Helgaspjallið

Helgaspjallið

By Helgi ÓmarsSociety & Culture
Download on the App Store

Helgaspjallið episodes

  • Þáttur 69 - Elísabet Gunnars um flutningana heim, breytingarnar og drifkraftinn -
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    Fitness Sport - www.fitnesssport.is
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Elísabet Gunnars kom loksins í podcast! Þessi brjálaðslega hæfileikaríka og frábæra kona er eigandi og konan á bakvið Trendnet.is og hefur farið útum allt, en hún flutti út með manninum sínum Gunnari þegar hann fór að spila í atvinnumennsku í handbolta. Elísabet hefur stórkostlega vinnu-ethík og við fáum að kynnast henni betur. Við ræðum meðal annars mikilvægi hreyfingar, breytingarnar að vera flutt heim eftir 12 ár, hjónabandið hennar og hvernig það var að eiga mann í Þýskalandi, eitt barn á Íslandi og með annað barnið í Danmörku. Elísabet er ekkert nema innblásturinn og bensíngjöfin og var yndislegt að sitja á móti henni og fá að hlusta á hana.
    Njótið vel -
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó-i Podcaststöðvarinnar -
    1 hr 16 min
  • Þáttur 68 - Sara María Forynja um sjálfsábyrgð, innra barnið og hugvíkkandi efni -
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    Fitness Sport - www.fitnesssport.is
    IceHerbs - www.iceherbs.is
    Vá vá vá - það þarf varla að kynna inn Söru Maríu Forynju. Hún er gúru, listakona, hönnuður, markþjálfi og allt hið fallega þar á milli. Ég er gríðarlega þakklátur fyrir að hafa fengið hana til mín aftur og hún gjörsamlega umturnaði lífi mínu í þessu spjalli. Hún er galaxía af visku og en hún tildæmis segir okkur á mannamáli hvar sveppir og hugavíkkandi efni standa í nútíma geðfræði, hvað það þýðir og hvað það gerir. Ég spyr hana stórra spurninga, meðal annars varðandi minn bata og hún kom með hverja sleggju á eftir annarri sem mögulega breytti öllu hjá mér. Við ræðum meðvirkni, innra barnið okkar þar sem ég hreinlega fór að skæla og sjálfsábyrgð ásamt svo mörgu öðru. Ég get ekki mælt meira með að hlusta á hana Söru með silkimjúku röddina. Njótið vel -
    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus stúdio-i Podcaststöðvarinnar -
    1 hr 22 min
  • Þáttur 67 - Þorgerður Katrín og María Rut um sannleikann á bakvið pólitíkina -
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    Þorgerður Katrín, þingmaður og formaður Viðreisnar og aðstoðarkonan hennar og frábæra klára vinkona mín María Rut mættu í stólinn og förum við yfir alla liti pólitíkarregnbogans. Við fáum að kynnast Þorgerði betur og heyra söguna hennar. Áskorarnir, sjálfsskoðunin, skrefið að fara aftur í pólitík ásamt skemmtilegum sögum. María sem er að bjóða sig fram til þings segir einnig frá ferðalaginu sínu hvernig hún komst á þann stað sem hún er á í dag. Til dæmis kómíska sagan hvernig hún fékk stöðuna sem aðstoðarkona Þorgerðar. Það er nóg af fræðslu, hlátri og gleði í þessum þætti og mæli með að hlusta á þessar stórkostlegu konur.
    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó Podcaststöðvarinnar -
    1 hr 31 min
  • Þáttur 66 - Linda Sæberg part ll um krabbameinið, örlögin og hækkun tíðnar -
