
Sign up to save your podcasts
Or


Nuk snýr aftur heim á slóðir, á æskuheimili sitt í Tauriu. Móðir hans segir honum frá leyndarmáli sem haldið hefur verið milli minotaura í hundruðir ára, og tengist honum jafnvel á einhvern hátt.
Ívar spilar Egor, firbolg drúíða á níunda stigi.
Kristín spilar Gyu, hálf-álf og útvörð á áttunda stigi og laumupúka á fyrsta stigi.
Svandís spilar Nomanuk, minotaur musterisriddara Eldath á níunda stigi.
Jói er leika-, spuna-, og dýflissumeistarinn.
Í þessum þætti kveðja hetjurnar okkar Doctra, og halda til æskuslóða Nomanuk.
Þau ferðast syðst til Alandriu, og vinna í því að reyna að lauma sér innfyrir veggi Tauriu, sem er hersetin af ýmsum verum...
Svandís spilar Nomanuk sem er minotaur musterisriddari á 9. stigi.
Ívar spilar Egor, sem er firbolg drúíði á 8. stigi.
Kristín spilar Gya, sem er skógarálfur og útvörður á 7. stigi, og laumupúki á 1. stigi.
Jói er leikja-, spuna- og dýflissumeistarinn.
Í þessum þætti halda hetjurnar okkar með Mikka, að rannsaka áfram virkni Drekaköltsins í Doctra. Einhver ódauð virkni er byrjuð að birtast með komu þokkunar innfyrir verndarhjúp Doctra, og þau rannsaka yfirgefið hús.
Svandís spilar Nomanuk sem er minotaur musterisriddari á 9. stigi.
Ívar spilar Egor, sem er firbolg drúíði á 8. stigi.
Kristín spilar Gya, sem er skógarálfur og útvörður á 7. stigi, og laumupúki á 1. stigi.
Jói er leika-, spuna- og dýflissumeistarinn.
Í þessum þætti nær Nuk að flýja Metra, sem hefur fallið. Hann fær aðstoð úr óvæntri átt og gömlu hetjurnar okkar hittast aftur. Nuk, nýsloppinn úr helvíti, kemst þó að því að ástandið í Alandriu er ekki jafn gott og hann hefði vonað...
Svandís spilar Nomanuk sem er minotaur musterisriddari á 9. stigi.
Ívar spilar Egor, sem er firbolg drúíði á 8. stigi.
Kristín spilar Gya, sem er skógarálfur og útvörður á 7. stigi, og laumupúki á 1. stigi.
Jói er leika-, spuna- og dýflissumeistarinn.
Þeir Nomanuk, Joy og Emir jafna sig eftir bardagann við hvíta drekann, og halda aftur til Metra. Joy finnur á leiðinni gamlan vin, sem Nuk og Emir taka ekki jafn vel í.
Í Metra hitta þeir Cavidin, sem hjálpar Emir að setja saman aftur Nonagoninn, en áður en þeir vita af, fara viðvörunarbjöllur að klingja í Metra...
Þetta er síðasti þátturinn fyrir hlé, en við munum snúa aftur um leið og aðstæður leyfa!
Svandís spilar Nomanuk, minotaur musterisriddara eða paladin á níunda stigi
Kristján spilar Emir, vedalken völund eða artificer á níunda stigi.
Ingólfur spilar Joy, tiefling ljóðskáld eða bard á níunda stigi.
Jói er leikjameistarinn, og Ugla er aðstoðarleikjameistari og snúrunagari.
Rimlarnir leggja af stað upp í fjöllin fyrir austan Metra, á slóðir Antorax, fullorðins hvíts dreka. Vonin er að ná að endurhlaða nonagoninn hans Emirs, til að endurnýja kalda samrunann.
Finna þeir það sem þeir leita að, eða bíður þeirra kaldur dauði?
Svandís spilar Nomanuk, minotaur musterisriddara eða paladin á níunda stigi
Kristján spilar Emir, vedalken völund eða artificer á níunda stigi.
Ingólfur spilar Joy, tiefling ljóðskáld eða bard á níunda stigi.
Jói er leikjameistarinn, og Ugla er aðstoðarleikjameistari.
Emir segir félögum sínum frá verkefni sem hann er með. Gangandi borgin, þaðan sem hann er, er á síðustu metrunum nema hann nái að laga tækið sem knýr hana áfram.
Hann leitar ráða hjá Cavidin, einum umdeildasta uppfinningamanni Alandriu, og örlitlir tungumálaörðugleikar há hópnum. Cavidin lánar þeim vélmenni til að aðstoða við næsta verkefni. Nuk heimsækir gróf Eldath, niðri í Hvelfingunni neðan Metra. Joy á ágætis dag, þar sem hann telur að hann sé loksins laus við nýja vin sinn, dúkkuna.
Svandís spilar Nomanuk, minotaur musterisriddara eða paladin á níunda stigi
Kristján spilar Emir, vedalken völund eða artificer á níunda stigi.
Ingólfur spilar Joy, tiefling ljóðskáld eða bard á níunda stigi.
Jói er leikjameistarinn, og Ugla er aðstoðarleikjameistari.
Rimlarnir koma til Metra, og Joy sem að fékk bakþanka um veru sína í klaustrinu nær þeim aftur. Þau skoða borgina, Emir virðist eiga þarna eitthvað erindi og Joy eignast nýjan vin í formi lítillar postulínsdúkku sem er alls ekki óhugguleg á neinn hátt....
Svandís spilar Nomanuk, minotaur musterisriddara eða paladin á níunda stigi
Kristján spilar Emir, vedalkne völund eða artificer á níunda stigi.
Ingólfur spilar Joy, tiefling ljóðskáld eða bard á níunda stigi.
Jói er leikjameistarinn, og Ugla er aðstoðarleikjameistari.
Rimlarnir kynnast betur Lobsang klaustrinu, og Joy er búinn að finna sig í kyrrðinni sem þarna er. Þeir kynnast fararskjótum klaustursins, og halda af stað til Metra, en þessi fjallagarður er alræmdur fyrir frostrisa...
Svandís spilar Nomanuk, minotaur musterisriddara eða paladin á níunda stigi
Kristján spilar Emir, vedalkne völund eða artificer á níunda stigi.
Ingólfur spilar Joy, tiefling ljóðskáld eða bard á níunda stigi.
Jói er leikjameistarinn, og Ugla er aðstoðarleikjameistari.
Hetjurnar okkar ljúka síðasta verkefni sínu fyrir Azra, og eru send aftur í sína vídd en kannski ekki alveg á réttan stað. Þau hitta loks dularfulla sópandi munkinn hann Lu-Tze, tímamunk og eina þekkta meistarann í bardagalistinni Dejá-Fu.
Svandís spilar Nomanuk, minotaur musterisriddara eða paladin á níunda stigi
Kristján spilar Emir, vedalkne völund eða artificer á níunda stigi.
Ingólfur spilar Joy, tiefling ljóðskáld eða bard á níunda stigi.
Jói er leikjameistarinn.
From the publisher's feed