjár magnaðar konur standa á bakvið Foreldrafræðsla.is sem er byggð á nýrri nálgun í fræðslu fyrir foreldra, komandi foreldra, ömmur og afa, starfsmenn. Það eru þær Elsa Borg Sveinsdóttir, Rakel Guðbjörnsdóttir og Helena Rut Sigurðardóttir og við fórum yfir mögulega alla póla foreldra hlutverksins. Hvað er mikilvægast? Er okkar eigin ótti að hafa áhrif á uppeldið? Eða okkar eigin trauma? Samskiptin við börnin, undirbúningur fyrir barneignir, hverjar eru "réttu" eða réttu aðferðirnar? Hversu mikilvægt er að hlúa að sjálfum sér sem foreldri? Spurningarnar eru endalausar og svörin ekki bara geggjuð, heldur falleg líka. Ég eeeelskaði að taka þennan þátt upp og vona svo innilega að einhver gæti nýtt sér hann til góðs. Hægt er að skoða Foreldrafræðsluna á Instagram undir @foreldrafraedsla - njótið vel!
    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó Podcaststöðvarinnar.
    1 hr 37 min
  • Þáttur 77 - Katrín Edda um heilsu, andlegt ofbeldi og bróðurmissi -
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Verkfræðingurinn, samfélagsmiðladrollan og einlægnissnilldarbomban Katrín Edda er mætt til landsins að kynna glænýju dagbókina sína. En ég var svo heppinn að fá hana til mín í stúdíó-ið beint af flugvellinum frá Þýskalandi. En ég fékk að kynnast bakrunninum hennar og er hún alveg jafn mögnuð og ég hafði ímyndað mér og rúmlega það. Við fórum yfir æskuna sem var allskonar og rebelísk unglingsárin. Hún deilir einnig með okkur frá ofbeldissambandinu sem hún lenti í ásamt sorginni eftir að hún missti bróðir sinn nýlega. Katrín er að öllu leyti geggjuð, einlæg, heiðarleg og að sjálfssögðu gjörsamlega guðdómleg. Mjög þakklátur að hafa fengið að eiga þetta spjall með henni og vona að þið njótið vel -
    1 hr 51 min
  • Þáttur 76 - Steinunn Þórðar um andlegt ofbeldi og tengingu sálræna áfalla og líkamans -
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Jógaþjálfarinn og sminkan Steinunn Þórðar eða Namasteina er nýjasti gesturinn minn. Steinunn er einnig að klára sjúkraþjálfaran og á það hug hennar allan um þessar mundir. Steinunn lendi í grófu heimilisofbeldi sem hún deilir með okkur í þessum þætti. Við köstum milli upplifunum okkar um ofbeldi og opnum okkur uppá gátt. Við förum einnig yfir hvernig sálræn áföll hefur áhrif á líkamann okkar ásamt vangaveltur um kerfið ásamt svo margt annað. Virkilega mögnuð frásögn af hálfu Steinunnar og ótrúlega fræðandi. Hvet ykkur til að hlusta - njótið vel.
    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Sírús stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 28 min
  • Þáttur 75 - Katrín Amni um fjárhagslega núvitund (mindful money) og innihaldsríkt líf
    Þátturinn er í boði:
    Finn Crisps
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    Fitness Sport - www.fitnesssport.is
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Katrín Amni er ein magnaðasta manneskja sem ég hef hitt. Þessi þáttur varð hálfpartinn til yfir matcha latte þar sem við sátum og töluðum saman þegar ég opnaði mig um að ég ætti við óhollt samband við peninga. Katrín droppaði einni bombu á eftir annarri og í kjölfarið varð ég að deila þessu með ykkur. Ég held að við áttum okkur ekki alveg á því hvaða samband við eigum við peninga og oft eru peningar ekkert sem er endilega rætt. Svo að tala við Katrínu var eins og ferskt loft og eiginlega bara smá masterclass. Katrín er eigandi og framkvæmdastjóri IceHerbs og er að öllu leyti yndisleg og heilsteypt manneskja og galaxía af visku. Ég elska þennan þátt og vona að þið gerið það líka - njótið vel!
    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíói Podcaststöðvarinnar -
    1 hr 27 min
  • Þáttur 74 - Sara Odds markþjálfi og shaman um hugrekki, heiðarleika og sjálfsþekkingu
    Þátturinn er í boði:
    Finn Crisps
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    Fitness Sport - www.fitnesssport.is
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Sara Odds er markþjálfi, ráðgjafi og shaman og veit vel hvað hún syngur. Við förum yfir söguna hennar ásamt því að hún kynnir okkur fyrir hugrekki, heiðarleika og sjálfsþekkingu en hún segir að það sé eitt af megin atriðum þess að öðlast allt hið fallega í lífinu. Ég votta að þessi nálgun er brjálaðslega áhugaverð og var gjörsamlega geggjað að sitja á móti henni að hlusta á hana. Hún hefur okkur einnig skýrari sýn á hvað "fight or flight" þýðir í raun og veru og hvaðan það kemur og hvernig við getum brotið sirkúlinn. Mæli innilega með þessari mögnuðu konu og njótið vel!
