HLAÐLIST.

HLAÐLIST.

By einarhlerArtsDesign
Download on the App Store

HLAÐLIST. episodes

  • 13. Anna María Bogadóttir - Niðurrif

    Anna María Bogadóttir er prófessor í arkitektúr við Listaháskóla Íslands. Hún rekur einnig stofuna Úrbanistan og hefur komið að útgáfu margra bóka um arkitektúr á íslensku. Við töluðum við Önnu Maríu um niðurrif bygginga og tengist það helst bók hennar, Jarðsetning, sem kom einnig út sem kvikmynd árið 2021.

    1 hr 5 min
  • 12. Hildigunnur Sverrisdóttir - Samfella og rákun

    Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt og fyrrum deildarforseti arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands, hefur sinnt kennslu, rannsóknum og ráðgjöf í tengslum við félagspólitískt samhengi manngerðs umhverfis, m.a. sem gestaprófessor við Yale. Í þættinum notar Hildigunnur hugmyndir Deleuze og Guattari sem linsu á íslenskt landslag, borgarskipulag og samspil markaðs- og lýðræðis. Einnig ræðir hún kennslu, rannsóknaverkefnið Turfiction og fleiri atriði.

    1 hr 7 min
  • 11. Þorsteinn Gunnarsson - Kirkjur Íslands

    Þorsteinn Gunnarsson, arkitekt og leikari, hefur um áratuga skeið verið í fararbroddi í rannsóknum og varðveislu íslenskra menningarminja. Hann var fyrstur Íslendinga til að sérhæfa sig í endurgerð eldri bygginga og hefur m.a. komið að endurreisn Viðeyjarstofu, Nesstofu, Bessastaðastofu, Alþingishússins og Hóladómkirkju. Þorsteinn hefur verið ritstjóri ritraðarinnar Kirkjur Íslands frá upphafi, en um er að ræða 31 bindi um friðaðar kirkjur landsins. Í þættinum fer Þorsteinn yfir íslenska kirkjubyggingarsögu, allt frá torf- og timburkirkjum til steinhlaðinna og steinsteyptra kirkna.

    1 hr 3 min
  • 10. Lilja Pálmadóttir - Andinn og efnið

    Lilja Pálmadóttir er athafnakona og hrossabóndi á Hofi. Sem myndlistakona hefur hún einnig næmt auga fyrir byggingarlist og hefur átt frumkvæðið af því að láta reisa eða gera upp margar ólíkar byggingar, allar í hæsta gæðaflokki. Hún kom og sagði okkur frá þessum byggingum, samstarfi sínu við arkitekta ásamt mörgu fleirru.

    40 min
  • 9. Gylfi Ólafsson - Ísafjörður og Vestfirðir

    Gylfi Ólafsson var áður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða og er nú varaþingmaður Viðreisnar og oddviti Í-listans á Ísafirði, en listinn hefur verið í meirihluta þar síðan 2022. Gylfi fræðir okkur um ástandið á innviðum í sveitarfélaginu og þróun síðustu ára, ásamt því að fara yfir sögu nokkurra af helstu byggingum bæjarins.

    Nokkrir tenglar á umfjöllun um Ísafjarðarkirkju:

    https://timarit.is/page/7360713#page/n5/mode/2up

    https://timarit.is/page/6548129#page/n17/mode/2up

    https://timarit.is/page/7346132

    49 min
  • 8. Vigfús Þór Hróbjartsson - Selfoss og skipulag

    Vigfús Þór er skipulagsfulltrúi Árborgar, en hefur einnig sinnt starfi skipulagsfulltrúa á mörgum öðrum stöðum á Suðurlandi. Við förum í hlutverk skipulagsfulltrúa, miðbæ Selfossar og fleirri atriði í þættinum.

    47 min
  • 7. Magnús Skúlason - Þétting byggðar og fagurfræðin

    Magnús Skúlason, arkitekt, á að baki langan og glæstan feril, bæði í einkageiranum og á opinbera sviðinu. Hann hefur starfað sem formaður byggingarnefndar Reykjavíkur, en er einnig einn af leiðtogunum í verndun eldri byggðar. Hann er vinsæll hjá fjölmiðlum þegar talað er um fréttir er tengjast byggingarmálum og Magnús fór yfir víðan völl í þættinum með okkur Óskari og Einari.

    51 min
  • 5. Andri Snær Magnason - Jötunsteinn og ljótleiki

    Andri Snær er þjóðþekktur rithöfundur sem gaf út bókina Jötunsteinn fyrir síðustu jól. Andri kom í spjall til okkar Óskars og sagði okkur frá þátttöku sinni í arkitektúr í gegnum tíðina, við ræddum bókina hans og aðra hluti sem tengjast kannski helst ljótleika í arkitektúr.

    1 hr 1 min
  • 4. Hlökk Theodórsdóttir - Um Græna Gímaldið

    Í þættinum segir Hlökk okkur frá grein sinni "„Græna gímaldið“ við Álfabakka– hvað segir það okkur um stjórnsýslu skipulagsmála á Íslandi?", sem birtist í tímaritinu Stjórnmál og Stjórnsýsla undir lok árs 2025. Hlökk er meðal fremstu skipulagsfræðinga landsins og fer með okkur yfir sögu þessarar alræmdu byggingar ásamt öðrum málum.

    Hlekkur á greinina.

    59 min

About HLAÐLIST.

From the publisher's feed

Hlaðvarp um arkitektúr, skipulag og byggingargeirann. Einar og Óskar munu taka viðtöl við fólk sem hefur ólíka aðkomu að byggingargreinunum, s.s. arkitekta, verkfræðinga, verktaka, stjórnmálamenn og fleirri. Einnig munu þeir rýna í bækur og fræðigreinar tengd arkitekúr, auk vettvangsferða og heimsóknir í áhugaverð fyrirtæki og til fólks.