Heppni og Hetjudáðir

Heppni og Hetjudáðir

By Jóhann, Svandís, Ívar og KristínComedyArtsLeisureGamesPerforming Arts
Download on the App Store

Heppni og Hetjudáðir episodes

  • 36 - Sleginn til riddara

    Týran er áfram stödd í Fidem. 
    Nuk heimsækir hof Eldath, og staðfestir braut sína til musterisriddara í hennar nafni. Hann hefur þá heimsótt hina fyrstu gróf Eldath, og þarf að heimsækja aðrar sex grófir til að ljúka þessari vegferð. Hann fær einnig aðeins meiri upplýsingar um þennan ófrið sem virðist vera í uppsiglingu í Alandriu. 
    Þau hitta Töshu, yfirborgarvörð Fidem, og Gya eignast í leiðinni vinkonu. 

    Nuk er sjöunda stigs musterisriddari. 
    Egor er sjöunda stigs drúiði.
    Gya er sjötta stigs útvörður, og fyrsta stigs laumupúki (rogue). 

    1 hr
  • 35 - Leynifundur

    Eftir að hafa skilið Hilönu eftir í hofi Selune, þá halda hetjurnar á... mögulegan... fund við drúíða. Gya loksins notar afréttarann sinn. Þau brjóta útivistarbann borgarinnar, rekast á húðflúraða álfa, og hrafn skoðar Gyu aðeins betur...

    1 hr 9 min
  • 34 - Athöfnin

    Týran fer með Hilönu aftur á Vindlaufssetrið. Þau reyna það sem þau geta til að bjarga henni, en það þarf eitthvað meira til. Þau halda því áfram til Fidem, í hof Selune. 
    Gya tekur eftir einhverri dularfullri athygli sem henni er veitt...

    Nuk er Minotaur musterisriddari (paladin), á sjöunda stigi.
    Egor er Firbolg drúiði, á sjöunda stigi
    Gya er sjötta stigs útvörður (ranger) og fyrsta stigs laumupúki/einfari (rogue... betri þýðing er í bið) ;o)

    53 min
  • 32 - Vindlaufssetrið

    Gya kemur aftur á heimaslóðir að Vindlaufssetrinu, og hetjurnar okkar kynnast þar fjölskyldunni. Egor kynnist heimilishundunum, og Nomanuk kynnist honum Halldóri, yfirþjón...

    1 hr 3 min
  • Við Varðeldinn 3

    Förum yfir söguna hingað til, eða eins og Supernatural aðdáendur þekkja það: 
    "The Story So Far". (Þið verðið bara að ímynda ykkur Carry on  wayward son í bakgrunninum). Þessi þáttur er tekinn upp á milli þáttar 30 og 31. 

    17 min
  • 31 - Vetrarfeldur

    Týran heldur af stað frá hafnarbænum, í átt að fyrrum heimili Gyu. Sem áður, eiga óvenjulegir hlutir sér stað. Þau rekast á skepnur, sem virðist búið að vera að eiga eitthvað við...

    1 hr 18 min
  • 30 - Á sjó

    Týran, ásamt Gordon Mystra, halda leið sinni áfram. Þau lenda í sjávarháska, og hugsa upp leiðir til að fjármagna sig með sölu nátturulegra bætiefna. 

    1 hr 11 min
  • 29 - Gordon Mystra

    Týran heldur aftur til Antora, á leið sinni vestur með veggnum í átt að Occidia, þar sem skip bíður þeirra til að komast suður. Gya fékk áður skilaboð frá fyrrum vinnuveitanda, og mætti kalla fósturfjölskyldu, um að dóttur hjónanna hefði verið rænt og þurf þau að komast þangað. Með þeim slæst í för Gordon Mystra, hálf-álfur. 
    Við fáum til okkar gest, hann Matthías T. Haraldsson, leikskáld, leikstjóra, Eurovisionfara og söngvara hljómsveitarinnar Hatari.

    54 min
  • 28 - Þetta mjakast

    Hetjurnar okkar berjast við Al'Tiem í Entem, einu af virkjunum við vegginn. 
    Þetta stendur ansi tæpt, og berst eltingarleikurinn út að fjörunni við fljótið, sem aðskilur Dauðalöndin frá restinni af Alandriu. 

    1 hr 20 min

About Heppni og Hetjudáðir

From the publisher's feed

Fjögurra manna hópur sem spilar Dreka & Dýflissur, fimmtu útgáfu. Spilið er hlutverkaspil sem byggir á spuna. Saman búum við til ævintýri með hjálp teninga. Hlaðvarpið er á íslensku, eða við…