Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Hefur þú áhuga á bulli og vitleysu? Hemmi frændi býður upp á grín og gys, spjall um allt milli himins og jarðar, og gesti sem vita hluti. Er hægt að biðja um meira? Erum einnig á Spotify, iTunes, Yout... more
FAQs about Hemmi frændi:How many episodes does Hemmi frændi have?The podcast currently has 82 episodes available.
April 20, 202052 - Hemmi afmælar sigÞá er komið ár frá því að Hemmi frændi rann fyrst í hlað og vegna fjölmargra eftirspurna mun koma í ljós hvers vegna þátturinn ber það nafn. Arnar „Leikaravinur“ Hauksson kemur í spjall og hver veit nema Hemmarnir hleypi honum að í samtalið að þessu sinni. Goðsagnakennda atvikið á Ship Anson í starfsmannaferð Isavia til Portsmouth árið 2018 verður reifað í þættinum og Davíð Þór „Toolshed“ Logason, stærsta vitnið í málinu, leysir loks frá skjóðunni um hvað raunverulega átti sér stað innan veggja skemmtistaðarins þetta örlagaríka kvöld....more55minPlay
April 13, 202051 - Hemmi í einangrunÍ þessum gestalausa þætti Hemma frænda ræða Bjarni og Einar um typpalækna, atvinnumál og samfélagið á þessari ögurstundu þar sem Covid-19 heldur öllum í heljargreipum. ...more1h 1minPlay
April 06, 202050 - Hemmi hittir Konna GottaErtu í atvinnuleit en enginn vill ráða þig til starfa? Ert jafnvel með flekklausa ferilskrá, hefur sótt Dale Carnegie námskeið og með meðmæli frá Forsetanum? Þá viltu heyra sögu Konráðs Gunnars Gottliebssonar sem varð einn eftirsóttasti starfskraftur landsins vegna örlagaríks myndbands. Konni Gotta sækir ekki um störf heldur sækja störfin um Konna Gotta. Tjekkið á honum á samfélagsmiðlum undir nafninu konnigotta....more1h 9minPlay
March 30, 202049 - Hemmi hótar ArnóriArnór Daði Gunnarsson er frá Hauganesi. Hann er kannski ekki færasti uppistandarinn samkvæmt dómnefndinni á Íslandsmótinu í uppistandi 2020 en hann er að minnsta kosti flottur strákur....more1h 37minPlay
March 23, 202048 - Hemmi Mixar MaggaÞegar maður leitar ráða sækir maður í reynslu. Maggi Mix, ein reyndasta og langlífasta samfélagsmiðlastjarna Íslands, heiðrar Hemmana með nærveru sinni og segir þeim sögur um líf sitt og störf í þágu þjóðarinnar....more2h 2minPlay
March 16, 202047 - Hemmi spennir GreipGreipur Hjaltason vann Íslandsmótið í uppistandi árið 2020. Hann er næstum tveir metrar á hæð, vinnur á frístundaheimili (ekki leikskóla) og er stundum fyndinn. Beðist er velvirðingar á öskurhlátri í þættinum....more1h 44minPlay
March 09, 202046 - Hemmi Helgar sig ÁstuÞau koma færandi hendi í þáttinn með Durian konfekt og Kopi Luwak kaffi sem fær misgóðar undirtektir Hemmanna. Ásta Rós Árnadóttir og Helgi Arason hafa marga fjöruna sopið víðs vegar um hnöttinn og segja okkur meðal annars frá Asíureisunni sem þau fóru í ásamt 7 mánaða dóttur þeirra fyrir skömmu. Ef þú finnur lykt af blautum sokkum er það bara daunninn af Durian konfektinu að smitast í gegnum hljóðkerfið þitt....more1h 18minPlay
March 02, 202045 - Hemmi fær Telmu í sögurHvernig er að leika berbrjósta í bíómynd, missa fullorðins framtennurnar og fá boð frá áströlskum hlutabréfabraskara um að koma hinumegin á hnöttinn í rómantíska heimsókn? Leikkonan Telma Huld Jóhannesdóttir segir okkur frá nokkrum af þeim fjölmörgu ævintýrum sem hún hefur lent í á lífsleiðinni. Þið finnið meira um Telmu á vefsíðu hennar https://www.telmajoa.com....more1h 26minPlay
February 24, 202044 - Hemmi hremmir Holy HrafnHann er tónlistarmaður, pin númerið hans er einhver útgáfa af 7-9-13 og honum finnst Einar vera hnyttinn. Farðu á Spotify eða Youtube til að heyra mergjaða tónlist Holy Hrafns en hlustaðu samt fyrst á þáttinn. Þess vegna ertu hérna auðvitað. Nema þú lesir alltaf bara lýsinguna á þættinum og ferð síðan einhvert annað. Það væri virkilega furðulegt bara svo þú vitir....more1h 17minPlay
February 17, 202043 - Hemmi fer með Sólimann í siglinguÁgúst Thór Sólimann er skipstjórinn á skútunni Jón Guðmundsson. Undanfarin ár hefur hann verið á siglingu um Atlants-, Miðjarðar- og Eyjahaf þar sem hann hefur boðið fólki að slást í för með sér til að læra að sigla skútu eða einfaldlega njóta lífsins á fallegum stöðum. Gústi segir okkur frá ferðalögum sínum og hvernig hann fékk þá hugmynd að leggja í þetta ævintýri. Áhugasamir geta pantað ferðir á Facebook síðunni hans Solimann Sailing eða skoðað myndir á Instagram reikningnum solimannsailing....more59minPlay
FAQs about Hemmi frændi:How many episodes does Hemmi frændi have?The podcast currently has 82 episodes available.