Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Hlaðvarp Iðunnar er fyrir fagfólk í iðnaði og þá sem hafa áhuga á að auka þekkingu sína á sviði iðngreina. Tekin eru viðtöl við sérfræðinga, kennara og fólk úr atvinnulífinu sem miðla þekkingu sinni o... more
FAQs about Hlaðvarp Iðunnar:How many episodes does Hlaðvarp Iðunnar have?The podcast currently has 106 episodes available.
September 15, 2022Heimsmeistaramótið í kjötskurði með Jóni Gísla Jónssyni, kjötiðnaðarmanniLandslið kjötiðnaðarmanna er nýkomið heim frá því að taka þátt í heimsmeistaramóti í kjötskurði sem fór fram í Sacaramento í Bandaríkjunum. Þrettán þjóðir keppa á mótinu og er íslenska liðið eina Norðurlandaþjóðin sem tekur þátt. Jón Gísli Jónsson landsliðamaður er hér í skemmtilegu og fræðandi viðtali um aðdraganda, keppnina sjálfa og þá möguleika sem hún gefur....more27minPlay
September 02, 2022Hvernig nýtast giggarar iðnfyrirtækjum með Hörpu Magnúsdóttur framkvæmdastjóra HooblaHarpa Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Hoobla er hér í skemmtilegu og fræðandi spjalli um möguleika lítilla og meðalstórra iðnfyrirtækja að ráða til sín stjórnendur í tímabundið starf eða lágt starfshlutfall. Hún nefnir að studnum skapist álagspunktar í rekstri eða þörf fyrir tímabundna ráðningu og þá sé gott að geta leitað til þjónustu eins og Hoobla....more43minPlay
July 04, 2022Netöryggi og öryggismat með Sigurmundi P. Jónssyni ráðgjafa hjá OrigoÞað geta öll fyrirtæki orðið fyrir barðinu á tölvuþrjótum segir Sigurmundur Páll Jónsson ráðgjafi hjá Origo, líka iðnfyrirtæki. Hann fer hér yfir af hverju mikilvægt er að hafa tölvuöryggsimál á hreinu og kynnir til sögunnar öryggismat sem metur stöðu hvers fyrirtækis. Með því fæst yfirsýn yfir tölvuöryggi og hvar mögulegir öryggisbrestir liggja. Tölvuþrjótar eru nefnilega, að hans sögn, ekkert að hugsa um stærð eða svið fyrirtækisins heldur bara hvar auðveldast er að brjótast inn....more30minPlay
June 23, 2022Samtök íslenskra eimingarhúsa með Evu Maríu Sigurbjörnsdóttur formanni samtakannaSamtök íslenskra eimingarhúsa voru stofnuð til að standa vörð um íslenska áfengisframleiðslu. Eva María Sigurbjörnsdóttir líffræðingur er formaður samtakanna og er hún hér í einkar fræðandi spjalli um tilburð samtakanna, markmið þeirra og íslenska áfengisframleiðslu. Einnig er Eva María mjög fróð um sögu áfengisframleiðslu og neyslu Íslendinga í gengum árin. Skemmtilegt og líflegt spjall....more35minPlay
June 13, 2022Nýsköpun í málaraiðn - alþjóðaverkefni þrettán landa.Þau Rakel Steinvör Hallgrímsdóttir náms- og starfsráðgjafi, Ólafur Ástgeirsson, leiðtogi bygginga- og mannvirkjagreina og Ásgeir Valur Einarsson verkefnastjóri á bygginga- og mannvirkjasviði eru fulltrúar alþjóðaverkefnis um nýsköpun í málariðan. Að verkefninu koma 23 aðilar frá 13 löndum. Hér fjalla þau um verkefnið og þá möguleika sem koma út úr slíku samstarfi....more18minPlay
May 31, 2022Stafræn hæfni með Evu Karen Þórðardóttur framkvæmdastjóra Stafræna hæfniklasansEva Karen Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Stafræna hæfniklasans, er sannfærð um að stafrænar lausnir eigi erindi við fyrirtæki í iðnaði. Hún segir iðnaðinn mislangt á veg kominn í innleiðingu stafrænna lausna og bendir á að Stafræni hæfniklasinn bjóði iðnfyrirtækjum upp á að greina og koma auga á möguleika til innleiðingar, en einnig að greina stafræna hæfni starfsmanna....more43minPlay
May 15, 2022Nám í bíliðngreinum með þeim Ólafi og Hreini fagstjórum í BorgarholtsskólaÍ þessum þætti ræðir Sigurður Svavar Indriðason leiðtogi bílgreina hjá Iðunni við þá félaga Hrein Á. Óskarsson og Ólaf G. Pétursson fagstjóra í bíliðngreinum við Borgarholtsskóla. Þeir hafa þurft að aðlaga sig gríðarlega að heftandi skipulagi síðustu ára og segja bíliðngreinarnar koma vel undan þeim tíma. Framundan séu spennandi tímar þar sem atvinnulifið og skólinn þurfa að taka heiðarlegt samtal um framtíðina. Þetta er skemmtilegt og fræðandi spjall þar sem þeir félagar tala af ástríðu um stöðuna og framtíðarhorfur í bíliðngreinum....more51minPlay
May 08, 2022Stjórnendur sem horfa inn á við ná árangri, með Thor Ólafssyni eiganda Strategic LeadershipThor Ólafsson er reynslumikill stjórnendaráðgjafi og stofnandi fyrirtækisins Strategic Leadership sem er með starfsemi víða um heim. Í þessu fróðlega viðtali kynnir Thor okkur fyrir hugmyndum sínum um stjórnun og mikilvægi þess að starfsmenn og stjórnendur geri sér grein fyrir eigin „egói“ og áhrifum þess. Thor er um þessar mundir að gefa út bókina Beyound Ego. The inner compass of counscious leadership. Bókin er aðgengileg á Amazon og dagana 12.-14. maí nk. verður hægt að sækja hana endurgjaldslaust í stafrænni útgáfu....more42minPlay
May 02, 2022Notaði krísur til að efla reksturinn. Viðtal við Pál Ketilsson, útgefanda VíkurfréttaGrímur Kolbeinsson ræðir við Pál Ketilsson útgefanda Víkurfrétta um ferilinn, fjölmiðlun og tækniþróun í útgáfu....more37minPlay
April 22, 2022Er þín viðskiptalausn í skýinu? Viðtal við Andra Má Helgason vörustjóra hjá AdvaniaAndri Már Helgason, vörustjóri hjá viðskiptalausnum Advania, spjallar við okkur um viðskiptalausnir í skýinu....more37minPlay
FAQs about Hlaðvarp Iðunnar:How many episodes does Hlaðvarp Iðunnar have?The podcast currently has 106 episodes available.