Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Hlaðvarp Iðunnar er fyrir fagfólk í iðnaði og þá sem hafa áhuga á að auka þekkingu sína á sviði iðngreina. Tekin eru viðtöl við sérfræðinga, kennara og fólk úr atvinnulífinu sem miðla þekkingu sinni o... more
FAQs about Hlaðvarp Iðunnar:How many episodes does Hlaðvarp Iðunnar have?The podcast currently has 106 episodes available.
April 13, 2022AutoDesk forritin með Finni Fróðasyni arkitekt hjá Cad teiknistofuÍ þessu hlaðvarpi ræðir Gústaf A. Hjaltason ábyrgðarmaður suðumála hjá IÐUNNI við Finn Fróðason arkitekt. Þeir ræða meðal annars um möguleika AutoDesk forritanna fyrir iðnaðinn og hvernig á að nýta möguleika hvers forrits sem best....more25minPlay
March 30, 2022Rekstur og hönnun með Hjalta Karlssyni hönnuði í New YorkHjalti Karlsson fór til náms til Bandaríkjanna og rekur nú hönnunarfyrirtæki í New York. Hann er hér í spjalli við Grím Kolbeinsson um námið, fyrirtækjarekstur, búsetuna erlendis og þau tækifræri sem liggja í hönnun....more28minPlay
March 24, 2022Rafeldsneyti með Jóni Heiðari Ríkharðssyni, vélaverkfræðingi hjá EFLUHér ræðir Sigurður Svavar Indriðason sviðstjóri bilgreinasviðs IÐUNNAR við Jón Heiðar Ríkharðsson vélaverkfræðingu um hvað rafeldsneyti er og hversu stóran þátt mun það eiga í orkuskiptum hér á landi. Umræðan hefur snúist mikið til um bíliðnaðinn og skiptin frá brunaheyfilsbílum yfir í rafbíla. En hvað með allar aðrar samgöngur og flutningsmáta og hver er framtíðin í þeim efnum?...more36minPlay
March 13, 2022Raki og mygla í húsum með Sylgju Dögg Sigurjónsdóttur líffræðingiÍ þessum þætti fjallar Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir um raka og myglu í húsum. Sylgja hefur starfað við byggingariðnaðinn í hartnær 16 ár og vinnur nú sem ráðgjafi hjá Eflu verkfræðistofu ásmt því að kenna á námskeiðum hjá Iðunni. Sylgja er sérfræðingur í raka- og mygluskemmdum og þekkir það af eigin raun að búa í rakaskemmdu húsnæði. Sú lífsreynsla varð m.a. til þess að hún sérhæfði sig á þessum vettvangi að eigin sögn....more24minPlay
March 11, 2022Kjötiðn og landslið kjötiðnaðarmanna með Jóhanni Frey Sigurbjarnasyni landsliðsmanniHér ræðir Ólafur Jónsson, sviðstjóri Matvæla- og veitingasviðs IÐUNNAR, við Jóhann Frey Sigurbjarnason kjötiðnaðarmann, en hann á sæti í landsliði kjötiðnaðarmanna. Jóhann er bjartsýnn á gott gengi landsliðsins og telur iðngreinina vera í mikilli sókn. Hann leggur áherslu á samvinnu matreiðslumanna og kjötiðnaðarmanna og segir hana geta aukið vöruúrval þar sem viðskiptavinir eru alltaf að leita að spennandi nýjungum. Skemmtilegt og fróðlegt spjall um möguleikana í námi, starfi og keppnum....more20minPlay
March 03, 2022Allt um sveinspróf með Svani K. Grjetarssyni formanni sveinsprófsnefndar í húsasmíðiSvanur Karl Grjetarsson framkvæmdastjóri Mótx er hér í fróðlegu spjalli við Ólaf Ástgeirsson sviðstjóra bygginga- og mannvirkjasviðs IÐUNNAR um sveinspróf. Svanur Karl er formaður sveinsprófsnefndar í húsasmíði og segir hér frá mikilvægum þáttum er varða prófið, undirbúning, framkvæmd og hvað hafa beri í huga þegar kemur að sveinsprófi. Þeir fara líka yfir hvaða möguleika nemi hefur ef tilskildum árangri í prófinu er ekki náð. Fróðlegt spjall í alla staði....more27minPlay
February 25, 2022Persónuvernd með Dóru Sif Tynes lögfræðingi hjá Advel lögmanniDóra Sif Tynes lögmaður er sérfræðingur í persónuvernd. Hér er hún í spjalli við Augnablik í iðnaði um persónuvernd í stafrænum heimi með fókusinn á GDPR. Við ræddum m.a. um hvers vegna GDPR er mikilvægt og hvernig innleiðingin hefur gengið síðust ár hjá íslenskum fyrirtækjum....more30minPlay
February 18, 2022Prentbransinn og fleiri spennandi verkefni með Birgi Jónssyni forstjóra PlayBirgir Jónsson forstjóri Play er prentari í grunninn. Hann sótti sér framhaldsmenntun í prentrekstrarfræði og telur að sú menntun hafi nýst sér mjög vel í þeim störfum sem hann hefur tekið sér fyrir hendi. „Ég er pönkari og segi því það sem þarf" segir Birgir í viðtalinu en hann hefur tekið að sér stór og flókin verkefni sem oft hafa reynt á. Birgir er einnig með skoðanir á prentun og prentiðnaðinum á Íslandi og úr þessu varð afar skemmtilegt spjall við Grím Kolbeinsson stjórnanda þáttarins....more31minPlay
February 10, 2022Gas og gaslagnir með Þránni Sigurðssyni framkvæmdastjóra GastecÞráinn Sigurðsson er eigandi og framkvæmdastóri Gastec. Hann sérhæfir sig í flestu því sem tengist gasbúnaði, tengjum, gaslögnum og gasöryggi. Hér er hann í spjalli við Gústaf A. Hjaltason IWE og fagstjóra suðumála hjá IÐUNNI....more33minPlay
February 04, 2022Endurvinnsla bifreiða með Aðalheiði Jakobsen hjá NetpörtumAðalheiður Jacobsen er eigandi og framkvæmdastjóri Netparta. Fyrirtækið sérhæfir sig í endurvinnslu bifreiða með umhverfisvænum hætti og endurnýtingu bílaparta....more34minPlay
FAQs about Hlaðvarp Iðunnar:How many episodes does Hlaðvarp Iðunnar have?The podcast currently has 106 episodes available.