    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíói Podcaststöðvarinnar -
    1 hr 20 min
  • Þáttur 73 - Ragga Nagli um streytu, meðvirkni og að setja mörk
    Þátturinn er í boði:
    Finn Crisps
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    Fitness Sport - www.fitnesssport.is
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Heimsins besta Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli er loksins komin á klakann eftir alltof langa Covid pásu svo ég að sjálfssögðu dróg hana inn í stúdíó. Viðfangsefnið er einfalt, streyta, meðvirkni og að setja mörk. Svo hreinlega - must hlustun! Ragga er án efa en klárasta manneskja sem ég þekki svo njótið vel!
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó Podcaststöðvarinnar -
    1 hr 29 min
  • Þáttur 72 - Anna Birta Lionaraki miðill um náðagáfuna og tíðni -
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Finn Crisp
    Dominos - www.dominos.is -
    Fitness Sport - www.fitnesssport.is
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Þvílík ánægja að fá Önnu Birtu Lionaraki í stúdíó-ið til mín og þar sem hún gefur okkur innsýn í hvað það er að vera miðill, hvaðan það kemur og hvernig það þróaðist, hvernig hún hjálpar fólki og hvernig þetta allt virkar. Það er svo magnað að hlusta á hana og ekkert eðlilega góð orka og skemmtileg. Njótið vel!
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó Podcaststöðvarinnar -
    43 min
  • Þáttur 71 - Gerða Jóns íþróttafræðingur um líkamlega og andlega heilsu og tenginguna þar á milli
    Þátturinn er í boði:
    Finn Crisps
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    Fitness Sport - www.fitnesssport.is
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Vá, Gerða Jóns, íþróttafræðingur og þjálfari með meiru ræðir um líkamlega og andlega heilsu. Gerða er m.a með hina vinsælu In Shape tíma. Við hefðum getað tekið þriggja tíma þátt og hún kemur vonandi tilbaka sem fyrst enda nóg að tala um. Við fáum að kynnast Gerðu og deilir hún með okkur hvernig það var að alast uppí alkóhólísku umhverfi og hvernig það hefur mótað hana í dag. Einnig hvernig agi fimleika hefur áhrif á hana í dag. Gerða hefur fengið ófá verkefni tilfinningalega og er magnað að hlusta á hvernig viðhorfið hennar er hvað það varðar. Einnig ræðum við allt tengt tenginunni minni hinu andlega og líkamlega og viðhorf hennar gagnvart hreyfingu er svo fersk, létt og eins og að anda að sér hreinu lofti. Ræktarkvíði, æfa í streytukerfinu, að líða vel, að taka tíma fyrir sig og allt þar í kring. Gerða er gjörsamlega stórkostleg í allar æðar og finnur maður það bæði að hlusta á hana og tala við hana. Vá hvað ég mæli með -
    Þið finnið hana t.d. á Instagram www.instagram.com/gerdajons & www.gerda.is -
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    1 hr 31 min
  • Þáttur 70 - Hólmfríður Rut um andlegt ofbeldi og afhverju við eigum ekki að taka NEINU persónulega -
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    Fitness Sport - www.fitnesssport.is
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Hólmfríður Rut kom til mín í spjall en við sátum á Fjallkonunni að narta í salat þegar hún sagði mér frá einu besta ráði sem ég hef fengið og ég vissi að ég þyrfti að deila því með ykkur hér á Helgaspjallinu. Við Hófí eigum það einnig sameiginlegt að hafa verið í ofbeldissamböndum en höfðum hvorug hugmynd um það þrátt fyrir að hafa verið saman uppá dag þegar við vorum í þessum tilteknu samböndum. Við förum yfir hvernig og afhverju. Hvernig virkar ofbeldi? Hvernig fattar maður þetta? Og mikilvægast, hvað er til ráða? Eftir síðasta þátt og pistil minn á Trendnet.is hugsaði ég þennan þátt fyrir þá sem tengdu við þennan tiltekna pistil.
    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó-i Podcaststöðvarinnar
    55 min

About Helgaspjallið

From the publisher's feed

Helgaspjallið er podcast útgáfa af lið á Trendnet.is