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    Linda Sæberg mætti aftur í stúdíó-ið enda nóg um að ræða. Í síðasta þætti vorum við komin að veikindum Lindu, en hún fór í gegnum þá erfiðu reynslu að greinast með brjóstakrabbamein og hún deilir með okkur hvað hún tók með sér í kjölfarið og hvernig lífið hennar breyttist. Við ræðum um örlögin, alheiminn, tíðni, taka hluti í sátt og flæðið í lífinu. Það var yndislegt að hlusta á Lindu og gleður mig að deila þessum seinni þætti með ykkur -
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó Podcaststöðvarinnar -
    1 hr 18 min
  • Þáttur 65 - Linda Sæberg um að fylgja tilganginum okkar og Bali flutningar með fjölskyldunni
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    Þessi þáttur er fyrsti partur af tveimur þáttum með Lindu Sæberg.
    Linda er fögur tilfinningasprengja sem vakti athygli á samfélagsmiðlum þegar hún gaf innsýn inní baráttu sína við krabbamein. Fyrir veikindin fæddi hún soninn sinn Esjar og til að forðast skammdegisþunglyndið í fæðingarorlofinu sínu þá tók hún þá ákvörðun að flytja til Bali með fjölskylduna. Þáverandi manninn sinn, dóttir sína og þriggja mánaða son, hún segir okkur frá ferðalaginu og það sem tók við þegar hún tók við. Það sem tók við þegar komið var heim var hið hefðbundna líf sem hún hélt og hún vildi en svo var ekki. Frásögnin hennar er ótrúlega einlæg og áhugaverð og það sem tók við í kjölfarið var eitt hennar stærsta verkefni lífinu, sem var baráttan við bjóstakrabbamein sem við förum betur yfir í næsta þætti -
    Þessi þáttur var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó Podcaststöðvarinnar -
    1 hr 15 min
  • Þáttur 64 - Guðrún Sørtveit opnar sig um fósturmissi, að vera ný mamma í covid og sorgina -
    Þátturinn er í boði:
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    Ljúfa Íslands, Guðrún Sørtveit förðunarfræðingur og bloggari á Trendnet kom til mín í annað skipti og hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan þá. Guðrún opnar sig um upplifun sína af utanlegsfóstri og hvernig ferlið var og hvernig það tók á andlegu hliðina. Í kjölfarið varð Guðrún aftur ólétt af Áslaugu Rún sem fæddist í kickstarti Covid. Guðrún opnar sig um hvernig það var að vera nýbökuð móðir með fyrsta barn í heimsfaraldri ásamt því að hafa lent í áfalli á meðan Covid stóð sem hæðst. Guðrún er ein einlægnissprengja og fátt yndislegra en að sitja með henni og spjalla um daginn og veginn. Njótið vel kæru hlustendur -
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus Stúdíó Podcaststöðvarinnar -
    1 hr 29 min
  • Þáttur 63 - Andrea Magnús um lífið, draumana og lærdóminn -
    Þátturinn er í boði:
    Iceherbs - www.iceherbs.is
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    Losti.is - www.losti.is
    Hönnuðurinn og Trendnet bloggarinn Andrea Magnús kom loksins til mín í stúdíó-ið! Andrea er án efa ein yndislegasta manneskja sem ég þekki, hún hefur alltaf ráð og segir einhvernvegin alltaf það rétta og hef ég tekið mér margt til fyrirmyndar á þeim tíma sem ég hef þekkt hana. Við fáum að kynnast henni enn betur og grafa aðeins ofan í lífið hennar. Allt frá fjölskyldulífi, fyrirtækjareksturinn hennar og tilfinningalíf. Við ræðum meðal annars um manifest draumana okkar og hvernig við látum verða að þeim. Hún hefur svo magnaða manneskju að geyma og var yndislegt að fá að hlusta á hana og sýn hennar á lífið eins og það leggur sig. Andrea rekur búðina www.andrea.is á Norðurbakka í Hafnarfirði ásamt því að vera bloggari á www.trendnet.is og er aktív á Instagram með rúmlega tólf þúsund fylgjendur.
