Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Hefur þú áhuga á bulli og vitleysu? Hemmi frændi býður upp á grín og gys, spjall um allt milli himins og jarðar, og gesti sem vita hluti. Er hægt að biðja um meira? Erum einnig á Spotify, iTunes, Yout... more
FAQs about Hemmi frændi:How many episodes does Hemmi frændi have?The podcast currently has 82 episodes available.
July 15, 201912 - Hemmi fær Árna í heimsóknHefðbundið smjatt í þessum þætti að viðbættum nýja dagskrárliðnum: falsfréttir. Árni Jóhannsson skjalavörður kíkir í heimsókn og ræðir meðal annars ævintýrin sem gerast á þjóðskjalasafni Íslands. Fjórðungur, hlaðvarp Árna um íslenskan körfubolta, má finna á: https://www.buzzsprout.com/226644/ og twitter nafnið hans er: @arnijo. Í lok þáttarins syngur Einar fyrir okkur With arms wide open með Creed í blindu Karaoke....more1h 30minPlay
July 08, 201911 - Hemmi finnur ástinaÍ þessum þætti er hefðbundið vikuspjall og nýji dagskrárliðurinn „Sönn íslensk ástarmál“ er kynntur til leiks. Þá gera Hemmarnir tilraun til að kryfja íslenska ástarlagatexta til að finna út hvað ást er í raun og veru. Í bláendann flytur Bjarni "blint karaoke" á Robbie Williams laginu Angels....more1h 11minPlay
July 01, 201910 - Hemmi fær Ella í heimsóknElías Örn Friðfinnsson kokkur og sprelligosi kemur í heimsókn til Hemma frænda. Hann er að fara af stað með matvagninn Taco Bless í Reykjanesbæ sem er að verða klár í slaginn von bráðar fyrir svanga taco-unnendur....more1h 11minPlay
June 24, 2019Hemmi kafar dýpraBólstruð herðatré, samsæriskenning um einn ástsælasta söngvara þjóðarinnar og þriðji hluti útvarpsleikritsins vinsæla eru á dagskrá Hemma frænda að þessu sinni. Í blálokin fá hlustendur að heyra dubstep útgáfu af Eventyr eftir raftónlistarmanninn Tæknijens ft. SkífuÞeytir SkransX....more57minPlay
June 17, 2019Hemmi haldinn hátíðlegurÍ þjóðhátíðarþætti Hemma frænda er rædd áhugaverð púttferð, þrítugsafmælisgjöf Búffa Pulsu og hvers vegna Íslendingar halda upp á 17. júní. Spurningunni um af hverju nef á hundum eru alltaf blaut er loksins svarað og þátturinn endar með fallegu Karaoke í tilefni dagsins....more1h 3minPlay
June 09, 2019Hemmi byrjar að bullaÞriðji orkupakkinn, þungunarrofsfrumvarpið og samdráttur í ferðaþjónustu verður ekki til umræðu í sjöunda þætti Hemma frænda. Hins vegar verða flutt ljóð, rætt stóra tannlæknasamsærið og bullað um lítt mikilvæg málefni....more54minPlay
June 02, 2019Hemmi fer á ÞingvelliSjötti þáttur Hemma frænda er tekin upp á Þingvöllum í þetta skiptið og fáum við að heyra ferðasögur af Grikklandi frá Elísabetu Ýr og Einari. Það var víst mikið af ævintýrum og allt morandi í kínverskum ferðamönnum. Bjarni fær að tuða smá í þættinum. #freethelegs...more1h 21minPlay
May 26, 2019Hemmi fer til GrikklandsHemminn tvístrast í þessum fimmta þætti Hemma frænda. Einar er farinn á vit ævintýranna í Grikklandi á meðan Bjarni er heima að bora í nefið. Hemmi hringir í Einar og fær allt helsta skúbbið, auglýsingarnar eru á sínum stað, spurt verður almúgann um hvaða ofurkrafta hann myndi vilja og annar hluti útvarpsleikritsins: "Ástir og álfelgur" er fluttur....more1hPlay
May 19, 2019Hemmi hlustar á tónlistÍ þættinum er kynnt plötuna Fortíðar framfarir frá sirka 2005 sem er frumraun raftónlistarmannsins Tæknijens. Þátturinn byrjar sem þurr plötukynning og gagnrýni sem vindur upp á sig og verður epísk saga um tímaflakkara sem lendir í ævintýrum víðsvegar um heiminn og tímans rás í leit sinni að lækningu fyrir dauðvona elskhuga sinn. Tónlist í þættinum er ekki við hæfi neinna....more57minPlay
May 12, 2019Hemmi flytur leikritÍ þessum þriðja og jafnframt langbesta þætti Hemma frænda til þessa er frumflutt leikritið Eggjandi Alpar. Hemmi býður einnig upp á vikurant, auglýsingar og spjall um kaffi og ferðalög. Athugið að efni í þættinum er ekki við hæfi alvarlegra....more54minPlay
FAQs about Hemmi frændi:How many episodes does Hemmi frændi have?The podcast currently has 82 episodes available.