HLAÐLIST.

HLAÐLIST.

By einarhlerArtsDesign
Download on the App Store

HLAÐLIST. episodes

  • 28. Gagarín - Sögur í rými

    Gestir þáttarins eru Hringur Hafsteinsson, einn af stofnendum Gagarín, og Magnús Elvar Jónsson, hönnunarstjóri. Gagarín er upplifunar- og sýningarhönnunarstofa í Reykjavík og hefur starfað frá 1994. Meðal verka stofunnar eru Landnámssýningin í Aðalstræti, Eldheimar í Vestmannaeyjum, LAVA á Hvolsvelli og norræni skálinn á heimssýningunni í Osaka 2025.

    Óskar Örn Arnórsson og Einar Hlér Einarsson ræða við þá Hring og Magnús um sögu Gagarín, aðferðir stofunnar og hvernig sögur eru sagðar í rými. Einnig er rætt um ný verkefni og framtíð sýningarhönnunar.

    1 hr 4 min
  • 27. Hjörtur Sigurðsson - Gervigreind á teikniborðinu

    Gestur þáttarins er Hjörtur Sigurðsson hjá Mynstra. Mynstra er ráðgjafarfyrirtæki í gervigreind og stafrænni umbreytingu fyrir byggingariðnaðinn og vinnur meðal annars með BIM, VDC og sjálfvirknivæðingu.

    Óskar Örn Arnórsson og Einar Hlér Einarsson ræða við Hjört um gervigreind í byggingariðnaðinum. Þeir ræða hvar hún er notuð í dag og hvaða verk í hönnunarferlinu er hægt að gera sjálfvirk. Þeir ræða líka hvað hún gæti þýtt fyrir arkitekta og hvernig hönnunar- og byggingarferlið gæti litið út á næstu árum.

    1 hr 5 min
  • 26. Ólöf og Atli - Borgarlínan

    Ólöf Kristjánsdóttir og Atli Björn Levy gegna lykilhlutverkum í þróun Borgarlínu. Þau eru bæði samgönguverkfræðingar, Ólöf starfar hjá COWI áður Mannvit og Atli Björn er forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu. Þau sögðu okkur frá stöðu verkefnisins, áskorunum og næstu skrefum.

    58 min
  • 25. Albína Thordarson - Sigvaldi Thordarson, arkitekt

    Gestur þáttarins er Albína Thordarson arkitekt. Hún var formaður Arkitektafélags Íslands 2005–2007 og hlaut heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands árið 2025. Meðal verka hennar eru leikskólar, orlofshús og Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði, sem hún teiknaði með systur sinni, Guðfinnu Thordarson.

    Albína er dóttir Sigvalda Thordarson arkitekts (1911–1964), sem teiknaði 200–300 hús á rúmlega tveimur áratugum. Nýlega kom út bókin Sigvaldi Thordarson arkitekt eftir Albínu og Pétur H. Ármannsson hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi.

    Óskar Örn Arnórsson og Einar Hlér Einarsson ræða við Albínu um bókina, ævi Sigvalda og mörg verka hans. Þau ræða líka Sigvaldalitina, sem setja svip á hús hans.

    1 hr
  • 24. Henny Hafsteins og Sigga Maack - Teiknað af konum

    Gestir þáttarins eru Sigríður Maack arkitekt og Henný Hafsteinsdóttir, minjavörður Reykjavíkur og nágrennis hjá Minjastofnun Íslands. Saman standa þær að Teiknað af konum, gagnasafni um íslenskar konur í arkitektúr.

    Fyrsti hluti verkefnisins er sýningin Brautryðjendur, sem var á HönnunarMars 2026 og stendur enn í Arctic Space á Óðinsgötu 7. Hún fjallar um þær 28 íslensku konur sem luku námi í arkitektúr fram til ársins 1980.

    Óskar Örn Arnórsson og Einar Hlér Einarsson ræða við þær um verkefnið, brautryðjendurna og verk þeirra.

    48 min
  • 23. Guðrún Harðardóttir - Íðorð í arkitektúr

    Guðrún Harðardóttir er arkitekt sem vinnur nú m.a. að því að taka saman myndskreytta orðabók um arkitektúr á íslensku. Guðrún starfaði lengi fyrir ARGOS en hefur nýlega gangsett sína eigin arkitektastofu, g.HARKitekt. Orðaforði í arkitektúr er langt frá því að vera fullnægjandi, mikið er um ensku- og dönskusléttur í fagmálinu og við ræðum hvernig Guðrún er að nálgast þetta verkefni frá ólíkum hliðum.

    1 hr 2 min
  • 22. Roger Mullin - Prototypes for a Landscape

    Roger Mullin is an architect and educator at the School of Architecture at Dalhousie University in Halifax, Nova Scotia. His work uses drawing and design-build to explore landscape, coastal communities and the materials of industry. Between 2015 and 2018 he brought four groups of architecture students to Iceland for 12-day field trips. In 2024 he was a visiting professor at the Iceland University of the Arts.

    Óskar Örn Arnórsson and Einar Hlér Einarsson talk with Roger about his exhibition Prototypes for a Landscape at Slökkvistöðin in Gufunes. The conversation covers drawing on site in conté and ink, building at full scale, the Forest Cave at Mógilsá, and learning to read a landscape that is never neutral.

    This episode is in English.

    53 min
  • 21. Sigríður Sigþórsdóttir og Hrólfur Cela, Basalt - Baðmenning og Feneyjar 2027

    Sigríður Sigþórsdóttir og Hrólfur Karl Cela reka arkitektastofuna Basalt ásamt fleirrum. Basalt er ein allra öflugasta arkitektastofa landsins með langa reynslu af ýmsum tegundum verkefna. Stofan er þekktust fyrir sérkunnáttu sína í hönnun baðstaða og Sigga og Hrólfur segja okkur frá sínum verkefnum, þeirra þátttöku í Feneyjarstvíeyringnum á næsta ári og margt fleirra.

    1 hr 1 min
  • 20. Ásta Logadóttir - Birta í byggingum

    Ásta Logadóttir starfar sem lýsingarhönnuður hjá verkfræðistofunni Lotu og hefur tekið virkan þátt í stefnumótun og starfi tengt lýsingu á opinberum vettvangi. Ásta fer með okkur í gegnum yfir alla þætti er varða lýsingu og reglugerðir, samanburð við hin Norðurlöndin og margt fleirra.

    1 hr 8 min
  • 19. Gunnar Kristjánsson - Þegar hús brenna

    Grunnar Kristjánsson rekur Brunahönnun slf. og hefur verið stórtækur á sviði brunahönnunar í 30 ár. Við ræddum helstu bruna síðustu ára á Íslandi og afleiðingar þeirra, en komum einnig aðeins inn á Grenfell brunann í London, þróun innan fagsins og margt fleirra.

    1 hr 8 min

About HLAÐLIST.

From the publisher's feed

Hlaðvarp um arkitektúr, skipulag og byggingargeirann. Einar og Óskar munu taka viðtöl við fólk sem hefur ólíka aðkomu að byggingargreinunum, s.s. arkitekta, verkfræðinga, verktaka, stjórnmálamenn og fleirri. Einnig munu þeir rýna í bækur og fræðigreinar tengd arkitekúr, auk vettvangsferða og heimsóknir í áhugaverð fyrirtæki og til fólks.