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó-inu í Podcaststöðinni -
    1 hr 21 min
  • Þáttur 62 - Ragna hjá Bjarkarhlíð um andlegt ofbeldi, rauðu flöggin og trauma-bond
    Þátturinn er í boði:
    Brynju Ís -
    Iceherbs - www.iceherbs.is
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    Losti.is - www.losti.is
    Ragna Björg Guðbrandsdóttir er teymisstjóri Bjarkarhlíðar sem er miðstöð fyrir þolendur ofbeldis. Hún tók mér opnum örmum þegar ég gekk þar inn bugaður á sál og líkama og tókum við þennan þátt með því markmiði að hjálpa hlustendum að læra að þekkja rauðu flöggin og andlegt ofbeldi. Ragna er heil galaxía af reynslu og þekkingu í þessum málum og fáum við að heyra söguna hennar. Það var mér mikill heiður að fá hana til mín. Þessi þáttur var gerður með því markmiði að fræða og vonandi hjálpa einhverjum þarna úti.
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó Podcaststöðvarinnar
    1 hr 7 min
  • Þáttur 61 - Gunnar L Friðriks Tíbetskur Búddisti um andlega iðkun, góðvild og samkennd
    Þátturinn er í boði:
    Iceherbs - www.iceherbs.is
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    Losti.is - www.losti.is
    Gunnar L Friðriksson eða Gunnar DAO eins og ég vil kalla hann er Tíbetskur Búddisti sem hefur iðkað Búddisma í yfir 30 ár situr fyrir svörum og sturtar yfir okkur heilandi og falleg heilræði frá þekkingu sinni. Hann deilir einnig persónulegum reynslum varðandi fíkn og hvernig honum tókst að reyna fá jafnvægi milli Búddisma iðkun sína og fíknina. Hann lendir einnig í því krefjandi verkefni að fá ristilskrabbamein sem tók á og hvernig honum tókst að nýta heilandi aðferðir í því verkefni. Hann einnig gerir stutta og yndislega sjálfssamkenndar hugleiðslu með okkur sem ég hvet ykkur öll til að taka þátt í. Ég er þakklátur fyrir þennan þátt og Gunnar skildi mikið eftir hjá mér og vona að þessi þáttur gerir slíkt hið sama fyrir ykkur.
    Heimasíða Gunnars er www.dao.is fyrir áhugasama -
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó-i podcast stöðvarinnar
    1 hr 27 min
  • Þáttur 60 - Kynnumst Narsisissma með Sigríði Þormar, doktor í sálfræði
    Þátturinn er í boði:
    Brynju Ís -
    Iceherbs - www.iceherbs.is
    Chitocare - www.chitocare.is - afsláttarkóði: Helgaspjallið
    Dominos - www.dominos.is -
    Losti.is - www.losti.is
    Sigríður Þormar er doktor í sálfræði. Hún skrifaði grein á Stundin.is sem heitir "Í neti narsissistans" sem vakti gríðarlega mikla athygli. Þessi þáttur er einn sá stærsti fyrir mína parta. Narsissistar og fólk með narsissistíska hegðun er ótrúlega hætturlegt fólk og þess vegna er mikilvægt að kynnast hegðunarmynstri þeirra. Eins og Sigríður skrifar, í neti narsissistans er svo ótrúlega rétt. Hægt væri að gera 100 þætti um viðfangsefnið en við förum yfir eins mikið og við gátum í fyrsta þætti. Þessi þáttur á að vera fræðandi og mæli ég með að hlusta á Sigríði fyrir alla. Eina leiðin til að geta farið sig við Narsissista er að þekkja formúluna og hætti þeirra. Afhverju gera þeir það sem þeir gera? Hvað er gaslýsing og hversu stór þáttur er hún í andlegu ofbeldi narsissistans? Hvernig getum við séð rauðu flöggin? Hver er úrræðin ef við erum í kringum einhvern sem beitir svona ofbeldi?
    Þátturinn var tekinn upp í Nóa Síríus stúdíó-i podcast stöðvarinnar
    1 hr 27 min

About Helgaspjallið

From the publisher's feed

Helgaspjallið er podcast útgáfa af lið á Trendnet.is